Nýtt kirkjublað - 01.03.1909, Blaðsíða 11

Nýtt kirkjublað - 01.03.1909, Blaðsíða 11
NYTT KIRKJUBLAÐ 59 Steinkirkjurnar sem fyrir eru mega ekki fæla menn. Flestar eru })ær með fúa-skellurnar um sjálfan höfuðdag, drekka í sig alt vatn úr jörðu og lofti. Það tekur svona öld og aldir að komast á lagið. Lögin um innheimtu og meðferð á kirknafé er einhver hin hezt hugsuðu og gagnlegustu af allri vorri kirkjulegu lög- gjöf um síðosta aldarfjórðung. Hinn alm. Kirkjusjóður á að tryggja geymslu fjárins, lögin mæla svo fyrir að féð skuli á- vaxta eftir sömu reglu og landssjóðsfé, og í annan stað á sjóðurinn að endurfeisa og umskapa kirkjur landsins. Það getur sjóðurinn gert á einum mannsaldri, hafi hann það fé sem honum ber. Nú verður ýmist að neita lánum alveg eða draga úr þeim að stórum mun, sein er svo tilfinnanlegt })eg- ar söfnuðunum vex hugur og dugur að ganga vel frá kirkj- um sínum, og mönnum er farin að skiljast hagsýnin í því að leggja meira fram í upphafi, til tryggrar og varanlegrar eign- ar. Og eins og nú á stendur hlaupa söfnuðir ekki í hagstæð lán fyrir utan Kirkjusjóðinn. Söfnuðir og sóknarnefndir verða að líta á }>að, hve stór- mikla almenna þýðingu það heíir að Kirkjusjóðs-lögunum sé hlýtt, og því er þessi skeröing á yfiri'áðarétti hvers einstaks safnaðar á kirkjufénu svo eðlileg og réttmæt. Miklu verulegri félagsgæði korna þai' aftur á móti, og hver söfnuður heldur óskertum rétti til að verja fénu eftir vild sinni, til unibóta kirkjunni Bandið er ekki annað en þetlá, að meðan kirkjan þarf eigi sjálf á fé sínu að halda, þá sé það í veltu lil að reisa við og bæta aðrar kirkjur í landinu. Og þá má heldur eigi gera lilið úr tryggingunni i Kirkju- sjóðnum. Alloft mun svo á standa, þegar kirkjufé er haldið í lánum innansveitár, að veðin inundu eigi vera fullgild við opinbera sjóði, og |iví miður trygg, og sumstaðar er þetta fé, sem lögum samkvæmt er áfallið til innborgunar í sjóðinn, alveg, tryggingarlaust. I landi með þeim voða-ódæmum. að fjórðungur ef eigi þriðjungur þjóðareignar allrar er skuld við útlönd, verður að hafa góða gát á skuldastöðum. Með peninga-ástandinu sem nú er í landinu er ábyrgðarhluti þeirra einmitt svo mikill, sem gæta eiga þess að hlýtt sé tögunum um innheimtu og meðferð á kirknafé.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.