Nýtt kirkjublað - 15.02.1912, Page 5

Nýtt kirkjublað - 15.02.1912, Page 5
NÝTT KIRKJUBLAÐ 45 alls eigi að allir þeir forstöðumenn hafi gengið á háskólann íslenska og tekið próf þaðan, þó að svo verði væntan- lega um allan þorraþeirra. Þeir geta hafa fengið sinn þekkingar- þroska annarstaðar, en guðfræðisdeild háskólans verður ein að vera um dóminn. Tek eg til dæmis, að eg efa eigi að katólskur prestur, með hiiiuni langa og myndarlega skólavegi þeirra manna, hlyti að verða tekinn góður og gildur, prófun- arlaust, vildi katólskur söfnuður hér fá sinn hlut vaxtanna. En útlendingur yrði auðvitað áður að liafa fengið íslensk- an þegnrétt, og hafa fært sönnur á að hann kynni íslensku svo að gagni kæmi hans starf hjá íslenskum söfnuði. Eins væri sjálftekinn islenskur guðfræðiskandidat frá lút- erskum háskólum Norðurlanda til vorra lútersku safnaða. Sé eigi slík trygging fyrir mentaðri prestastétt áfram, væri beinn voði fyrirsjáanlegur af skilnaðinum. Taldi ræðum. þetta meginatriðið við skilnaðarkjörin. Þeirri kröfu mundu hugs- andi menn kirkjunnar islensku halda fram og þá eigi síður allir þjóðvinir, sem skilja hvaða blessun frjáls og heilbrigður kirkjufélagsskapur getur verið og á að vera þjóðinni. Þýtt ur euska. Vér biðjum ekki af því að vór trúum á guð. — Vér trúum á guð af því að vér biðjum. Það er hljótt og kyrt um móðurina þar sem hún er á hæn. Og samt er hún ekki ein. Á einverustundinni er hinn ósýnilegi lífsförunautur hjá henni. Og hún á oft mynd af honum í huganum. Hún eins og sér hann fyrir augum sér. Svo getur það líka verið að alls engin mynd sé til af gestinum sem móðuriua sækir heim á einverustundinni. Hún veit alveg eins af honum fyrir því. Hún kennir áhrifanna, þó að hún hafi ekki reynt að hugsa sér það, hvaðan þau komi og hvernig þau séu. Hún finnur það, að hún er ekki ein, þó að sá sem hjá henni er hafi enga mótaða mvnd fengið í huga hennar, Og gesturinn gefur henni svo dýrðlegar gjafir. Henni

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.