Nýtt kirkjublað - 15.02.1912, Blaðsíða 7

Nýtt kirkjublað - 15.02.1912, Blaðsíða 7
NÝTT KIRKJUBLAÐ 47 sinn eftir hinum ósýnilega stiga bænarinnar upp til himna, eins og hún tekur í hendina á honum og hjáipar honum upp stigann heima, sem hann kæmist ekki hjálparlaust. Dreng- urinn vill gera það sem mamma hans gerir, finna til hins sama og hún. Og áður en hann veit af því fær hann sinn hlut i einverustund móður sinnar. Drengurinn biður. Og svarið kemur til hans eins og til móður hans, á leyndan hátt, með fróun og gleði. Og drengurinn trúir á þessi áhrif, af því að þau hafa komið fram við sjálfan hann. Hann trúir á bænina og hugsar ekkert um það, hvað bænin sé. Hann trúir á guð, án þess að gera sér nokkra grein fyrir því, hvað guð sé. Trúin hans á guð er eins og hjá móður hans ekki nein skoðun. — Trúin hans er revnsla. Frá Indlandi. Öll blöð heimsins hafa verið íull af krýningardýrðinni á Ind- landi núna fyrir nýárið. Aldrei hefir auði og oflæti verið hampað hærra. Alt glóði þar af gulli og gimsteinum á tugum þúsunda. En úti í frá voru í þessu frjóasta landi heimsins 100 miljón- ir manna sem aldrei íá mettan kvið árið um kring. Breskir fræði- menn sem best hafa kynt sór hagi Indlands verða við það að kannast, að á Indlandi er það þriðji hver maður, sem ekki hefir af þvi að segja, frá vöggunni til grafarinnar, að vera saddur. Fleiri ganga svangir að sofa á Indlandi á hverju kveldi en alt mannfólk- ið i Bandafylkjum. Allur þorri Hindúa lifir á akuryrkju, en víða er bóndabýlið ekki stærra en B dagsláttur. Búslóð bóndans öll, liúsgögn og tæki, hverju nafni sem nefnast, fer á 7 krónur. Eimm manns i heimili og 14 'krónur til framfærslu um mánuðinn þykir meðalaf- koma, og víða er hún enn miklu lakari. Skrimtir með lirísgrjón fyrir 5 aura á munn um sólarhringinn, en tfðum tekur fyrir það líka. Þá hrynur fólkið niður, og það svo að hleypur á miljónum. Þetta gerist enn á 20. öld eftir Krists burð, með alt gullið og gimsteinana hjá höfðingjunum innlendu, og bresku heimsmenning- una að bakhjarli. Þingeyrakirkja. Kirkjan var sem vita mátti f ákaflega stórri skuld við eiganda frá tíð Ásgeirs gamla. Hafa því tekjurnar um íjölda ára minst gengið

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.