Nýtt kirkjublað - 15.07.1914, Blaðsíða 7

Nýtt kirkjublað - 15.07.1914, Blaðsíða 7
NÝTT EIREJUBLAÍ) 167 Inn voru komnar í vor 260 kr. og lagðar i Söfnunarsjðð. Ætti fyrir upplagið að koma inn einar 500 kr. og gæti þá sjóðurinn tekið til starfa. Eftir hinum góðu viðtökum að dæma ætti ekki að vera von- laust að kæmi til annarar prentunar, sem þá yrði og til dálítilla tekna fyrir sjóðinn. Samúðarskeyti til Norðmanna. Til kirkjuhátíðarinnar í Þrándheimi á aldarafmælinu fór héðan svolátandi símskeyti: „íslandsbiskup heilsar móðurkirkjunni fornu“. Þrándheimsbiskup sendi hjartanlegt þakklæti fyrir kveðjuna frá hinni fornu dótturkirkju, hafði hann lesið upp skeytið við hátíðina á eítir guðsþjónustu 20. maf i viðurvist konungs, stórþingis og stjórnar og kvað biskup kveðjuna hafa vakið mikinn fögnuð og henni tekið með lófaklappi. Þegar útgefandi þessa blaðs kom i Þrándheimskirkju sumarið 1900, var það fastráðið að umbótasmfði kirkjunnar væri lokið þetta afmælisár, en eigi mun það hafa tekist. Áhrif kristindómsins á Indlandi. Það fer ekki fjarri að 1 maður só kristinn af hverjum 100 manns á Indlandi, og þó að mikið só að gjört við kristniboðið, þá er viðkoma fólksins, er ekki ganga yfir sóttir og hallæri, tiltölulega raiklu meiri. En kristna siðmenningin hefir sívaxandi áhrif á Hindúa þótt eigi taki þeir kristna trú, og kemur það fram i vax- andi mannúð við konur og börn, og farið er að gæta minna erfða- stéttanna skaðlegu. Ávextir þessarar nýmóðins guðfræði. Út af gjafatestamentunum frá Pilcher presti til nokkurra ferm- ingarbarna, er ritað úr afskektu prestakalli: „Þau [testamentinj verða vist þegin með ánægju, og verða það alt börn af . . . (þ. e. úr allra afskektustu bygðinni), sem hreppa, og eru alveg sjálfkjörin til þess, bæði sökum fátæktar og einuig sem verðlaunabækur, þvi að þau eru langbest að sér f kristn- um fræðum, þótt lítið sæki þau skólana okkar. Gamlir og greindir bændur þar eru einkar vel lagaðir til að uppfræða börn, en ómögulegt er að koma því inn hjá þeim, að aðrar fræðigrein- ar séu nauðsynlegar. Jú, skrift og reikningur megi vera með, en landafræði, saga og náttúrusuga só einskisvert prjál. Gamall mað- ur og greindur kvað svo að orði við mig í fyrra, er við áttum tal um uppfræðslu barna nú í seinni tíð, að allar þessar veraldlegu

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.