Nýtt kirkjublað - 01.05.1915, Blaðsíða 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ
imnastiginn.
Þú hyggur oft i hrygð og neyð
að himin guðs sé vandi að finna.
En Herrann bjó þér himinleið
um hjörtu bræðra og systra þinna.
S. V.
JJm megjarsonernið.
(Ur „Tankar och frágor“ eftir Pontus Wikner).
Þegar eg nú hugsa til hins undursamlega í jarðneskri
framkomu þinni, þá ætla eg mér sízt þá dul, að geta í ein-
stökum atriðum dregið takmarkalínuna milli náttúrlegs ogyfir-
náttúrlegs í þessu. Eitt er eg þó sannfærður um: í lífi þínu
bar ekkert það við, sem rauf virkileg náttúrunnar lög, sem
að mínu viti eru ekki annað en birting vilja guðs, að því
er náttúruna snertir. En það er trúa mín, að náttúrulögin
heimili yfirráðum persónuleikans yfir náttúrunni og þá ekki
sízt þeirrar persónu, sem i alveg sérstökum skilningi er send
af guði, margfalt meira svifrúm, en náttúruvísindin vilja kann-
ast við enn sem komið er. Það verður hlutverk samvizku-
samra náttúrufræðinga að greiða betur og betur frarn úr þeirri
spurningu. Hvað snertir afstöðu sjálfs mín við þig, þá skift-
ir þetta engu. Að vísu verður því ekki neitað, að þessi spurn-
ing skiftir vísindin allmiklu, og að svo getur verið ástattfyrir
mörgum, að glati þeir trúnni á eitt eður annað undursamlegt,
sem í frásögur er fært um þig, þá eigi þeir á hættu að veikl-
ast líka i trúnni á sjálfan þig. Að kasta steini á þá fyrir
það er mjög fjarri skapi mínu. Eg verð og við það að kann-
ast, að engu því liafi verið ofaukið, sem fram við þig kom
í þessu lífi, alt frá því, er þú varst getinn í móðurlífi, og til
hinztu stundar þinnar. Alt það, sem fram við þig kom, hlaut
svo að vera og gat ekki öðruvísi verið. Annars hefði það
ekki verið sönn auglýsing þess í tímanum, sem þú ert að
eilífu. Hafi þessvegna alt hið undursamlega, sem um þig er
skráð af guðspjallamönnunum, átt sér stað í raun og veru,