Nýtt kirkjublað - 01.05.1915, Blaðsíða 15

Nýtt kirkjublað - 01.05.1915, Blaðsíða 15
NÝTT KIRNJUBLAÖ 111 fljóti ísland þá með, og fúi meira jafnstæði, er fullveldi ann- ara Norðurlanda skerðist að nokkru við ríkjasambandið. — Annars býsna skert þetta fullveldi hinna smærri ríkja. — Veit eigi beint, hvort nokkur stórþjóðin hremdi okkur. Bretar mundu það vart öðrum þola. En upp mundu leyni- agentar kaupa góða firði — nokkur jarðaverð — og koma þar upp veiði og valdastöðvum. Mundi oss þá þykja þrengjast fyrir dyrum, og fáar fýsilegar hugsanir fylgja þeirri bygging landsins. Veikrar trúar er eg um það að tvö heimsveldi eða fleiri — t. d. Bandaríkjamenn og Bretar — vildu saman leggja og geyma oss eins og kongsgersemi. Bretar eru vitrir og vænir sínum útlöndum, þeim er eru af brezku kyni, eða vænleg eru að verði brezk. Þá eru og verða útlöndin hold af þeirra holdi — sjálft heimsdrotnunar- kynið, jafnrétta. Horfir öðru vísi við með annarlegri tungu. Stillingarvitið, að við þurfum að láta oss nægja, meðan má, sjálfstæðið á borði. Bíðum eigin þroska og breyttra kringumstæðna að fá líka í orði. Eitt veit eg vera í margra huga, að ekki sé úrhendis að hafa skilnaðinn sem keyri á Dani. Það er kanske eitthvað vit í þeirri pólitík, en illa á hún við mig, að halda skilnaði fram, nema því aðeins að maður þá vilji hann. Frjálst um að tala frá báðum hliðurn. Það er hygginda og hagsmunamál fyrir öllu. En svo er það líka tilfinninga- mál. Og svo er um mig, að þó að frændur vorir á Norður- löndum hafi oft verið minnisdaufir á jrað, að vér værum ein sérþjóðin í hópnum, og ætlum nokkuð í að vera það, þótt fámennir værum, þá vil eg eigi að því stuðla, sem kynni að slíta tengslin við þau, og færa fjær þá von, að verða með tímanum sérstæð og jafnrétta sambands-systurþjóð með þeim. Athugasemd við mál og mállýti. — Góði vin! — í>ú getur í síðasta bl. (16/i) um mállýta-kver Jóns heit. Jónassonar. Eins og þú segir er margt gott í því, en sumt líka rangt. Alraugt er það t. d. er J. J. segir, að „fýr- spýta“ só dönskusletta (í st. f. eldspýta). „Pýrspýta11 er altítt um alt land, og eg nefni t. d. með ásetningi „fýrspýtur11 í „Viðskifta- fræði“ minni (9. bls.), aðeins til að sýna, að orðið só góð og gild

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.