Nýtt kirkjublað - 15.05.1915, Qupperneq 3
NÝTT KIRKJUBLAÐ
115
ekki verið ofsögum af því sagt, eftir ræSum þessum að dæma,
því að mörgu leyti mega þær heita stórmerkilegar. Það er
oft að íslenzku prestunum er brugðið um deyfð og vanafestu
og fleira þesskonar. Það er ekki hér að sjá. Kæður þessar
eru fullar af lífi og fjöri, krafti og kjarna, brennandi áhuga
og helgri vandlætingu. Höfundurinn hefir verið eldheilur
áhugamaður um alt, og eftir því einarður og skorinorður“ ...
Ymislegt er einkennilegt við ræður þessar. Eitt er það,
að þær lúta meira að veraldlegum efnum og hversdagslífinu,
en flestar samkynja ræður, sem birzt hafa á prenti á is-
lenzku . . .
I annan stað er j)að einkennilegt við ræður þessar, að
höf. talar einkum til skynseminnar, samvizkunnar og viljans,
en miklu minna til tilfinningarinnar eða hjartans . . . Enn er
það einkennilegt, að höf. fer í ræðunum sjaldan út fyrir þetta
líf, enda oft ekki þá, er andi hans kemst mest á flug . . .
Hann gefur hinar glæsilegustu vonir um framtíðina, vonar að
alt muni fara batnandi, eftir því sem tímar líða, unz jörðin
verður aftur að nokkurskonar Paradís, að minsta kosti standi
það í valdi mannanna sjálfra að gjöra hana þannig, og aðal-
ráðið til þess sé frelsi, samfara því að beita skynseminni
réttilega“.
Fyrst mun síra Páll hafa vakið athygli á kenningarmáta
sínum, er páskaræða hans kom út (1888). Afneitaði hún ei-
lífri glötun. Voru menn þá lítt vanir „nýrri guðfræði“.
Enn má mikla kynning fá af síra Páli heitnum af bréf-
um hans til Þorsteins heitins læknis i Vestmannaeyjum. Eru
bréfin rituð frá Gaulverjabæ hin fyrri ár síra Páls þar. Birt-
ust þau í 8. árgangi Óðins. Finst lionum enn daufara félags-
lífið í Flóanum en nyrðra, og er harðorður og beiskur: „Eg
brenn af áhuga fyrir viðreisn lands og ])jóðar“. Þaðan koma
allar vandlætingarnar.
Barnaskóla kom sira Páll á i Gaulverjabæ, og vígði með
20 börnum í desember 1881, og stóð með góðum blóma hans
daga. Eigi síður bar hann fyrir brjósti alþýðuskólann á Eyr-
arbakka, sem þá var á prjónunum, en kafnaði í aumingja-
skap og úrræðaleysi.
Agætur kennari var sira Páll talinn, og bjó hann marga
pilta undir skóla Hjaltabakkaárin, og gafst vel. Má nefna til