Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Page 10

Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Page 10
T í M A R I T I Ð N A Ð A R M A N N A Spánarför. Eftir Jón Halldórsson. (Frh.) Sunnudaginn 28. júlí, árla morguns er komið til Cadiz. Ekki var tími til þess að skoða þá fögru og söguríku borg, en viða má sjá merki þess, að athafnamenn hafa numið þar staðar. Einna Ijósustu merkin eru varnarmúrar, 10— 15 m. háir og alt að 3 m. þykkir, til þess að standast öldurót Atlantsliafsins, sem umkringir borgina. Talið er, að hún sje ein af allra elstu borgum Evrópu, frá árinu 1100 fyrir Krist, og sje nú ekki svipur hjá sjón við það, sem áður var, og er það síst að furða eftir þær árásir, sem hún liefir orðið að þola vegna stjórnar- byltinga og styrjalda stórveldanna öld eftir öld; en ennþá stendur liún fögur og tignarleg í augum ferðamannsins. Kl. 7xh var morgundrykkjar neitt og pappa- askja með smurðu brauði afhent hverjum far- þega til morgunverðar. Miðdagsverðar skyldi neitt á skipsins kostnað í Sevilla. Sjerstök járn- brautarlest (13 vagnar) beið tilhúin uns haldið var af stað kl. 9^h í heiðhirtu og blíðu. Á leiðinni var fátt markvert að sjá nema salt- vinslu, sem ekki virtist margbrotin. Á nokkuð stóru svæði er jörðin stungin upp í 1—2 feta dýpt, en göngustígar skildir eftir á milli reit- anna. Sjó er veitt í þessa uppstungnu reiti og lokað fyrir innstreymið þegar nóg er komið. Vatnið gufar síða upp af sólarhita en saltið verður eftir eins og ísbreiða. Það er svo á sín- um tíma brotið upp og malað; síðan er því mok- að i hrauka uns það er lireinsað og flutt til hafnarbæjanna og selt þar sem markaðsvara. Eftir nær 4 tíma ferð er komið til Sevilla. Nú þurfti að nota tímann vel til að sjá þá fögru borg, sem talin er að vera önnur Florenz að fegurð og hstum, en tími til kl. 9 að kvöldi. Fyrst var farþegunum skift niður í deildir, um 50 manns í hverri, og leiðsögumaður með hverri deild. Fyrst var gengið um aðalstræti borgarinnar til þess að sjá byggingarnar, búð- irnar og götulífið i gamla hluta bæjarins. Sið- an var neitt morgunverðar á veitingahúsi og að honum loknum var farið að skoða dóm- kirkjuna miklu, „Kathedralen“. Hún er talin ein af stærslu og merkustu dómkirkjum í heimi, bygð 1402 til 1415 í gotneskum stíl. I hana var kvenfólki ekki leyfð innganga með bera hand- leggi eða berhöfðað; i kápur varð það að fara og setja Iiatt eða klút um höfuðið, áður en það fjekk leyfi til þess að koma í þennan helgidóm. Þegar inn kom, mátti líta kvenfólk á bæn með börn sín með sjer, og kórdrengi í kirkju- skrúða sínum fara i flokkum frá einu altarinu til annars, en þau eru talin 83. Lang tilkomu mest er háaltarið, bygt 1482. Taldar eru vera 37 kapellur í kirkjunni og 96 gluggar með marg- litum glerjum, sem lýsa hana með svo undur- fögrum blæ, að liver sem nýtur þeirrar sjónar, mun telja sig í sönnum heligdómi. Þá eru þar stór og mikil minnismerki, meðal annara Col- umbusar. Er það sem fjórir þjóðliöfðingjar beri stórt lok af líkkistu, og er sagt að bein lians sjeu geymd í þvi. Merkilegar siðvenjur eru hafðar þarna á stór- hátíðum, meðal annars sú, að kórdrengir eru látnir dansa hátiðardansa fyrir framan altarið sem einn lið i kirkjuathöfninni. Vjer nemum staðar og lítum yfir þessa stóru kirkju, eins og dýrindis safn af sögulegum minnismerkjum, sem ýmsir andans menn hafa eftir látið í ríkum mæli á liðnum öldum, og sem gefa hugmynd um atburði úr æfisögu þeirra, i bliðu og stríðu. Vjer dáumst að þeim stórmennum, sem hafa helgað henni fegurstu liugsanir sínar og dýrustu verk sín. Úr kirkjunni er farið i turninn „Giralda“, sem stendur við hlið liennar, 114 metra hár, og* bygður 1196 í gotneskum og mauriskum stíl, slórt og mikið listaverk. Hann gnæfir yfir allar aðrar byggingar, með klukknaport efst uppi, og boða þær kirkjulegar athafnir þegar þeim er hringt. Líðandi gangur er upp eftir turninum [ 22 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.