Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Síða 17

Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Síða 17
T 1 M A R I T IÐNAÐARMANNA hann klæðum ofan að beltisstað, þurkaðu vand- lega froðu, slefu (og eins marhálm, þang, mold og leir) frá vitum hans, snýttu honum, farðu með klútvafinn vísifingur þinn upp i hann og aftur í kok, og sópaðu innan á honum kverk- arnar og munninn (froða -— óhreinindi) taktu út úr honum gerfitennur ef nokkrar eru, og ýttu tungunni fram á við um leið. Legðu nú manninn á grúfu (sjá 39. mynd) þannig að vangi hans liggi á öðrum hvorum framhandlegg hans, svo að vitin sjeu frí, láttu 39. mynd. Þrýst á brjóstholið, útöndun. (Sundbók). samanbrotna ábreiðu eða eitthvað þvíl. undir kviðinn á honum, legstu svo á hnjen,klofveg yfir manninn, legðu hendur þinar, sína hvoru meg- in við hrygg sjúklingsins neðarlega á rifjaliylk- ið, þannig að þumalfingur þínir sjeu upp með hryggnum, sinn hvoru megin, og sje 2—3 þuml. bil á milli þeirra, en hinir fingurnir út á síðunum, sem gleiðastir, til þess að dreifa átakinu. Svo þrýstir þú brjóstholinu saman með því að leggjast með þunga þínum áfram á hendur þínar i svo sem 5 sekúndur eða langt andartak, siðan ljettir þú þrýstingnum af með því að rjetta þig upp sbr. 40. mynd en liefir 40. mynd. Þrýstingnum Ijett af. innöndun. (Sund-b). liendurnar áfram á sama stað, þrýstir siðan aftur, sleppir, þrýstir o. s. frv. á víxl sem svarar 12—15 sinnum á minútu. Láttu einhvern halda á úri svo að þú sjáir á það, eða láttu hann öllu heldur benda þjer með hendinni, (upp og niður, líkt og slegið væri hljóðfall, með sama hraða og hans eigið andartak) og vertu honurn samferða með þínar hreifingar, svo að þessar öndunarlireifingar verði með sem jöfnustu millibili. Við þrýstinginn mink- ar ummál brjóslliolsins, lopt pressast út úr þvi (útöndun) en þegar honum ljettir af sækir rifjahylkið sig aftur eða þenst út, og þá sogast lopt inn í lungun (innundun). Þelta er svipað eins og þegar þrýst er á svigagjörð, og þrýst- ingnum ljett af annað slagið, svo þrýst aftur, ljett af o. s. frv. á víxl, með jöfnum milli- bilum. Þessu er nú lialdið áfram þangað til úr sker, og liöfð mannaskifti ef þarf. — Það er rjett að liafa stöðuga gát á því að vitin sjeu frí, og fara jafnvel öðru hvoru upp í sjúkling- inn með fingurinn (— gott að vefja um hann vasaklúl -—) lielst ofan í kok, og sópa með honum slim og froðu úr munni og koki sjúk- lingsins og ýta tungunni fram á við um leið. Ef lífgun tekst, fer smátt og smátt að heyrast dálítið snörl og sog, líkt eins og þegar maður tekur andann á lofti, en ekki má liætta fyrir það, heldur halda áfram með sama gangi, 12— 15 sinnum á mínútu. -— Smámsaman fara nú sogin að verða tíðari og smá-dýpka, andlits- fölvinn smáminkar líka, og roði fer að færast í kinnarnar. Gott er að útlimir sju nuddaðir eða stroknir upp á við, á leið lil hjarlans, jafn- framt þessum öndunartilraunum, að svo miklu leyti, sem þessu verður við komið, (helst um ganglimina) og þykir ágætt ef hafðir væru til þess heitir dúkar, enda ætli að svifta mann- inum úr brókunum. Það gefst líka vel að strjúka vel um iljarnar. Loks þegar sjúkling- urinn er farinn að draga andann sjálfur, reglu- lega, svo sem 15—16 sinnum á mínútu og hjartaslögin orðin hæfilega fjörug og regluleg, 60—70 slög á mínútu, þá er óhætt að fara að hugsa til að koma honum í rúm, færa hann úr þeim votu flikum, sem hann enn kann að vera í, ef hann hefir ekki verið fullafklæddur áður, þurka kroppinn vandlega með þurrum, heitum dúkum, ef til væru, strjúka livað eftir [ 27 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.