Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Side 24

Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Side 24
T í M A R I T IÐNAÐARMANNA Reykjavíkur Apótek Þorsteins Scheving Thorsteinsson, hið nýja, í fyrv. húsi Natan og 01- sens, var opnað 11. febr. siðastlið- inn. Þegar Þorsteinn lyfsali keypti það hús og ákvað að flytja lyfja- búðina þangað þurfti auðvitað að breyta þar afarmiklu. Hafa þær breytingar allar verið gerðar af innlendum mönnum og er þar um vinnu að ræða, sem skiftir tugum þúsunda í vinnulaun fyrir íslenska iðnaðarmenn. Teikningar gerði Sigurður Guð- mundsson húsameistari og hafði jafnframt eftirlit með fram- kvæmd verksins. Múrsmíði alla annaðist Jens Eyjólfsson bygg- ingarmeistari, skápar, borð og aðrir innanstokksmunir voru gerðir á vinnustofu Þorsteins Sigurðssonar húsgagnasmíðameist- ara, og sýnir fyrri myndin borð og hillur í afgreiðslusal apóteksins. Seinni myndin sýniranddyrishurð- irnar og útskurðarmyndir á þeim, gerðar af Asmundi Sveinssyni myndhöggvara. Einar Gislason málaði, vjel- smiðjan Hjeðinn setti upp lyftuna, eimingartæki o. fl., er málmsmíði við kom. Gúm á gólf og þrep lagði Jóhannes Björnsson, veggfóðrari, rafleiðslur Jónas Guð- mundsson frá Raftækjaverslun Jóns Sigurðssonar og liitaleiðslur Ilelgi Magnússon & Co. [ 32 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.