Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Blaðsíða 26

Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Blaðsíða 26
Stóri salurinn, sjeð í litla salinn og fatageymsluna. Frá Vestmannaeyjum. Seinni liluta vetrar liafa Vestmanneyingar starfað að því, að koma skipulagi á mál sín. Hafa þeir nú stofnað iðnaðarmannafjelag og kosið iðnráð og er hvorttveggja tekið til starfa. Set jeg lijer kafla úr brjefi frá formanni f jelags- ins, Sveinbirni Gíslasyni byggingarfulltrúa, sem mjög hefir unnið að þessum málum. Brjefið er dags. 1. mars 1930. „Nú hefur iðnaðarmannafjelag verið stofnað hjer í Vestmannaeyjum og samhliða þvi sjer- stakt iðnráð fyrir Vestmannaeyjakaupstað. Fyrsta verk þessa iðnráðs var að hlutast til um, hverir iðnbrjef fái af þeim iðnaðarmönn- um, sem ekki hafa sveinsbrjef, og hjer er fjöldi iðnaðarmanna, sem aldrei hafa gert sveins- stykki. Bæjarfógeti liefur þegar tjáð sig fúsan til samvinnu um veitingu iðnhrjefanna. Þó að tvö ár sjeu liðin síðan iðnaðarlöggjöfin nýja gekk í gidi, þá liefur liún verið sem dauð- ur bókstafur hjer í Vestmannaeyjum og í engu komið til framkvæmda. Það lætur að líkum, að víðar sje henni illa framfylgt, þar sem stjett sú, sem hlut á að máli, iðnaðarmenn, hafa ekki beitt sjer fyrir því, að ákvæðum þessara laga væri fylgt. Iðnaðarlöggjöfin mun vera til orðin fyrir til- verknað iðnaðarmanna í Beykjavík og þeirra manna annara, er hest liafa fylgt þeim að mál- um. — Vera má, að iðnaðarmannafjelög úti á landi eigi og þátt í því. Jeg þykist vera viss um það, að þessir menn hafi gert sjer fulla grein fyrir því, hversu lög- unum beri að beita fyrst í stað í hæ eins og Vestmannaeyjum; ennfremur hýst jeg við því, að til þess hafi verið ætlast, að fult samræmi væri á kröfum þeim, sem gerðar væru til iðn- aðarmanna alstaðar á landinu, til þess að þeir mætti öðlast iðnhrjef. [ 34 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.