Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Side 27
T 1 M A R I T
IÐNAÐARMANNA
Nú fyrst eru iðnaðarmenn í Vestmannaeyjum
að vakna til meðvitundar um það, að til þeirra
ná lagaákvæði, sem ekki megi lengur vanrækja
með öllu. — En þeir eru óneitanlega á eftir
timanum og gera nú fyrst gangskör að því, sein
átti að gerast i hitteðfyrra eða fyr.
Eins og þjer munið, hafði komist til tals, að
Iðnráði Reykjavíkur yrði falið að gera tillögur
um það, hverjir iðnbrjef fengju hjer, eftir
skýrslum þeim er þeir leggja fram; en að því
ráði var ekki horfið. — Svo mikinn hjeraðs-
metnað hafa eyjaskeggjar, að þessu máli vilja
þeir sjálfir ráða til lykta. Sú mótbára hafði og
við rök að styðjast, að Reykvikingar væri ekki
nægilega kunnugir staðháttum hjer.
— Hjer eru nokkrir menn, sem árum saman
hafa unnið að skipasmíði og eru taldir sæmilega
færir i sinni grein. Enginn þeirra hefir sveins-
brjef og líklega hafa fæstir þeirra lært teikn-
ingu. — Þó byggja þessir menn vjelbátana i
Vestmannaeyjum, hvern á fætur öðrum, —
helstu framleiðslutækin.
Einn fremsti skipasmiðurinn var valinn í
iðnráðið. Hann hefir unnið við þessa iðn hátt á
annan tug ára og þykir vera hagur vel.
— Nú er flest sumur svo mikið bygt, að tveir
cða þrir múrarar anna ekki allri múrvinnu;
en það er fyrst og fremst dýrt að fá múrara úr
Reykjavik, og auk þess hafa þeir verið lítt fá-
arilegir síðustu misserin. Af þessum ástæðum
verður líklega erfitt að standa á móti því, að
fleiri fái leyfi til þess að stunda iðn þessa, en til
mála gæti komið, ef aðslaðan væri betri. Þó
mætti slá þann varnagla, að þetta heyrði undir
18. gr. iðnlaganna.
— I iðnaðarmannaf jelagið eru þegar gengnir
35 menn; sennilegt er, að þeir verði um fimtíu.
Jeg var kosinn formaður fjelagsins, Ólafur
Ólafsson járnsmiður er ritari og Magnús Rergs-
son bakari er fjehirðir.
Varastjórn skipa: Formaður: Raldvin Rjörns-
son, gullsmiður, ritari: Haraldur Eiríksson, raf-
fræðingur og fjeliirðir: Magnús Isleifsson, trje-
smiður.
Þessir menn, níu að tölu, eru í iðnráðinu:
Magnús Isleifsson, trjesmiður,
Einar Magnússon, járnsmiður,
Engilbert Gíslason, málari,
Raldvin Björnsson, gullsmiður,
Haraldur Eiríksson, raffræðingur,
Magnús Bergsson, bakari,
Snorri Tómasson, skósmiður,
Gunnar M. Jónsson, bátasmiður og
Sveinbjörn Gíslason, múrari.
Eftir er að kjósa formann iðnráðs og ritara.
Fjelagssamþyktin var að mestu sniðin eftir
lögum Iðnaðarmannafjelags Reykjavikur.
Eyðublöð hafa verið prentuð og útbýtt meðal
iðnaðarmanna undir skýrslur þeirra viðvíkjandi
iðn sinni.
Eftir er að vita hvort liægt verður að halda
uppi námsskeiðum eftirleiðis fyrir unga iðn-
aðarmenn, sem ekki hafa numið teikningu.
Jeg vona, að fjelagið eigi sjer framtíð fyrir
liöndum og geri sjer far um að efla fræðslu
uppvaxandi iðnaðarmanna“.
Sveinbjörn Gislason.
Kveðja.
Eftirfarandi heillaóskahrjef hefur Iðnaðar-
mannafjelagi Reykjavíkur nýlega borist.
Oslo, 21. juni 1930.
R eykj avik Hándverkerforening,
Reykjavík.
Ved det islandske rikes og altings 1000 árs
fest, bringer vi váre islandske frender og kol-
leger en hjertelig hilsen fra den norske hánd-
verkerstand. Til denne hilsen knytter vi ogsá
önsket om held og fremgang i kommende tider
for det islandske folk og for landets hánd-
verkere i særdeleshet.
Norges Hándverkerforbund.
(Sign.) Arthur Berger,
formann. (Sign.) Viclor Prgdz.
íslenskir iðnaðarmenn þakka þessa hlýlegu
kveðju og þá óvæntu hugulsemi, sem þessi
frændþjóð vor ein allra hefur sýnt oss. Er það
öllu meiri hugulsemi og kurteisi, en íslendingar
sjálfir hafa sýnt iðnaðarmönnum við nýafstaðin
hátiðahöld. Að visu var formanni Iðnráðs
[ 35 ]