Fréttablaðið - 10.11.2009, Blaðsíða 10
10 10. nóvember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Hengjum
okkur ekki í
smáatriði!
Vinátta – alveg
óháð kerfi.
Auglýsingasími
– Mest lesið
FISKVEIÐAR Búist er við að sjávar-
útvegsráðherra tilkynni í dag
ákvörðun um heildarafla af
íslenskri sumargotsíld.
Hafrannsóknastofnunin telur
að allt að 40.000 tonna veiðar hafi
ekki umtalsverð áhrif á stofninn
þótt óvissa sé um ástand hans
og horfur vegna sníkjudýrs sem
herjar á síldina. Talið er að um 40
prósent af hrygningarstofninum
muni drepast úr sýkingunni fyrir
hrygningu næsta sumar. Í fyrra
voru veidd 152.000 tonn af sumar-
gotsíld og 159.000 tonn árið áður.
Í sumar frestaði Hafrannsókna-
stofnunin því að gera tillögur um
hámarksveiði á hefðbundnum tíma
vegna óvissu um ástand stofnsins.
Niðurstöður úr bergmálsmæling-
um, sem gerðar voru á síldargöng-
um við Breiðafjörð seinni partinn
í október, hafa hins vegar leitt í
ljós að stofninn er stærri en fram
kom við sambærilegar mælingar í
sumar og talsvert stærri en búist
var við, að sögn Guðmundar Ósk-
arssonar, síldarsérfræðings hjá
Hafrannsóknastofnuninni.
Við venjulegar aðstæður eru
veidd um 18 prósent úr hrygningar-
stofni, sem mælist nú 465.000
tonn. 40.000 tonna kvóti er langt
undir aflareglunni, eða um 8,6
prósentum af hrygningarstofni.
„Það er erfitt að fylgja aflareglu
núna, segir Guðmundur. „En við
teljum að stofninn ætti að þola
þessar veiðar.“
Stofnunin leggur hins vegar
áherslu á það í ráðgjöfinni að
veiðinni verði stýrt svo að hægt
verði að fylgjast með þróun sýk-
ingarinnar með því að taka sýni
af öllum helstu veiðisvæðum yfir
hefðbundinn vertíðartíma. Guð-
mundur sagði að enn sem komið
er væri sýkingin ekki farin að ber-
ast í hold síldarinnar og meðan svo
er hafi hún lítil áhrif á nýtingar-
möguleika aflans. Öll síldin fari í
manneldi.
Í október var gefinn út 15.000
tonna rannsóknarkvóti, sem nýttist
til fyrrgreindra rannsókna. Enn er
verið að veiða úr þeim kvóta þótt
skipin bíði ákvörðunar ráðherra
um auknar veiðar.
Ásgrímur Halldórsson SF var
að veiðum rétt utan við höfnina í
Stykkishólmi þegar Fréttablaðið
hringdi um borð síðdegis í gær.
Ásgrímur Ingólfsson skipstjóri
sagðist búinn að fá 300 tonn í
tveimur köstum og sagði að aflinn
hentaði vel í frystingu. Hann sagð-
ist vona að sjávarútvegs ráðherra
heimilaði veiðar umfram ráðlegg-
ingu Hafrannsóknastofnunar um
40.000 tonn. „Það þarf að líta á
fleira en ráðgjöfina, bæði ástandið
í þjóð félaginu og annað,“ sagði
hann. peturg@frettabladid.is
Erfitt að fylgja afla-
reglu síldarkvótans
Hafró leggur til 40.000 tonna veiðar af sumargotsíld í ár. Talið er að 40 prósent
af stofninum drepist vegna sníkjudýrasýkingar fyrir næsta sumar. Búist er við
að sjávarútvegsráðherra tilkynni í dag heildaraflann af íslenskri sumargotsíld.
VIÐ BRYGGJU Ásgrímur Halldórsson SF frá Hornafirði var við síldveiðar í skerjunum
utan við höfnina í Stykkishólmi í gær og biðu skipverjar eftir ákvörðun ráðherra um
leyfðan hámarksafla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON