Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1931, Page 7

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1931, Page 7
cTímarit <3ðnaóarmanna Gefið út af Iðnaðarmannafjelaginu í Reykjauík, 1. hefti Jan.—Mars. 5. árg. f HERBERT M. SIGMUNDSSON PRENTSMIÐJUEIGANDI. Einn af bestu iðnaðarmönnum þessa bæjar, Herbert M. Sigmundsson, stofnandi og eigandi prentsmiðjunnar „Herbertsprent“, andaðist þriðjudaginn 14. apr. úr blóðfalli, eftir 2 daga legu. Hann var fæddur lijer í Reykjavík 20. júní 1883, sonur Sigmundar Guðmundssonar prentsmiðjueiganda, bins ágætasta manns. Prentlist lærði hann i ísafoldarprentsmiðju og sigldi síðan til Damnerkur að námi loknu til frckari fullkomnunar í iðn sinni árið 1902. Til landsins kom bann aftur rúmum 2 árum síðar og varð þá þegar yfirprentari í ísafoldarprent- smiðju, í jan. 1905, aðeins 21 árs gamall. Prent- smiðjustjóri yarð liann í Isafoldarprentsmiðju árið 1916 og framkvæmdarstjóri bennar 1919 til 1929, er liann setti á fót eigin prentsmiðju í Bankastræti 3. Vorið 1930 tók hann að sjer prentun þessa tímarits, og hefur það verið prentað þar síðan. Herbert heitinn var fjelagi í Iðnaðarmanna- fjelaginu í Reykjavík lengst af eftir að liann kom úr utanför sinni. Hann var góður fjelags- maður, kátur og skemtilegur svo orð fór af, vinsæll og vinfastur. Hafa samverkamenn hans svo látið um mælt, að varla gæti betri verk- mann við prentun en hann, þvi að liann liafi haft alt það til að bera er til þess þurfti: Næman smekk á áferð og útliti, áliuga og alorku til af- kasta, kunnáttu og leikni í iðninni, og liagsýni og stjórnsemi svo ekkert gerðist til spillis. I Fjelagi ísl. prentsmiðjueigenda starfaði Her- bert mikið og var form. þess siðastliðið ár. Bar bann það fjelag og hag þess mjög fyrir brjósti, sem og hag og sóma stjettar sinnar yfirleitt. Og þótt hann liefði sig ekld mjög frammi um iðnaðarmál alment, þá var hann jafnan tillögugóður um þau mál og liinn nýt- asti liðsmaður. Herbert beitinn var á besta aldri, fullur fjöri og starfsþrótti, þegar liann dó. Hans er saknað sárt af öllum er hann þeklu. Sofðu í friði vinur!

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.