Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 8

Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 8
6 VIKUBLAÐIÐ Fyrir kvenfólkið: Fyrirmyndar eldhús Norska Húsmæðrasam- bandið hefur samið um það við margar verksmiðjur um land allt að smíða eldhús- skápa af þessari gerð, og ýmsa hluta þeirra sérstak- lega. Sambandið hefur einnig teikningar til sölu við mjög lágu verði. 1. mynd til vinstri: Upp- þvottabekkur. Á sýningunni voru ekki vatnshanar né ljósastæði sýnd. Það er ekki skápur undir vaskinum (eld- húsþrónni). Þess vegna get- ur húsmóðirin setið á meðan hún þvær matarílátin o fl. Eins og sjá má á 2. mynd er eldhússtóllinn allhár, og vit- anlega miðaður við hæð bekkjarins. Yfir eldhús- * é- 3. Mynd: Skápur fyrir potta. Yfir honum er þerrigrind. 1. Mynd: Uppþvottabekkur. Skólpfata, þerri- grind, leirtausskápur. gat að líta fyrirkomulag í tveim fyrirmyndar eldhús- um. Hér birtist mynd af öðru þeirra. Kirsten Sending Larsen arkitekt, teiknaði þessa gerð eldhúsa fyrir ,,Norges Hus- morforbund“, og í samráði við „eldhúsgerðanefnd“ sam- bandsins. Hlutirnir eru „laus- ir“ og er því hægt að hafa þá þar sem haganlegast er. Skáp- arnir eru hentugir, og nýtist vel rúm þeirra. Það er kostur, að smám saman er hægt að kaupa ýmsa hluta þeirra. Lagtækir menn, eða smiðir, geta sjálfir smíðað skápana, ef þeir hafa teikningar. 2. Mynd: Eldavél, bekkur, skápur. T ýmsum menningarlöndum brjóta sérfróðir menn heil- ann um það, á hvern hátt eigi að ganga frá íbúðum, og ekki sízt eldhúsum, til þess að öllu sé sem haganlegast fyrirkomið. Nefndir eru skip- aðar og sýningar haldnar í þessu augnamiði. í Noregi og Svíþjóð hefir á síðustu árum mikið verið gert, til þess að fræða menn um heppilega tilhögun eða fyrirkomulag á öllu innan húss. Einnig hefur Húsmæðra- sambandið norska látið sig þetta mál miklu skipta. Á sýningu, sem haldin var í Osló á síðastliðnu hausti,

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.