Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 9

Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 9
VIKUBLAÐIÐ 7 bekknum er skápur fyrir bolla og glös. Þessir skápar eru misjafnlega breiðir (frá 49—99 cm). Öðru megin við eldhús- bekkinn er skápur fyrir ryksugu, straujárn, fötu (á hjólum) sóp o. fl. Breidd þess- ara skápa er frá 49—59 cm. í nánd við eldavélina er skápur til að geyma í potta. Yfir honum er annar skápur (þerriskápur). Hinum megin við eldavélina er þægilegt borð með skáp til þess að geyma í nýlenduvörur og krydd. Þar næst kemur mat- arskápurinn, sem þarf að hafa loftræstingu. Hann er látinn standa til hliðar upp við vegginn. Eldhúsborðið er með skúffum hægra megin. Við þetta borð er hægt að sitja við sum eldhússtörfin. Á 3. mynd er konan að hand- leika handklæði í þerri- skápnum. Dýrasta hálsfesti, sem sög- ur fara af, er hálsfesti sú, sem Caligula keisari gaf Lollia Paulina konu sinni. Sam- kvæmt þeim heimildum, sem til eru um hálsfesti þessa, mun verðmæti hennar hafa verið frá seytján til tuttugu og tvær milljónir króna. ★ Ástæðan til þess, að Saló- mon konungur var vitrasti maður heimsins var sú, að hann átti svo margar konur. Þær gáfu honum svo mörg góð ráð. ÁHRIFAMIKIL ENSK KVIKMYND Framh. af 5. síðu. sannað, að hæst settu em- bættismönnum ríkisins gat skjátlast. Saklaus drengur hafði ver- ið grunaður um þjófnað, og dæmdur sekur, án þess að fullnægjandi rannsókn hefði fram farið í málinu . Að þrjátíu árum liðnum fékk leikritaskáldið Terence Rattigan áhuga á þessu máli. Hann fékk leyfi fjölskyldunn- ar til þess að semja leikrit um það. Pilturinn, sem á- kærður var, hafði fallið í Frakklandi í fyrri heimsstyrj- öldinni. Rattigan nefndi leikritið „The Winslow Boy“. En hið rétta nafn fjölskyldunnar er Arcker-Shee. Leikrit þetta fékk ágætar viðtökur er það var leikið í London og New York. Á Norðurlöndum, og að lík- indum víðar, var það leikið síðastliðið ár. En nú fyrir skömmu hefur verið lokið við að kvikmynda „The Winslow Boy“. Sir Al- exander Kordas London Film sá um upptökuna. Aðalpersónuna, Winslow- drenginn Bonnie, leikur fimmtán ára ný ensk kvik- myndastjarna, Neil North. í leikriti Rattigans, var mest áherzlan lögð á full- orðnu persónurnar. Stærsta hlutverkið er málfærslumað- Robert Donat sem málfœrslu- maðurinn. ur „Winslow“-feðganna, eða réttara sagt Archer Shee feðga. Að taka þetta mál að sér, var í flestra augum vonlaust verk. Lögfræðingur sá, er þetta tók að sér, hét Sir Ed- ward Carson. Var hann einn af beztu lögfræðingum Stóra- Bretlands. Hann er nú látinn. Robert Donat leikur hlutverk þessa ágæta manns og lög- fræðings. Er leikur hans með þeim ágætum, að sagt er að honum hafi sj aldan eða aldrei tekist eins vel eða betur. Hlutverk föðurins, sem er annað stærsta hlutverk í myndinni, er leikið af Sir Cedric Hardwicke. Er leikur hans sagður afar áhrifamik- iil. Þessi kvikmynd, sem er lýsing á lífi venjulegra enskra borgara, er verða fyrir óham- ingju af manna völdum, er meistaralega sviðsett af Anthony Asquith.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.