Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 13

Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 13
VIKUBLAÐIÐ 11 kæruleysi, heimsku, grimmd, hjónaskilnaði, rifrildi, úti- verur foreldra og drykkju- skap þeirra. Drengir þessir eru ekki allir frá fátækum heimilum. Einn drengjanna kom frá efnuðu heimili, og átti mennt- aða foreldra. Faðirinn ætlaði að ala Frank litla vel upp. En hann var alltoí strangur við drenginn. Til þess að hefna sín varð drengurinn óþægur í skóla. Frank hafði gaman af að teikna. Annað vildi hann ekki fást við. Honum var fengið það hlutverk, að skreyta vegg með myndum úr sögu Amer- íku í fornöld. En til þess að geta gert þetta, þurfti dreng- urinn að lesa sögulegar bæk- ur. Við það lærði hann að lesa og fór fram í sögu. Svo mikið fór honum fram í lestri, að það svaraði til þess, er börn almennt læra á tveim árum. Frank fékk mikið hól fyrir verk sitt. Það jók sjálfstraust hans og hann fór að tala á fundum. Sully var mikill vandræða- gripur. Hann var frá efnuðu heimili. Skólastýran tók hann á skrifstofuna. Hún lét hann gæta símans og fara sendi- ferðir. Þetta voru trúnaðarstörf, sem drengnum þótti heiður að gegna. Hann gleymdi því að vera óþægur. Sully varð ágætur drengur. Nú er hann giftur og á verk- smiðju. Georg hafði verið rekinn úr sex skólum. Skólastýran setti hann yfir mjólkina og skiptingu hennar. Hann sýndi samvizkusemi, sem ekki brást neinn dag. Hann hafði verið skapvondur. En fýlan gufaði burt. Er hann eftir eitt skólaár var spurður að því, hvers vegna hann hefði tekið þess- um breytingum, svaraði hann: „Já, ég skal segja yður ástæðuna. Þetta er fyrsti skól- inn, sem hafði þörf fyrir mig.“ Trúnaðarstörf koma mörg- um á réttan kjöl. Fyrst þótti skömm að því að ganga í „Skóla nr. 37“. En nú er þetta breytt. Frú Rashkis tók við stjórn skólans 1930. Frá þeim tíma hefur skólinn verið í miklu áliti, og margir drengir eru upp með sér af því að hafa verið í þessum skóla. Reglugerð eða kennslu- plan skólans er samin af beztu sálfræðingum og upp- eldisfræðingum Bandaríkj- anna. Vitanlega eru fjárfram- lögin ekki skorin við neglur. Það er illfært að búa til fyrirmyndarskóla með litlum tækjum. Til þess að nemendur nái vissum þekkingarforða, eru farnar ýmsar krókaleiðir. Námsefnið er tekið til með- ferðar í ákveðnum heildum. Hér skulu nefnd nokkur verkefni: Afburðamenn og konur í Ameríku. Saga iðn- aðarins í Ameríku. Hið amer- íska heimili. Mataræði. (Hér er einkum átt við U. S. A.). Drengirnir safna bókum, tímaritum og blöðum viðvíkj- andi verkefnunum. Einnig teikna þeir mikið af myndum í þessu sambandi. Um 15% af drengjunum stamar. Talfræðingur venur þá af því. Á skólafundum eru drengir, sem áður voru plága í hvaða skóla sem var, eins prúðir og virðulegir og dóm- arar í hæstarétti. Varla líður dagur án þess, að gamall nemandi líti inn til frú Rashkis, til þess að segja henni frá störfum sínum, kynna konu sína, sýna myndir af börnunum eða orðu, er hann fékk í heims- styrjöldinni fyrir frækilega framgöngu. Elsie Mc Cormic segist hafa verið stödd í skólanum, er undirforingja í sjóhernum bar að garði. Bar hann heið- ursmerkisband. Hann hafði barizt á Kyrrahafinu og sýnt mikið hugrekki, eins og allir þeir, er í hans herdeild voru. Frú Rashkis kynntist for- ingjann, sem gamlan nem- anda skólans, og drengirnir sungu flotasönginn með svo mikilli hrifningu að húsið hristist. En foringinn mælti: „Ég á ekki allan þennan heiður með réttu. Kennararnir ættu að fá hann. Marchisi dómari segir að glæpum unglinga myndi fækka ef margir skólar væru

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.