Vikublaðið - 10.02.1950, Page 4

Vikublaðið - 10.02.1950, Page 4
4 VIKUBLAÐIÐ með að neyta þess. — Að tíu mínutum liðrium hafði ungi maðurinn lokið við að borða. Hann reis á fætur, borgaði, gekk yfir gólfið og settist við borð ungu stúlk- unnar. Hún horfði forviða á hann. Augu hennar voru grá og skær. Hún sá að maðurinn var sviphreinn og vingjarn- legur. Hann mælti: „Fyrirgefið frekju mína.“ Hann var kurteis og röddin þægileg. „Þegar ég hef sagt yður er- indi mitt, vona ég, að þér fyr- irgefið ónæði það, er ég geri yður. Ég er blaðamaður við eitt kvöldblaðanna í London. Við birtum nú um skeið stuttan greinaflokk með fyr- irsögninni: Heyrt og séð í hressingarskála. Ég fer frá einum hressing- arskálanum til annars á mat- málstíma. Og þegar ég sé ein- hvern, sem ég á von á að hafi sögu að segja, gef ég mig á tal við manninn. Stundum fæ ég efni í góða grein. En þó kemur það fyrir að menn taka illa málaleitan minni, og ég fer svo búinn. Ég hef leyfi til að greiða eitt hundrað tutt- ugu og fimm krónur fyrir hverja frásögn.“ Unga stúlkan fjörgaðist við það að heyra nefndar hundr- að tuttugu og fimm krónur. Hún mælti: „Jæja, yður virðist ég muni hafa sögu að segja.“ Hann sagði: „Ég er viss um það. Ég hef setið og veitt yð- ur athygli. Viljið þér vera svo góð að segja mér sögu yðar?“ Hún ýtti diskinum frá sér, og hann sá að hún hafði ekki borðað nema helminginn af brauðhnúðnum. Varir henn- ar voru bleikar. Hún brosti dauflega og sagði: „Því skyldi ég ekki segja yður sögu mína? Ég hef mikla þörf fyrir peningana. Hefur nokkur neitað því að segja yður sögu sína, er þér hafið farið þess á leit?“ „Já. En þeir eru fáir.“ Hún mælti: „Kemur yður það vel, að fá efni í þennan greinaflokk?“ „Það er mjög þýðingar- mikið fyrir mig,“ svaraði hann. Hún horfði á hann, og sá að föt hans voru gömul og slitin og skyrtan upplituð. Hún mælti: „Þar sem ég get gert okkur báðum greiða með því að segja yður sögu mína, mun ég gera það. Það væri heimskulegt af mér að neita því. — Nei, þakka yður fyrir, ég reyki ekki.“ Svo fór hún að segja sögu sína. Hann hlustaði á frásögn hennar með mikilli athygli Sagan var á þessa leið: „Fyrir sex vikum var ég vélritunarstúlka á skrifstofu í City. Ég hef aldrei verið heilsuhraust. Og í vetur veiktist ég. Ég ofþreyttist. Þegar ég kom aftur á skrif- stofuna var mér tekið vin- gjarnlega, en sagt að ég fengi þar ekki vinnu framar.“ Hann tautaði: „Það var illa gert.“ „Ég vissi, að þetta yrði mér öriagaríkt. Það kom líka á daginn. Ég fékk hvergi vinnu. Þeir, sem ég bað um vinnu álitu, að ég þyldi ekki skrif- stofustörf. Ég hef lifað á pen- ingum, sem ég átti, allan þennan tíma. En nú eru þeir sama og allir eyddir. Þér getið sagt lesendunum, að ég eigi aðeins tvær krónur eftir.“ Hún þagnaði og dreypti á kaffinu. Það var orðið þungt loft í salnum. „Ég þekki mann, sem næst- um því heilt ár hefur beðið mig að giftast sér. Hann er mjög ríkur. En hann er kom- inn yfir fimmtugt. Mér virð- ist hann leiðinlegur og ekki við hæfi ungrar stúlku.“ Hún horfði á manninn eins og hún byggist við að hann játaði þessu. Svo hélt hún áfram frásögn sinni: „Ég hef neitað bónorði þessu allan þennan tíma. En til þess þarf þrek, þegar kaupið, sem ég hafði, var svo lítið. Það var ekki nema þrjá- tíu krónur á viku. Og matur- inn, sem ég hef keypt, hefur verið lélegur. í dag hef ég ákveðið að játast þessum roskna manni. Lífið hefur breytt skoðun minni á þess- um málum. Ég hef barizt gegn þessu eins lengi og mér var mögulegt. Hann ætlar í mánaðar ferðalag til útlanda. Hann leggur af stað innan

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.