Vikublaðið - 10.02.1950, Qupperneq 5

Vikublaðið - 10.02.1950, Qupperneq 5
VIKUBLAÐIÐ 5 skamms og fer til Miðjarðar- hafslandanna. Síðari hluta dagsins mun ég hringja til hans og segja honum, að ég muni giftast honum. Hann læ'tur mig þá fara með sér í ferðalagið, og þá mun ég fá fulla heilsu. Það er mín heit- asta ósk. Um annað hugsa ég ekki að sinni. Ég get það ekki.“ Hún hafði verið dauf í dálkinn, en fjörgaðist all- mikið, er henni kom í hug hvað hún mundi bera úr být- um við það, að giftast ríka manninum. Hún sagði: „Ég mun búa við alls- nægtir. Ég fæ að ferðast. Ég fæ falleg föt, skartgripi, hlusta á hljómlist. Ég fæ allt sem konur girnast. Hann til- biður mig. Ekkert mun hon- um þykja of gott handa mér. Álítið þér ekki, að lesendum blaðs yðar þvki þetta tölu- verðar fréttir? Þér ættuð að nefna greinina: „Það er ekki hægt að spyrna á móti auð- æfum í það óendanlega.“ Hann brosti ekki. Það var meðaumkun í svip hans og augnaráði. Hún hló og mælti: „Þér þurfið ekki að verða svo mæðulegur. Þér hafið vafalaust heyrt sorglegri sög- ur. Og það er ekki alltaf ríkur maður á bak við þær stúlkur, sem erfitt eiga uppdráttar.“ Ungi maðurinn sagði: „Ég þakka yður kærlega fyrir söguna.“ Að svo mæltu tók hann upp veskið, tók hundrað króna seðil, tvo tíu króna og einn fimm króna seðil og rétti henni. Hún sagði: „Ég þakka.“ Seðlana lét hún í pyngju, er hún tók upp úr tösku sinni. Taskan var óásjáleg. En það hressti hana mjög að fá pen- ingana. Hún varð miklu fjör- legri og roði kom í kinnarnar. Hún mælti: „Nú get ég borgað húsaleiguna. Ég átti ekki nema tvær krónur, eins og ég sagði.“ Hún brosti. Ungi maðurinn var alvar- legur. Hann mælti- „Erúð þér viss um, að það sé engin önn- ur leið en þessi, sem þér nefnduð? Mér er Ijóst, að ég á þar ekki hlut að máli. En það er alvarlegt skref, sem þér hafið í hyggju að stíga.“ Hún svaraði: „Ég hef ekki um neitt að velja. Ég þakka fvrir hluttekningu yðar.“ Hún benti þjónustustúlk- unni að koma og taka á móti borguninni. Hann stóð á fætur. Hann var hávaxinn og fríður, en fátæklega til fara. Hún rétti honum höndina og mælti: ..Það gleður mig að ég gat gert vður greiða. Hvað heitir blaðið. sem þér vinnið við?“ ..Kvöldblaðið. Sagan verð- ur birt að brem dögum liðn- um. Ég þakka yður kærlega fvrir að bér sögðuð mér sögu yðar. Ef það er eitthvað, sem ég get gert fyrir yður, þá segið mér það.“ „Hún svaraði: „Þér þurfið ekkert fyrir mig að gera. Ég þakka yður fyrir vinsemdina. Eftir að ég gifti mig verð ég ekki í neinum vandræðum. Þau kvöddust. Hann hneigði -w sig og fór. Unga stúlkan sat kyrr. Þreytu- og örvæntingarsvip- urinn kom aftur á andlit hennar. Að fjórtán dögum liðnum kom þessi unga stúlka inn í sama hressingarskálann. Hún var í nýjum fötum og fékk sér sæti við borð í nánd við dyrnar. Hún horfði með at- hygli á alla sem inn komu. Hún var auðsjáanlega að von- ast eftir að einhver sérstakur maður kæmi. Hún var ekki eins þreytuleg og örvænt- ingin var horfin úr svip hennar. En föl var hún yfir- litum. Svo kom ungi, dökkhærði maðurinn, sem í hennar aug- um líktist riddara. Hann kom strax auga á hana, og varð bæði forviða og glaður. Hún brosti og gaf honum merki um að koma að borðinu til hennar. „Hún mælti: „Mig hefur langað svo mjög til þess að hitta yður. Gerið svo vel að setjast. Ég hef oft komið hing- að. En yður hef ég ekki séð.“ „Ég borða hér ekki alltaf,“ svaraði hann. „Er búið að birta greina- flokkinn?“ »Já.“ „Þótti hann góður?“ „Já, ekki veit ég annað,“

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.