Vikublaðið - 10.02.1950, Page 6

Vikublaðið - 10.02.1950, Page 6
6 VIKUBL AÐIÐ ,.Það þykir mér vænt um að frétta." Þjónustustúlkan kom með kaffi, ristað brauð og sardín- ur handa henni. En þetta var hún búin að biðja um áður en hann kom. Ungi maðurinn gerði sína pöntun. Hún mælti: „Nú skal ég segja yður framhald sögunn- ar. Þegar þér voruð farinn fór ég að hugsa málið. Eitt hundrað tuttugu og fimm krónur er ekki mikil fjárupp- hæð. En sá, sem kominn er í svo miklar kröggur að eiga aðeins tvær krónur, álítur hana allmikla hjálp. Ég ákvað að þrauka enn um stund. Ég borgaði húsaleiguna og var því ekki fleygt út á götuna. Mér virtist, að fram úr mundi rakna, ef ég hefði þolinmæði til þess að bíða lengur.“ Hún þagnaði. Hann sagði: „Hvað gerðist svo?“ Hún mælti: „Ég gafst ekki upp. Hann kom og bað mig að giftast sér, en ég sagði nei. Alltaf hafði ég það á tilfinn- ingunni að eitthvað mundi gerast. Og mér varð að trú minni. Fyrir viku fékk ég þá frétt, að móðursystir mín væri látin. Henni var illa við alla sína ættingja,' að mér undan- skilinni. Hún hefur arfleitt mig. Dánargjöfin eða arfur- inn, er svo stór, að ég gæti lifað á þessum fjármunum alla ævi án þess að vinna. En þó þyrfti ég að vera sparsöm til þess að peningarnir nægðu mér. Það voru peningarnir frá yður, sem björguðu mér. Þeim er það að þakka, að ég gat beðið með að játast mann- inum, sem mig langaði ekki til að eiga. Ef ég hefði ekki hitt yður, væri ég nú gift hon- um. Ég þráði það að hafa tal af yður til þess að geta þakk- að yður.“ Hann hló glaðlega og sagði: „Þetta, sem þér hafið sagt mér, gleður mig afar mikið. En maðurinn--------?“ „Hann er farinn til útlanda. Við erum skilin að skiptum. Er þetta ekki g'óður endir á sögunni? Þér getið bætt þessu við fyrri frásögn yðar, ef yð- ur sýnist. Ég álít, að lesend- unum geðjist vel að þessari viðbót.“ Hann brosti og sagði: „Það er enginn efi á því, ef um nokkra lesendur væri að ræða.“ Hún horfði forviða á hann. Hann flýtti sér að koma með skýringu: „Ég vinn í banka, en ekki við blað. Þegar ég sá yður, var ég ekki í vafa um að yður leið mjög illa, og að þér væruð í mikilli fjárþröng. Þér báruð einkenni fátækt- arinnar. Ég þekki þau. Ég hafði peninga þennan dag. Ég var nýbúinn að fá laun mín greidd. Mig langaði til að hjálpa yður. Svo bjó ég til söguna um blaðamennsku og greinaflokkinn. Án þess hefð- uð þér ekki þegið peningana. Mér tókst að leika á yður.“ Hann hló, en augu hennar fylltust tárum við umhugs- unina um hjálp hans. Hann vai fátækur. Það gerði hún sér ljóst strax þegar hún sá íann. Hann hafði sagt að ulaðið hefði gefið sér leyfi til að borga eitt hundrað tutt- ugu og fimm krónur fyrir söguna. Hún trúði þessu. En hann hafði tekið peningana af launum sínum, vegna þess að hann sá að hún átti bágt. Tárin runnu niður kinnar hennar. Hún hvíslaði: „Þetta var dásamlega fallega gert af yður. Þér þekktuð mig ekki. Og þrátt fyrir það réttuð þér mér hjálparhönd.“ Hann mælti: „Þér megið ekki gráta. Þér eigið að hlæja. Hér er svo margt fólk, að það er óviðeigandi að gráta. En það má hlægja. Ég ætla að borða á meðan þér eruð að jafna yður. Ég þarf að vera kominn í bankann klukkan hálf tvö.“ Hann borðaði og unga stúlkan neyddi sjálfa sig til þess að hætta að gráta. Hún drakk kaffið.“ Hann mælti: „Ég þarf að segja yður dálítið áður en ég fer. Ég varð ástfanginn af yður samstundis og ég sá yður, og mig langaði innilega til þess að hjálpa yður. Og ég þakka guði fyrir að mér heppnaðist það. Ef yður þykir ekki vænt um neinn, ættuð þér að reyna að láta yður þykja vænt um mig. Getið Framh. á bls. 9.

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.