Vikublaðið - 10.02.1950, Blaðsíða 7

Vikublaðið - 10.02.1950, Blaðsíða 7
VIKUBLAÐIÐ 7 CHARLES LOW: Fyririiiyndar fangelsi í Englandi T ERLENDUM blöðum og tímaritum, sem fyrir skömmu hafa borist hingað til lands, er allmikið ritað um fyrirmynctar fangelsi í nokkrum löndum. Er sú hugmynd ofarlega í hugum margra merkra manna eða mannvina, að stefna beri að því, að bæta svo meðferð fanga og allan aðbúnað þeirra á meðan þeir taka út refsing- una, að þeir verði betri menn, og fangelsin megi með réttu nefnast betrunarhús . En það hefur oft farið svo, að fangar hafa forherzt við fanagvistina. Og er það vitan- lega mjög illa farið. Danir nefna hin endurbættu fangelsi sín „opin fangelsi“. Eins og nafnið bendir til, eru fangar frjálsari í þeim en öðrum hegningarhúsum. Lít- il brögð eru að því, að fangar strjúki, enda lengist fanga- vistin, ef þeir strjúka, og flestir, er það gera, nást aftur. En það voru ensk fyrir- myndar fangelsi, sem þessi grein átti að fjalla um. í Englandi starfaði hin svo- nefnda Gladstone-nefnd fyr- ir síðustu aldamót. Verkefni hennar var það, að kynna sér fangelsi í Englandi og leggja fram tillögur til úrbóta. — Nefndarálitið birtist 1895. Samkvæmt tillögum nefnd- armanna, var tekinn upp sá siður, að láta fanga vinna saman í hópum, í stað þess að einangra hvern fanga að öllu leyti. En í hinum nýju fyrir- myndar fangelsum Englands er frelsi fanga aukið að mikl- um mun, frá því sem lagt var til í nefndarálitinu frá 1895. En þessi frelsisaukning hef- ur kostað mikla baráttu. í fyrirmyndar fangelsun- um vinna beztu fangarnir saman, borða saman, skemmta sér í félagi, og eru saman í tómstundum sínum. — En í þessu efni verður að gæta varúðar. Sumir fanganna eru vondir menn, sem geta haft og hafa vond áhrif á þá, sem betri eru. Það ber því nauðsyn til að skipta föngunum í flokka. Betri fangarnir eru hafðir sér í flokki, og hinir vondu í öðrum. Þessi hugmynd var fyrst framkvæmd í Wakefield fang- elsinu. — En það var árið 1933, sem þetta fyrirkomulag var hafið. Stjórn fangelsisins fékk stórt landsvæði, óræktað, í h. u. b. tólf kílómetra fjar- lægð frá Wakefield. Og í upp- hafi var ákveðinn fjöldi fanga sendur þangað daglega, til þess að höggva skóg og „brjóta“ land, eða vinna að nýrækt, réttara sagt. Skýli voru byggð og fangarnir látnir dvelja í þeim frá því á mánudagsmorgnum til föstu- dagskvölds. Þá fóru þeir heim. Nú búa fangarnir vikum og mánuðum saman í vinnuskýl- um þessum, eða húsum. Þeim er leyft að taka á móti þeim, sem vilja heimsækja þá, á sama hátt og um frjálsa menn væri að ræða. Þeim, sem skipulögðu þetta fyrirkomulag, var það ljóst, að sýna yrði föngunum traust eða tiltrú. Engir múrar né girðingar eru umhverfis fangabúðir þessar eða vinnu- stöðvar. Það er ekki að vænta góðs árangurs án þess að koma fram við fanga eins og væru þeir venjulegir menn. Þeir fangar, sem valdir voru sem „tilraunadýr“, við þessa tilhögun, voru allir úr hinum svonefnda „stjörnu11- flokki. En í honum eru fang- ar, sem beztir eru. — í þess- um flokki geta verið, og eru, bæði fangar, sem í fyrsta sinn hafa komizt undir manna hendur og þeir, sem áður hafa dvalið í fangelsi. Nytsöm vinna og skemmti- leg, er gott uppeldismeðal. Og stjörnuflokksmenn sitja fyrir þessháttar vinnu. Fyrir

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.