Vikublaðið - 10.02.1950, Side 10
10
VIKUBLAÐIÐ
Ingrid
Bergman
Ingrid Bergman með dóttur sína.
vorum tímum eru það kvik-
myndastjörnurnar, sem dálæti
flestra ná. Það má segja, að þær séu
eins konar hjáguðir fjölda fólks,
einkum meðal yngri kynslóðar-
innar. Orð og gerðir þessara dýr-
linga eru athuguð gaumgæfilega og
látið berast um heim allan, sem
merkisfréttir. Ástamál stjarnanna,
barneignir, uppáhalds tómstunda-
vinna þeirra, maturinn, sem þeim
þykir beztur, ferðalög þeirra, kaup
og kjör, og ótalmargt annað þeim
viðvíkjandi, er látið berast út run
allt.
Um kvikmyndadísina Ingrid
Bergman hefur margt verið rætt
og ritað síðustu mánuðina.
Það varð almen-n gremja, er það
fréttist, að Ingrid hefði í hyggju að
skilja * mann sinn, sem er læknir
og Svíi, eins og hún.
Um margra mánaða skeið hefur
Ingrid Bergman dvalið á eynni
Stromboli í Miðjarðarhafinu. Hún
hefur leikið aðalhlutverkið í kvik-
myndinni „Jörð guðs“, sem er tekin
á Stromboli. Það þótti tíðindum
sæta, er hún fór til Evrópu til þess
að leifca þar í kvikmynd. En er það
fór að fréttast, að hún og kvik-
myndaleikstjórinn Roberto Rossell-
ine, væru orðin ástfangin hvort af
öðru, var farið að fylgjast með
Evrópuför Ingrid fyrir alvöru.
Forvitni almennings átti sér engin
takmörk.
Það leið ekki á löngu þar til haft
var eftir ábyggilegum heimildum,
að þau Ingrid Bergman og Rossel-
ine hafði í hyggju að skilja við
maka sína og giftast að því loknu,
Hjónaband Ingrid og Peter Lind-
ström læknis, hafði verið til fyrir-
myndar í Hollywood, en þar eru
hjónaskilnaðir meðal stjarnanna
afar algengir, eins og kunnugt er.
Þess vegna kom mönnum þett-a
Stromboli- eða Rosseline-ævintýri
Ingrid Bergman, mjög á óvart.
Það þótti heimsviðburður, er
Peter Lindström flaug til Italíu, til
skrafs og ráðagerða við Ingrid og
Rosseline.
„Þrívelda“-fundurinn gaf út þá
tilkynningu, að allt væri í lagi.
Komst þá ró á taugar margra.
En ekki leið á löngu, þar til sami
orðrómur komst á kreik. Reylkur
sá, sem þyrlað haifði verið upp til
þess að skýla staðreyndum, var
rokinn burt.
Ingrid lýsti því yfir, innan
skamms, að hún hefði ákveðið að
skilja við mann sinn. Kvaðst hún
þurfa að leika lengur í áðurnefndri
kvikmynd en manni sínum- geðjað-
ist að. Þetta var vitanlega tylli-
ástæða.
Ingrid hefur einnig lýst því yfir,
að hún ha-fi í hyggju *að hætta að
leifca. I bili er hún löglega forfölluð
þar sem hú.n ól son í Róm 2. þ. m.
Faðir barnsins er ítalski kvik-
myndastjórinn Roberto Rosseline.
Eiginmaður Ingrid hefur neitað
henni um skilnað. En Rosseline
fékfc fyrir skömmu skilnað frá sinni
konu.
Ingrid Bergman liggur því á
sæng um þessar mundir. Er álitið,
að hún muni dvelja á fæðingardeild-
inni um mánaðartíma. Hún vill
losna við blaðamenn og ljósmynd-
ara, sem sitja um hana.
Systurdóttir
Molotovs
systurdótir Molotovs og hin fríðasta
sýnum.
Ariane, móðir hennar, var myrt
af G-estapo í Toulouse í síðari
heimssty r j öldinni.
Molotov hefur boðið Myriam
systurdóttur sinni að koma til Rúss-
lands. En hún hefur neitað því boði.
Segist hún vilja vera þar sem frelsi
ríki. Kveðst hún elska frelsið heitar
en nokkuð annað.
Á meðan síðari heimsstyrjöldin
stóð yfir var Myriam í Sviss. Þar
var hún bamfóstra, vinnukona og
kaupakona í sveit. Að stríðinu loknu
fór hún itil Parísar. Þar tók hún
kennarapróf. Auk þess hefur hún
stundað nám í leikdansskóla, verið
blaðakona og sarhið kvikmynda-
handrit.
Myriam þráir mest að verða leik-
kona. Hún vonast til að komast til
Ameríku og fá tækifæri til að leika
í kvikmyndum. Er eigi ólíklegt að
þessi von ungu meyjarinnar rætist.
A.ð líkindum verður hún, er tímar
líða, kvikmyndastjarna í Holly-
wood.