Vikublaðið - 10.02.1950, Síða 17

Vikublaðið - 10.02.1950, Síða 17
VlKUBLAÐIÐ 'i n ± i Sebastian : í sjöunda h i m n i TTÚN stóð í anddyrinu í kápu og með hatt. Ferða- taskan stóð við fætur hennar, troðfull. „Vertu sæl, Elvira!“ sagði hann og rétti henni höndina. Hún tók hana án þess að horfa í augu hans. „Vertu sæll,“ mælti hún dauflega. Þetta voru fyrstu setning- arnar, er þau höfðu sagt hvort við annað heilan sólar- hring. Það hafði verið leiðin- legur og langur tími. Hún greip um handfang töskunnar með annarri hendi, en opnaði forstofuhurðina með hinni. Taskan var þung. Hann stóð á þröskuldinum og sá hve mjög það reyndi á krafta hennar að bera tösk- una fram að lyftunni. „Á ég ekki að bera töskuna fyrir þig?“ sagði hann vin- gjarnlega, og lokaði forstofu- dyrunum. „Jú, þakka þér fyrir. En einungis niður að sporvagn- inum,“ svaraði hún. „Hvenær fer lestin?“ spurði hann, í sama bili og lyftan staðnæmdist við hæð þá er þau bjuggu á. Hann opnaði iyftudyrnar og hélt þeim vel opnum á meðan hún fór inn í lyftuna með töskuna. „Lestin fer að tuttugu og fimm mínútum liðnum,“ sagði hún. „Ég hef nægan tíma. Sporvagninn kemur ekki víða við á leiðinni til j árnbrautarstöðvarinnar.“ Hann kinkaði kolli, rétti út höndina og þrýsti á rafmagns- hnappinn, er setja átti lyft- una í gang. Lyftan seig hljóð- lega niður að næstu hæð. Þau stóðu augliti til auglitis án nokkurra svipbrigða. Skyndilega stöðvaðist lyft- an milli fyrstu og annarrar hæðar. Þeim brá báðum. Hann sneri sér að veggn- um, þar sem rafmagnshnapp- arnir voru í röð. Hann þrýsti á 1., 2, 3. og 4. hæðar hnapp- ana. En lyftan hreyfðist ekki. „Þrýstu á græna hnapp- inn,“ sagði hún. „Þá hringir klukkan niðri hjá dyraverð- inum og hann mun kloma þegar í stað —- — —.“ Hann þrýsti aftur á hnapp- ana. En það var árangurs- laust. Þau stóðu og biðu, bæði dálítið ergileg. Svo kveikti hann í vindlingi, bauð henni vindling og rétti henni eld- spýtu. Þau hlustuðu eftir fótataki, en enginn kom.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.