Vikublaðið - 10.02.1950, Blaðsíða 19

Vikublaðið - 10.02.1950, Blaðsíða 19
VIKUBLAÐIÐ 19 / VIKUBLAÐIÐ kemur út á föstudögum og kostar kr. 2.50 eintakið. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Jóh. Scheving Simi 5671 Afgreiðsla: Austurstræti 9 Sími 6936 Prentsmiðja: PRENTFELL H.F. Óskilgetið barn „Það gerist allt of oft, að stúlkur feðra börn sín ekki rétt,“ sagði Lamprecht lögfræðingur fyrir skömmu. En hann er málfærslu- maður hins opinbera í Danmörku. Þessi ummæli voru viðhöfð í sam- bandi við bamsfaðernismál ungrar stúlku. „Það ber nauðsyn til þess, að á þvílíkum málum sé ðkki tekið vettlingatökum," bætti Lamprecht við. Þessi tuttugu og þriggja ára stúlka ól barn í fyrra og kvað föður þess vera ungan mann, er hún hafði mikið verið með. Blóðrannsókn leiddi í Ijós, að þessi maður var ekki faðir bamsins. Unga stúlkan neyddist þá til þess að segja sannleikann. Hún kvaðst aðeins einu sinni hafa verið með giftum rnanni og hann væri fiaðir barnsins. Stúlkan hafði vitað þetta með vissu, en vildi ékki gera það uppskátt vegna fjölskyldu barns- föðursins. Unga stúlkan var dæmd í þriggja mánaða fangelsi fyrir það, að ljúga vísvitandi fyrir rétti. A. E. W. MASON : 2 EITURÖRIN ---------------- Framhaldssagan -------------- „Ég mun heyra nánar frá Boris litla,“ sagði hann, og spá hans rættist innan viku. Rithöndin var hroðvirknislegri og ólæsilegri heldur en áður. Móðursýki og gremja hafði keyrt taugar hans úr skorðun og enskan hans var ekki neinum til fyrirmyndar. Hann hafði einnig tvöfaldað kröfu sína. „Það er öidungis óskiljanlegt,“ skrifaði Boris Waberski. „Ekkert hefur hún ætlað hinum umhyggjusama bróður sínum. Það er eitthvað óhreint við þetta. Nú verð ég að fá þúsund sterlingspund, með ábyrgðarpóstinum. „Heimurinn hefur alltaf verið þér fráhverfur, kæri Boris minn,“ sagði hún stundum með stærðar tár í augunum sínum. „En ég mun bæta þér það upp í erfðaskránni minni.“ Og nú ekkert! Ég hef auð- vitað talað við frænku mína — oh, það er nú meiri skvettan! Hún gaf mér bara selbita! Er það nokkur siðsemi? Eitt þúsund sterlingspund, herra! Annars vei’ða óþægindi! Já! Fólk gefur Boris Waberski ekki selbita án þess að þurfa að gjalda fyrir. Þess vegna eitt þúsund sterlingspund með ábyrgðarpóstinum eða óþægindi“; og að þessu sinni bað Boris Waberski ekki Haslitt að veita neinum virðingarkveðjum móttöku frá sér, hvorki innilegum né öðruvísi, en hafði undirritað bréfið með óstyrkri hendi svo að penninn hafði þotið um alla örkina. Haslitt hló ekki að þessu bréfi. Hann strauk lófunum gæti- íega saman. „Þá verðum við að valda einhverjum óþægindum líka,“ sagði hann hvatlega, og læsti síðan bréfið niður hjá hinu fyrra. En Haslitt gekk dálítið erfiðlega að festa hugann við vinnu sína. Það var þessi stúlka, þarna vfir frá, í stóra húsinu í Dijon, og ekkert skyldmenna hennar nærverandi til þess að halda í hönd með henni! Hann stóð á fætur af skyndingu og gekk yfir ganginn, í áttina til skrifstofu yngri félaga síns. „Jim, þú varst í Monte Carlo í vetur,“ sagði hann. „í viku,“ svaraði Jim Frobisher. „Mig minnir, að ég hafi beðið þig að heimsækja einn við- skiptavin okkar, er á villu þar — frú Harlowe.“ Jim Frobisher kinkaði kolli.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.