Vikublaðið - 10.02.1950, Síða 20

Vikublaðið - 10.02.1950, Síða 20
20 VIKUBL AÐIÐ „Ég gerði það. En frú Harlowe var lasin. Frænka hennar nokkur var þar einnig, en hún var ekki heima.“ „Þú hittir þá engan?“ spurði Jeremy Haslitt. „Nei, það er ekki rétt,“ leiðrétti Jim. „Ég hitti skrítinn náunga, er kom til dyra til þess að afsaka við mig að frú Harlowe gat ekki tekið á móti mér — það var Rússi.“ „Boris Waberski,“ sagði Haslitt. „Það er nafnið,“ svaraði Frobisher. Haslitt settist í stól, sem stóð við skrifborð félaga hans. „Segðu mér frá honum, Jim.“ Jim Frobisher starði út í loftið nokkur augnablik. Frobisher var ungur maður, nálægt tuttugu og sex ára að aldri, er aðeins árið áður hafði gerzt fullgildur félagi Haslitts. Þótt hann væri nógu viðbragðsfljótur þegar kringumstæðurnar kröfðust þess, þá var hann að eðlisfari varkár í dómum sínum um náungann, og viss lotning, sem hann bar fyrir Jeremy gamla Haslitt, dró sízt úr þessari ásköpuðu varfærni hans, þegar um var að ræða einhver málefni, sem firmað skiptu einhverju. Hann svaraði að lokum: „Hann er hávaxinn, slánalegur náungi með kúf af gráu hári, sem stendur upp í loftið eins og burstir, yfir lágu enni, og hefur flóttalegt augnaráð. Hann minnti mig á leikbrúðu, sem útlimirnir hafa ekki verið festir nægilega vel á. Mér kæmi ekki á óvart þótt hann reyndist vera eyðslusamur og tilfinn- ingaríkur. Hann togaði í sífellu í yfirvararskeggið með löng- um, tóbaksgulum fingrunum. Maður, sem líklega þarf ekki mikið til þess að sleppa sér, hvenær sem vera skal.“ Haslitt glotti. „Þetta er einmitt það, sem ég bjóst við.“ „Ertu í einhverjum vandræðum út af honum?“ spurði Jim. „Ekki ennþá,“ svaraði Haslitt. „En frú Harlowe er látin, og mér finnst mjög sennilegt, að hann komi til með að valda erfiðleikum. Spilaði hann fjárhættuspil?“ „Já, og fremur hátt,“ sagði Jim. „Mér skilst að hann hafi lifað á frú Harlowe." „Ég geri ráð fyrir því,“ sagði Haslitt, er síðan sat stundar- korn þegiandi. Litlu seinna sagði hann: „Það var leiðinlegt, að þú skyldir ekki hitta Betty Harlowe. Á leið minni til Suður- Frakklands fyrir fimm árum, dvaldist ég í Dijon. Þá var Símon Harlowe, eiginmaður frú Harlowe, enn á lífi. Bettv var þá háfætt telpukind í svörtum silkisokkum, föl í andliti, dökkhærð og með stór augu — fremur lagleg.“ Haslitt ók sér í stólnum eins og ekki færi reglulega vel um hann. Þetta gamla hús með stóra trjágarðinum í kring, og þessi unga Hann gerði það hennar vegna Framhald af 16. síðu. skeyti frá systur þinni þess efnis að peningarnir séu komnir til London.“ „Já, ég fékk skeyti, strax er hún fékk peningana.“ „Ágætt. Við hittumst í London að mánuði liðnum. Ég hef fengið farrými handa þér á „Queen Mary“. Skipið fer snemma í fyrramálið. Við þurfum að síma til systur þinnar og biðja hana að aka til Southampton og taka á móti þér.“ „Já, það skulum við gera,“ svaraði Dorrit. Hurchison mælti: „Hugs- aðu þér, hve vel okkur mun líða. Áttatíu þúsund. Allur heimurinn stendur opinn.“ Hann brosti ástleitnislega til Dorrit. Hún brosti einnig. En var annars hugar. „Gleymdu ekki að síma til systur þinnar.“ Hún lofaði að gleyma því ekki. En hún brosti með sjálfri sér. Dorrit hafði skrif- að systur sinni og beðið hana að senda þetta skeytí og að kaupa farmiða handa þeim með skipi, sem ætlaði að fara til Austurlanda strax eftir komu „Queen Mary“. Hún hafði ákveðið að systurnar einar skyldu njótai þessara áttatíu þúsunda. Það var hægt að skemmta. sér mikið fyrir þá upphæð,

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.