Vikublaðið - 10.02.1950, Page 22

Vikublaðið - 10.02.1950, Page 22
22 VIKUBLAÐIÐ leikið veðmálslagið. Þeim varð það Ijóst, er þeir höfðu kynnt sér lagið, að það væri ekki á þeirra færi að leika það. Nei, þessa þraut gátu þeir ekki leyst. Nóturnar voru n. 1. rit- aðar á þann þátt, að hægri hönd varð að vera óskipt við efstu raddirnar, en vinstri höndin hafði nóg að gera við að leika bassana. En samhliða því, að báðar hendur voru bundnar við sín hlutverk þurfti að leika aukatóna. Engum var fært að glenna fingurna yfir svo stórt svæði sem til þess þurfti, að hægt væri að leika aukatónana. Þegar allir höfðu gefizt upp við tilraunir sínar, settizt Mozart við orgelið, og sýndi þeim hvernig leysa mátti þessa þraut. Hann lék með nefinu, þar sem ekki var hægt að beita höndunum. Mozart vann veðmálið. Hann gleymdi ekki drengnum, sem gaf honum þessa hugmynd. Hann kenndi honum ókeypis og drengurinn varð mikill hljómlistarmaður. En hann varð ekki tónskáld. Meistarinn hafði haft rétt að mæla, er hann sagði, að menn spyrðu ekki um þess háttar, heldur byrjuðu á tónsmíðum, án þess að leita ráða, ef andinn kæmi yfir þá. Þetta kemur ósjálfrátt, ef svo má að orði komast. Drengnum hefur þó líklega ekki liðið verr í lífinu, þó að hann yrði ekki tónskáld. Tón- skáld þeirra tíma fengu ekki gull og græna skóga, pó að sumir þeirra væru ódauðlegir snillingar. Mozart dó í sárri fátækt, en hann lét eftir sig ódauðleg og ómetanleg verðmæti. Hann er nú talinn, og það með réttu, eitt allra mesta tónskáld, sem uppi hefur verið í heim- inum. Ævisaga Mozarts hefur komið út á íslenzku. Ekkert lestrarefni er börnum og unglingum jafn hollt og ævisögur og frásagnir um mikil- menni, hvort sem það er á andlega eða ver- aldlega sviðinu. Án mikilla listamanna getur ekki verið að tala um menningu á háu stigi. Barnasagan, sem birt verður í næsta blaði, fjallar um heimsókn Churchills í heimavistarskóla í Englandi. Coolidge, forseti Bandaríkjanna, hélt einu sinni, sem oftar, fund með blaðamönnum. Það, sem gerðist á fundinum var þetta: „Herra forseti," sögðu blaða- mennimir. „Hafið þér noílckuð að segja um bindindismálið?" „Nei,“ svaraði Coolidge. „Hafið þér nokkuð að segja um væntanlega heimsstjórn?" „Nei,“ svaraði forsetinn. „Viljið þér segja o'kkur eitthvað um væntanlegar þingkosningar?" „Nei." Að þessu loknu var fundi slitið, og blaðamennirnir fóru til dyra. Þá sagði Coolidge: „Augnablik, herrar mínir.“ • Aliir sneru við með eftirvænt- ingu. Þeir áttu von á merkisfrétt- um. Forsetinn mælti: „Ég óska þess, að þér hafið engin ummæli eftir mér.“ ★ Tvær litlar stúlkur, á hjóla-skaut- um fóru þvert yfir götu, sem mikil umferð var á. í sarna biíi kom bif- reið. Bifreiðarstjórinn stöðvaði bíl- inn. En litlu munaði, að hann æki ekki á telpurnar. Hann flýtti sér út úr bílnum, greip þá telpuna, sem verið hafði nær bílnum, og hýddi hana ræki- lega. Að því búnu fór hann upp í bifreiðina og ók leiðar sinnar. ★ Ungur stúdent, sem las læknis- fræði, sagði föður sínum, að hann hefði ákveðið að velja fæðingar- hjálp (obstetrik) sem sérgrein. „Hvers vegna velur þú þessa sér- grein?“ spurði faðir læknanemans. „Þegar þú hefur lokið námi, mun einhverjum lækni fyrir löngu hafa tekizt að uppgötva meðal við þess- um kvilla." ★ Kúreki nokkur var kominn til þess að slysatryggja sig. Umboðsmaður tryggingafélagsins spurði: „Hafið þér nokkru sinni orðið fyrir slysi?“ „Nei,“ svaraði kúrekinn. „En síð- ast liðið sumar sló hestur mig og braut í mér tvö rif. Og fyrir tveim árum beit mig slanga í öklann." „Þetta teljið þér ekki slys,“ mælti umboðsmaðurinn. „Nei,“ svaraði kúrekinn. „Dýrin gerðu þetta viljandi." ★ Ung stúlka sagði við vinkonu sína: „Já, við erum sama og trúlofuð. Hann bíður aðeins eftir því að unn- ustan skilj þringnum.

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.