Vikan


Vikan - 04.10.1951, Blaðsíða 14

Vikan - 04.10.1951, Blaðsíða 14
14 VIKAN, nr. 38, 1951 CLAIRE. Framhald af bls. 7. John flýtti sér að snúa hattinum við. En það var of seint. Hvað átti hann að gera? Það var einungis um eitt bjargráð að gera. Hann þurfti að viðhafa frekju. ,,Ég á hattinn,“ sagði John. „Mínir upphafsstafir standa í honum,“ mælti Jossop. „Nei, það er mitt nafn í hattinum,“ sagði John. „Það er skrítið," sagði Jossop. „Eru E. A. J. yðar upphafsstafir ? Þér segist heita George Smith.“ John horfði vonsvikinn til dyranna. Jossop aðgætti hann og sagði: „Já, þetta er rétt, eða hitt þó heldur. — En þarna kemur Arthur. Hann getur sagt mér —“ John beið ekki boðanna. Hann sá hvar Arthur kom all ókræsilegur, og auðséð var að ungi maðurinn var ekki í sólskin- skapi. John þaut út um dymar eins og ör, og hljóp út að hliðinu. „Stöðvaðu hann,“ öskraði Jossop gamli. Arthur var of seinn að átta sig á því við hvern frændi sinn ætti. John var kom- inn út að akdyrum áður en Arthur hafði snúið sér við. „Komið hingað,“ hvíslaði rödd til John. „Flýtið yður og komið áður en þeir koma auga á yður.“ John nam staðar þegar. Unga stúlkan lá í leyni bak við stólpa öðrumegin við akdyrnar. Hún veifaði til John. „Hingað,“ sagði hún. „Ég sá hann koma, og hljóp hingað til þess að ná tali af yður.“ John fylgdi stúlkunni. Hún hljóp eftir mjóum stíg er lá milli hnetumnna bak'- dyramegin við húsið. Er þau komu að bílnum mælti stúlkan: „Flýtið yður upp í bílinn. Ég mun aka yður til Stoke Mar- tin.“ John hristi höfuðið og sagði: „Þetta er of mikið af því góða. Ég er yður mjög þakklátur. En þessa hjálp get ég ekki þeg- ið. Þér ættuð að fara inn í húsið og segja að þér þekktuð mig alls ekki. Þér getið sagt að ég hafi ekið af stað niðri á veg- inum, án yðar samþykkis. Hr. Arthur mun ekkert segja gegn þessu. Hann hefur ekki hreint mjöl í pokahominu." „Þér þurfið að komast til Stoke Martin, og þangað mun ég aka yður,“ sagði unga stúlkan og lét engan bilbug á sér finna. „Ég þarf ekki að aka yður lengra en til Hagby. Þaðan getið þér farið í almenn- ingsvagninum.“ Það var árangurslaust fyrir John að malda í móinn. Hann var ekki spenntur fyrir því að koma í brúðkaup Horaee. Hann taldi það meira virði að forða stúlk- unni frá því að lenda í vandræðum." Hann mælti: „Mér kom til hugar að það skiptir mig ekki máli, hvort ég kem til þessa brúðkaups eða ekki. Það getur farið fram án mín.“ „Eruð þér með öllum mjalla?“ spurði stúlkan. „Þér látið ekki brúðurina sitja og bíða yðar von úr viti. Hvað ætli konu- efni yðar segi? Við verðum að fara í síma og hringja til hennar og —“ „Hér er ekki um mitt konuefni að ræða,“ sagði John. Nú skildi hann, hversvegna stúlkan hafði álitið hann brúðgumann. John hafði bara sagt að hann ætlaði í brúðkaup. En ekki sagt að hann væri að- eins svaramaður. „Ég á enga brúði,“ sagði hann. „Ég átti að vera svaramaður brúðgumans. 'Sá, sem ætlar að giftast, er vinur minn. Hann kemst af án mín.“ 592. KROSSGÁTA VIKUNNAR Lárétt skýring: 1. tónn. -— 3. dagskrár- lið. — 13. forföður. — 15. vind. — 16. fuglar. — 17. úrræðalaus. — 18. frétt. — 20. erfiði. — 21. spámanni. — 24. ullar- vara. — 27. slúngið. — 29. kjarrið. — 31. títt. — 32. á skrúfum. — 33. byljótt. — 35. vitlausra. — 36. skammstöfun. —• 38. tveir eins. — 39. = 31. lárétt. — 40. hljóð. — 41. skammstöfun. — 42. goð. — 44. hlýhugur. — 47. málmur. — 48. fangamark flota. — 49. sorgina. — 50. festar- menn. — 52. ögn. — 53. jötni. —- 55. á himni. — 57. hljóði. —- 59. manns- nafn, ef. — 61. líffæri. -— 62. hreyfist. — 63. heimilisáhald. — 64. stjórnandinn. — 65. sól- guð. Lóörétt skýring: 1. líkamshluti á ferða- lagi. — 2. iðja fiska. 4. slíðrið.'— 5. glöð. 8. á litinn. — 9. ekki hér. 6. dubba. — 7. tónn. — — 10. róðrarlag. — 11. eldsneyti. — 12. skammstöfun. — 14. hlutað- eigendur. —- 18. ósléttar. — 19. töluorð. — 22. skammstöfun. — 23. sýsla. — 25. gapandi. — 26. afleiðsluending. — 28. af kind. — 30. dulinn leitarmaður. — 34. = 39 lárétt. — 35. druslu- lega (slanguryrði). — 37. vinnusöm. — 40 skað- inn. — 43. innanhúss. — 44. leggja rækt við. — 45. forskeyti. — 46. sjónglerið. — 48. hasti á. — 51. tveir samhljóðar. —; 54. forn greinir. —- 56. sterkur. — 57. veitingastofa. — 58. bókstaf- ur. — 50. forfaðir. — 61. skammstöfun. — 62. tveir samstæðir. Lausn a 591. krossgatu Vikunnar. Lárétt: 1. fokk. — 4. frumgetinn. — 12. ryk. — 14. ánauð. — 15. tvenna. — 17. guðlegur. — 19. aftar. — 21. Una. — 22. gasella. — 24. sláni. — 26. alt. — 27. lausamenn. — 30. raul. — 32. aga. — 33. fa. — 34. mura. — 35. ársæl. — 36. smár. — 38. að. — 39. ull. — 41. tæma. — 42, skeiðrúmi. — 45. lár. — 46. gasið. — 47. teng- ill. — 48. Sám. — 49. bæinn. —- 51. umsáturs. — 53. niftum; — 55. afæta. — 57. rái. — 58. sakaraðili. — 59. Agli. Stúlkan horfði forviða á John. „Já — en, viljið þér ekki? — ég á við, hvað þér hyggist fyrir,“ mælti hún. John sagði: „Við förum til gamla ösk- urapans og segjum honum allt af létta. Ef ómögulegt er að koma neinu tauti við hann vegna bróðursonarins hef ég tillögu fram að færa.“ Hún mælti: „Ég álít að hr. Jossop verði all erfiður viðfangs. Mig langar heldur ekki til þess að hitta Arthur. Hvaða til- lögu eða uppástungu hafið þér?“ „Já,“ sagði John. „Hvað heitið þér? Ég get ekki til lengdar talað við stúlku, sem ég ekki veit heiti á.“ „Ég heiti Clarie Mercer,“ svaraði hún. John mælti: „Unga stúlkan, sem í dag giftist vini mínum, Horace, var ritari hjá roskinni, indælli frú, og enn hefur engin stúlka verið ráðin í stað brúðurinnar. Ég veit að frúin ræður nýjan ritara. Ef þér viljið ekki vera hjá Jossop vilduð þér máske fá fyrr nefnda stöðu.“ Unga stúlkan þagði örlitla stund, Svo létti yfir henni. Hún mælti: „Án tillits til þessa árekstrar milli mín og Arthurs í dag, hafði mér lengi leiðzt veran hjá hr. Jossop. Það væri mér mjög kærkomið ef ég fengi ritarastöðu hjá þessari frú. En ég fæ engin meðmæli frá hr Jossop.“ John sagði: „Ég skal láta yður fá ágæt meðmæli. Ég efast ekki um að þér fáið þessa stöðu. Hún er mjög þægileg. Þér ættuð að taka hana. Það væri hagkvæmt.“ Lóðrétt: 1. fatagarmar. — 2. kreistur. —- 3. kyn. — 5. rá. — 6. unga. — 7. maur. — 8. guð. — 9. eðlileg. — 10. Ingunn. — 11. Nóra. — 13. knall. — 16. aflamálið. — 18. Uni. — 20. tau. — 23. alauð. — 24. smalamenn. — 25. ánast. — 28. sósur. — 29. kararlambi. — 31. lauks. — 33. fámál. — 37. mælistig. — 40. leistar. — 42. sam- sek. — 43. úti. — 44. innir. —- 46. gám. — 48. suss. — 49. bræð. — 50. æsti. — 52. Ufa. — 54. fáa. — 56. al. „Hvernig hagkvæmt,“ spurði Claire. „Vegna þess að þá flytjið þér til Lond- on. Það er þægilegra fyrir mig. Ég á þar heima, og get komið til yðar og boðið yð- ur út til miðdegisverðar, annaðslagið.“ Hún hló og mælti: ,Éigum við oft að borða miðdegisverð saman?“ John svaraði: „Já — það er að segja — ég vona að svo geti orðið.“ Claire kinkaði kolli og mælti: „Ég vona það einnig.“ Hún skal verða konan mín, hugsaði John. Svar við mannlýsingarspurning- unni á bls. 4: Snorri goði Þorgrímsson í Eyrbyggja sögu. Svör vií „Veistu —?“ á bls. 4: 1. Til þess að hann byggði ekki aðra kirkju eins. 2. 70 f. Kr. 3. Kína er um 4 miljónir fermílna að stærð og íbúatala þess allt að 400 miljónum eða um fimmtungur alls mannkyns. 4. Vánern (Vænir), 5550 ferkm. eða 46 sinnum stærra en Þingvallavatn. 5. 1883 í Stóru-Vogum á Vatnsleysuströnd, lézt í Reykjavík í okt. 1949. 6. Hrafn. 7. Frá því um 1300. 8. 1904. 9. Fíllinn. 10. 18. ágúst 1522.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.