Vikan - 01.11.1951, Side 2
2
VIKAN, nr. 42, 1951
PÓSTURINN
Kæra Vika!
Ég ætla að biðja þig að leysa úr
nokkrum spurningum fyrir mig.
1. Hvar fást guitarstrengir, og hvað
kosta þeir. Getur maður ekki feng-
ið 1 eða 2 án þess að fá þá alla.
2. Er Robert Taylor og Elizabeth
Taylor systkini. Viltu birta mynd af
þeim fyrir mig.
3. Ég hef svo breiða fingurgóma
og neglur hvað get ég gert til þess
að þeir verði mjórri?
4. Er talið Ijótt að hafa græn
augu?
5. Ég sendi þér hárlokk. Hvemig
er hann litur. Svo vona ég Vika mín,
að þú hendir þessu bréfi ekki í rusla-
körfuna.
Bless þin
Bílga.
E.s. hvernig er skriftin?
Svar: 1. Við hringdum í hljóð-
færaverzlanir í Reykjavík, og feng-
ust hvergi guitarstrengir nema í
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadótt-
ur, Lækjagötu 2, sími 1815, en þar
fékkst aðeins G-strengur og eftir því
ætti að vera hægt að kaupa einn
streng eða fleiri svo framarlega sem
þeir eru fáanlegir.
Robert Taylor
. .....
Elizabeth Taylor
2. Þau eru ekki systkin. Robert
Taylor er fæddur í Nebraska, Banda-
ríkjunum, en Elizabeth Taylor er
ensk, fædd í London.
3. Vafalaust væri bezt fyrir þig
að leita læknis viðvíkjandi fingur-
gómunum.
4. Ekki höfum við heyrt þess getið,
að það þætti Ijótt. Græn augu geta
verið falleg eigi að síður en blá, grá
eða brún. Liturinn sker áreiðanlega
ekki úr því, hvort augun eru falleg
eða ekki, þar kemur einnig til greina
augnaumgjörðin, augnasvipurinn og
fleira.
5. Eftir því sem við bezt fáum séð,
er hann skollitur.
Skriftin er hroðvirknisleg og rétt-
ritunin fyrir neðan allar hellur.
Svar til tvíburasystra:
1. Sú rauðhærða ætti að klæðast
I Tímaritið SAMTÍÐIN |
I Flytur snjallar sögur, fróðlegar §
= greinar, bráðsmellnar skopsögur, i
| iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl. =
| 10 hefti árlega fyrir aðeins 25 kr. |
: Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. i
É Askriftarsími 2526. Pósthólf 75. |
köldum litum eins og bláum, blá-
grænum, grænum, einnig dökkbrún-
um, gulum og rauðgulum litum. Við
dökkjarpt hár fara bezt dökk-bláir
litir, blágrænir og dumbrauðir.
2. Jean Simmons er fædd 31. jan.
1929. Á meðan hún var ennþá í skóla
fékk hún hlutverk í kvikmynd. Hún
er nú almennt talin vinsælasta enska
kvikmyndaleikkonan. Hún hlaut
írægð sína fyrir hlutverk Estellu í
„Glæsileg framtíð" (Great Expec-
tations), þar naut sín mjög vel hið
mjúka, fjaðurmagnaða fas hennar í
öllum stigunum, sem hlaupa þurfti.
3. Rauðar hendur eru vandamál
fjölmargra kvenna. Gætið þess að
þurrka hendurnar vel í hvert skipti,
sem þér þvoið yður. Notið góðan
handáburð óspart og gætið þess að
reyna að hlífa höndunum með hönzk-
um eins mikið og mögulegt er. Látið
yður ekki verða kalt.
4. Skriftin er dálítið barnaleg og
viðvaningsleg, en verður góð með
æfingu.
Svar tíl Sveinbjöms á Mýrum:
Þú spyrð, hvað stúlkan meini. Ann-
aðhvort er hún feimin, eða hún er
að reyna að hafa þig að leiksoppi.
Þú skalt reyna að uppgötva, hvort
veldur hlédrægni hennar. Sé það
feimni, skaltu fara gætilega í sak-
irnar, ef þér er full alvara í þessu
máli. Sýndu henni nærgætni, og láttu
hana finna, að þú berir umhyggju
fyrir henni. Stúlkur kunna alltaf að
meta það. Ef þú kemst hinsvegar að
þeirri niðurstöðu, að hún sé að leika
sér með þig, liggur það beinast fyrir
að reyna eftir beztu getu að komast
yfir þetta miður heppilega „skot“.
Skriftin er sæmileg, dálítið barna-
leg og viðvaningsleg.
Kæra Vika!
Viltu gjöra svo vel, að gefa mér
upplýsingar hvar muni vera keyptar
tómar tóbaksdósir.
Þinn fasti kaupandi.
Svar: Chemia h.f., Höfðatúni 10,
Reykjavík, mun kaupa eitthvað af
tómum tóbaksdósum, ef þær eru al-
veg hreinar og gallalausar. Bezt er
að hreinsa dósirnar vandlega strax
og búið er úr þeim, þá er von til
þess að þær verði keyptar, annars
ekki.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Þórey Stefánsdóttir (óskar eftir
bréfasambandi við ættfróðar kon-
ur, eða menn, á Vestfjörðum eða
hvar sem er á landinu), Sáms-
stöðum, pr. Hvolsvöllur, Ranj*ár-
vallasýslu.
Unnur Guðbjörg Þorkelsdóttir (við.
pilt eða stúlku 14—16 ára), æski-
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>
FRÍMERKJASKIPTI
Sendið mér 100 íslenzk frí-
merki. Ég sendi yður um hæl
200 erlend frímerki.
Gunnar H. Steingrímsson
Nökkvavogi 25 — Reykjavik
legt að mynd fylgi bréfi), Víðimel
19, Reykjavík.
Guðrún Lúðvíksdóttir (við pilt 13—14
ára), Ytri-Völlum, Kirkjuhvamms-
hreppi, V.-Húnavatnssýslu.
Nanna Ulfs (við pilta 18—25 ára,
mynd fylgi),
Matthildur Gauks (við pilta 18—25
ára, "ínynd fylgi),
Inga Guðmunds (við pilta 18—25
ára, mynd fylgi). Allar Reykja-
skóla, Hrútafirði, V.-Húnavatns-
sýslu.
Elísabet Finnbogadóttir (við pilta og
stúlkur 16—19 ára), Flókagötu 14,
Reykjavík.
Sigriður Lýðsdóttir (við pilta og
stúlkur 16—19 ára), Flókagötu 14,
Reykjavik.
Finnlaug Óskarsdóttir (við pilta og
stúlkur 14—16 ára), Skógaskóla,
Rangárvallasýslu.
Hrönn Pétursdóttir (við pilta og
stúlkur 16—18 ára), Skógaskóla,
Rangárvallasýslu.
Sigríður Baldursdóttir (við pilta 15
—25 ára), Steinum, Stafholtstung-
um, Borgarfirði.
Erna Þorvaldsdóttir (við pilt eða
stúlku 15—17 ára), Árgötu 12,
Húsavík.
Sigursveinn Sigurðsson (við stúlkur
20—25 ára), Þverá, Ólafsfirði.
Unnur Magnúsdóttir (við pilta 18—
25 ára), Þverá, Ólafsfirði.
Kæra Vika!
Við erum hérna 4 yngismeyjar að
læra að elda graut sem alltaf brenn-
ur við, og af því sérð þú nú hvernig
ástandið er hjá okkur, hreint eins og
einmana kleinum. Þess vegna langar
okkur til að biðja þig að koma okk-
ur I bréfasambönd, helzt við ein-
hverja pilta unga og stillta og helst
að myndir fylgi.
Sigríður ára), Friðriksdóttir (24—30
Vilborg ára), Þórarinsdóttir (25—30-
Margrét ára), Jóhannesdóttir (24—30
Dóra Jóhannesdóttir (20- -30 ára).
Allar í Húsmæðraskólanum,
Blönduósi.
Hulda Emilsdóttir (20—22 ára),
Halldóra Theódórsdóttir (20—22;
ára),
Herdís Guðmundsdóttir (20—22 ára),
Lára Árnadóttir (20—22 ára),
Margrét Karlsdóttir (20—25 ára),
•Jóhanna Friðriksdóttir (19—22 ára),
Ingibjörg Rafnsdóttir (20—23 ára),
Berta Vilhjálmsdóttir (20—22 ára),
Sigurlaug Stefánsdóttir (20—22 ára),
Anna Lísa Stefánsdóttir (20—22’
ára),
Guðrún Sigurðardóttir (20—25 ára),.
Sigríður Árnadóttir (20—25 ára),
mynd fylgi bréfum, allar á Hús-
mæðraskólanum að Laugum,
Reykjadal, Suður-Þingeyjarsýslu.
Framhald á bls. 7.
ísland — Norge
Störfum yfir Island
;0g Noreg, með sam-
böndum við Finnland,
Holland og víða um
| heim. Fjölda Norðmanna á öllum
i aldri óska bréfaskipta við okkur.
| Ef þér óskið bréfavina, innanlands
= eða erlendis, þá skrifið til okkar
= Gegnum bréfin, getið þér eignast
i vini nær og fjær.
BRfFAKLÚBBUR
IUANDIA I
= Pósthólf 1014, Reykjavík.
^■■»»>»»»»»»i»»»i»»»»M»iiimMiiiiii|l|||„,l,lllll|l|iv{>
Sprenghlægilegur gamanleikur í Hafnarfirði.
Fimmtudaginn 18. október
hafði Leikfélag Hafnarfjarðar
frumsýningu á gamanleiknum
Aumingja Hanna eftir enska
höfundinn Kenneth Horne.
Sverrir Thoroddsen þýddi leik-
inn og virðist hafa gert það
ágætlega. Leikstjóri er Rúrik
Haraldsson og hefur honum að
mörgu leyti vel tekizt. Lothar
Grund, þýzkur maður, hefur
gert leiktjöldin og eru þau
skemmtileg.
Það er skemmst af þessari
frumsýningu að segja, að við
munum ekki eftir að Hafnfirð-
ingum hafi í heild tekizt betur.
Framhald á bls. 7.
Kristjana Breiðfjörð sem Hanna og
Sigurður Kristinsson sem Basil Gil-
berts.
Jóhanna Hjaltalín sem frú Simm-
onds og Kristjana Breiðfjörð sem
Hanna.
Ctgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.