Vikan - 01.11.1951, Qupperneq 7
“VIKAN, nr. 42, 1951
7
Sprenghlægilegur gamanleikur í Hafnarfirði.
Brezkar kvikmyndafréttir.
Framhald af bls. 2.
Leikritið er létt og fyndið og
meðferð hlutverkanna yfirleitt
góð og stundum ágæt. Leikur
Kristjönu Breiðfjörðs, sem lék
Hönnu, er t. d. oft mjög góður
og einkar eftirtektarverður,
þegar þess er gætt, að þetta er
fyrsta aðalhlutverk hennar og
ákaflega tilbrigðaríkt. Jóhanna
Hjaltalín náði líka ágætum tök-
nm á hlutverki sínu, enda legg-
ar höfundur frú Simmonds í
munn mörg skemmtilegustu til-
svörin og vakti oft það, sem
hún sagði mikinn hlátur. Önn-
ur hlutverk eru: Betty (Auð-
ur Guðmundsdóttir), Emma
Wilton (Hulda Runólfsdóttir),
Herbert Wilton (Ólafur Örn
Árnason), Briggs (Friðleifur
Guðmundsson), Basil Gilberts
(Sigurður Kristinsson) og ung-
frú Kent (Kristbjörg Kjeld).
Það er góð skemmtun að
skreppa í Hafnarfjörð og horfa
á Aumingja Hönnu.
Stjórn Leikfélags Hafnar-
fjarðar skipa nú: Sigurður
Kristinsson, formaður, Sigurð-
ur Arnórsson, gjaldkeri og
Hulda Runólfsdóttir, ritari.
Einar Pálsson mun setja næsta
ieikrit félagsins á svið og er
ætlunin að sýningar á því hef j-
ist eftir nýár. Félagið hyggst
og koma á fót leikskóla
Ólafur Örn Árnason sem Herbert
Wilton og Hulda Runólfsdóttir sem
Emma Wilton.
Sigurður Kristinsson sem Basil Gilberts og Kristjana Breiðfjörð sem
Hanna i gamanleiknum Aumingja Hanna, sem Leikfélag Hafnarfjarðar
hefur verið að sýna að undanförnu.
Bréfasambönd
Framhald af bls 2.
Sigrún H. Magnúsdóttir (við pilta
eða stúlkur 15—20 ára), Rauðar-
árstig 28, Reykjavík.
Grétar Björnsson (við stúlkúr 16—19
ára, mynd fylgi), Skóga-Skóla,
Rangárvallasýslu.
Kristinn Skasringsson (við stúlkur 16
19 ára, mynd fylgi), Skóga-skóla,
Rangárvallasýslu.
Guðmar Ragnarsson (við stúlku 17
—19 ára, mynd fylgi bréfi), Sandi,
Hjaltastaðarþinghá, N.-Múlasýslu.
í>órdís Marteinsdóttir (við pilt 18—
20 ára, mynd fylgi bréfi), Flatey,
Breiðafirði.
Guðrún Jensdóttir (við fólk á aldr-
inum 75—90 ára), Djúpavík,
Strandasýslu.
Friðrikka Sigurðardóttir (við fólk á
aldrinum 75—90 ára), Djúpavík,
Strandasýslu.
Iladda Jónsdóttir (við pilta 18—21
árs, mynd fylgi), Símstöðinni,
Siglufirði.
Beta Kristinsdóttir (við pilta 18—21
árs, mynd fylgi), Símstöðinni,
Siglufirði.
Baldvina Óladóttir (við pilta 18—
21 árs, mynd fylgi), Simstöðinni,
Siglufirði.
Úr ýmsum áttum —
Ætlunin er aj stofna safn Samein-
uðu þjóðanna. Áætlunum í sambandi
við það er ekki ennþá lokið, en ef
þetta kemst í framkvæmd, er áform-
að að stofna safn þar, sem hver ein-
stakur hlutur ber vott um sögulega
viðburði, sem enn eru svo nálægir, að
þeir hafa næstum ennþá áhrif á
stjórnmálasögu vorra tíma.
5. nóv. í Odeon-leikhúsinu í London var sýnd kvikmyndin, Where no
vultures fly, (Þar, sem engir gammar eru). Þetta er litmynd, tekin í
Afriku af Harry Walt. — Aðalhlutverkin eru leikin af Anthony Steel,
Dinah Sheridan og Harold Warrender. Kvikmyndin segir sögu manns, sem
tekur nærri sér, hve mikið af dýrum á sléttum Afríku er drepið að óþörfu
og til gamans. — Þarna eru sýnd öll þau dýr, sem Afríka er fræg fyrir,
fílar, ljón, gíraffar, apar o. s. frv. — Leikararnir i kvikmyndinni og allir
aðrir aðstoðarmenn höfðu bækistöðvar sínar 200 mílur frá Nairobi, nálægt
hinu snæviþakkta fjalli Kilimanjaro, og þarna komust þau i ævintýri, sem
voru næstum því eins skemmtileg og spennandi og viðburður kvikmyndar-
innar. Þau dvoldu í frumskógunum í nokkra mánuði. — Harry Watt er
mjög merkur kvikmyndastjóri og hefur tekizt vel við töku annarra kvik-
mynda. — Anthony Steel, Dinah Sheridan og Harold Warrender munu að
öllum líkindum hljóta heimsfrægð að launum fyrir leik sinn í þessari mynd.
— Myndin er af Anthony Steele og Susan Stephen og er tekin við frum-
sýningu myndarinnap ,,The Magic Box“, 18. september síðastliðinn í Odeon,
Leicester Square, London.
Foringjar samningsnefndanna í Kaesong.
Til vinstri sést Nam II hershöfðingi, foringi samninganefndar norðan-
manna í Kaesong. Til hægri er Charles Turner Joy flotaforingi, formaður
samninganefndar Sameinuðu þjóðanna.