Vikan - 01.11.1951, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 42, 1951
-O
FRÉTTAMYNDIR
Bamey Thier frá Brooklyn, New York, spennir greipar alls-
huga feginn, er hann losnar við þá ákæru, að hann hafi verið
riðinn við dauða nágrannakonu sinnar. Eiginkona hans er ekki
síður glöð yfir þessum málalyktum og faðmar hann að sér.
:
BóntMnn Raymond T. Bailey horfir á starfsmenn heilhrigðisdeildar-
innar tæma skeppur af afurðum hans í úrgangsvagninn í Bronx Termi-
nal Market. Þar sem honum var boðið aðeins 25 cent fyrir skeppima,
þó að körfurnar einar kosti hann það, ákvað Bailey að fleygja heldur
uppskerunni en selja.
Betty Danielson hefur klæðst hollenzkum búningi í tilefni af
komu 15.000 tonna farþegaskipsins „Ryndam" til New York.
Var þetta fyrsta ferð hins hollenzk-ameríska skips og voru með
þvi 845 farþegar.
Franski landvarnamálaráðherrann Jules Moch (efri mynd, annar frá
hægri) og landvarnamálaráðherra Betlands Emanuel Shinwell (neðri
mynd, til vinstri) voru meðal annarra gestir í Washington frá þjóðum
Atlantshafsbandalagsins.