Vikan


Vikan - 30.04.1953, Side 8

Vikan - 30.04.1953, Side 8
Nýi bíllinn hans frænda RÖDDIN hans frænda míns barst til mín gegnum símann, skræk af taugaóstyrk og hrifningu: — Komdu hingað og þá skal ég sýna þér nýja bílinn minn, sagði hann. — Ég var að fá hann heim og nú ætla ég að skreppa niður á lögreglustöð til að sækja ökuleyfið mitt. Þetta var furðuleg frétt. Frændi hafði tvis- var áður reynt að fá ökuleyfi,/ en í hvorugt skiptið haft heppnina með sér. Hann hélt þvi fram, að orsökin lægi I því, að hann hefði einhver æsandi áhrif á ökukennara. En það væri áreiðanlega ekkert bogið við kunnáttu hans. Ég skoðaði þetta gijáandi furðuverk í krók og kring, meðan frændi útskýrði með háfleyg- um orðum alla kosti farartækisins umfram aðra bíla. Mig minnir að hann segði að þetta væri fyrsta flokks ,,Chopin“-bíll, en það getur vel verið að ég rugli því saman við eitthvað annað. Mig dauðlangaði til að spyrja hann um, hvernig hann hefði farið að því að fá öku- leyfið — hvort hann hefði sett upp falskt skegg eða breytt áhrifum sinum á ökukenn- ara. En ég þorði það ekki. Syngjandi kátur tók frændi strætisvagn, til þess að fara á lögreglustöðina. Frænka gekk einu sinni enn kringum bílinn og þurrkaði af honum imyndað ryk. — Þetta er dásamlegur bíll, sagði hún. — Okkur hefur dreymt um að eignast svona bíl síðan við giftum okkur. Hún settist við stýrið og fór svo að ýta á ýmsa hnappa. — Komdu upp í. Við skulum reyna hann. Ég hélt að hana langaði til að vita hvernig það væri að sitja í honum, en ég hlýt að hafa misskilið hana. Áður en ég fékk tíma til að setjast, kastaðist ég ofan í sætið og á sama augnabliki kom annar steinstólpinn í hliðinu í ljós fyrir framan bílinn. Ég get aldrei skilið hvernig nokkur mannlegur máttur gat afstýrt því, að við rækjumst á stólpann, en áður en ég hafði ráðrúm til að loka augunum, ókum við á fleygiferð eftir götunni og vorum næst- um komin inn í mjólkurbil. Bílstjórinn hélt auðsjáanlega, að þetta væri banatilræði við sig, því hann varð alveg fjúkandi vondur. — Hvað sagði hann? spurði frænka forvit- in. En þegar ég sagði henni það, roðnaði hún og varð sármóðguð. — Þetta hlýtur að vera einhver dóni. Ég komst að raun um að frænka gamla hafði sérstaka hæfileika í þá átt að smjúga á milli bíla, stela réttinum af hverjum sem var og aka hægra megin á götunni. Og þetta virtist hafa truflandi áhrif á alla aðra bíl- stjóra. ■— Ég get ekki skilið, hvers vegna hann vill alltaf vera hægra megin á veginum, sagði hún. Ég starði á hana, og hræðilegur grunur hel- tók mig. — Hvað er langt siðan þú fékkst ökuleyfi? spurði ég. — ökuleyfi ? sagði frænka min undrandi. — Satt að segja hef ég ekki ökuleyfi, en þetta gengur Ijómandi vel. Frændi þinn er svo oft búinn að segja mér hvernig eigi að aka bíl. Ég held að ég hafi sagt að þama þyrfti ég einmitt að fara úr, en með sjálfum mér vissi ég, að ég var glataður, og ég beygði mig fyrir örlögunum. Rólegur horfði ég á það, þeg- ar sparihatturinn minn tókst á loft og hvarf fyrir næsta horn, og þó ég sæi á eftir sendi- sveini sem forðaði sér á reiðhjóli niður kjall- Framhald á bls. 14. — Hver gaf henni hana? — Það gerði ég. — Og kom enginn í heimsókn um kvöldið? ■—- Enginn, herra minn. -—• En fyrr um daginn? — Ég man ekki eftir að nokkur kæmi. Ung- frú Adams kom hvorki heim í hádegismat né síðdegiste. Hún kom ekki heim fyrr en um sex leytið. — Hvenær kom mjólkin? Mjólkin sem hún drakk í gærkvöldi ? —■ Hún fékk af nýju mjólkinni, það er að segja af síðdegismjólkinni. Mjólkursendillinn skilur hana alltaf eftir við dyrnar um fjögur leytið. En ég er viss um að það var ekkert að mjólkinni. Ég notaði hana sjálf út í teið mitt í morgun. Og læknirinn sagðist líka vera alveg viss um að hún hefði tekið þetta hættulega lyf sjálf. — Það getur verið að ég hafi rangt fyrir mér, sagði Poirot. — Já, það getur vel verið að ég sé á rangri leið. Ég ætla að tala við læknirinn. En Ungfrú Adams átti óvini. 1 Ameríku er allt svo ólíkt því sem það er hér . . . Hann þagnaði og hún greip agnið. — Já, ég veit það. Ég hef lesið um Chicago og alla glæpamennina þar. Það hlýtur að vera óguðlegt land og ég get ímyndað mér, að lög- reglan þar sjái sitt af hverju. Það er eitthvað annað en lögregluþjónarnir okkar. Poirot lét þetta gott heita og var harðánægð- ur með að þessi hugsunarháttur losaði hann við að útskýra málið fyrir Alice Bennett. Hann kom auga á skjalatösku, sem lá á stól. — Var ungfrú Adams með þessa tösku, þegar hún fór út í gærkvöldi ? — Hún fór með hana í gærmorgun. Þegar hún kom aftur heim var hún ekki með töskuna, en í gærkvöldi kom hún með hana. — Jæja? Má ég opna hana? Alice Bennett hefði nú leyft hvað sem var. Hún var eins og flest tortryggið og slungið fólk, þegar einu sinni var búið að sannfæra hana, hvert sem var. Hún hefði samþykkt hvað, sem Pairot hefði dottið í hug að fara fram á. Taskan var ekki læst. Poirot opnaði hana. Ég gekk til hans og leit yfir öxlina á honum. — Sjáðu Hastings, sjáðu, muldraði hann æst- ur. Innihaldið var sannarlega fróðlegt. Þar var dós með andlitsfarða, innlegg í skó, sem notað er til að hækka fólk um 'einn eða tvo þumlunga, gráir hanzkar og að lokum eitthvað vafið innan í pappír. Það reyndist vera falleg hárkolla með gullnu hári, skiptu í miðju og krulluðu i hnakkanum, alveg eins og hárið á Jane Wilkinson. — Efastu lengur, Hastings ? spurði Poirot. Ég held að fram að þessu hafi ég verið í vafa, en nú gat ég ekki efast lengur. Poirot lokaði töskunni aftur og sneri sér að stúlkunni. — Vitið þér með hverjum ungfrú Adams borð- aði í gærkvöldi ? — Nei, herra minn. / — Vitið þér með hverjum hún borðaði mið- degisverð eða drakk síðdegiste? — Ég veit ekki með hverjum hún drakk teið, en ég held áð hún hafi borðað með ungfrú Driver. — Ungfrú Driver? — Já, ungfrú Driver var mikil vinkona henn- ar. Hún hefur hattabúð i Moffattstræti, rétt við hornið á Bondstræti. Búðin heitir Geneviev. Poirot skrifaði heimilisfangið í vasabók sína hjá nafni læknisins. — Aðeins eitt enn, Madame. Munið þér eftir nokkru óvenjulegu eða eftirtektarverðu — hversu lítilfjörlegt sem það er — sem Mademoi- selle Adams sagði eða gerði þegar hún kom heim klukkan sex? Stúlkan hugsaði sig um 'í nokkrar mínútur. — Nei, því miður man ég ekki eftir neinu, sagði hún að lokum. — Ég spurði hana hvort hún vildi te, en hún sagðist vera búin að drekka. — Jæja, sagðist hún vera búin að drekka, endurtók Poirot. Afsakið, haldið áfram. — Og svo sat hún við bréfaskriftir þangað til hún fór aftur. — Bréfaskriftir ? Vitið þér hverjum hún skrif- aði? — Já, herra minn. Hún skrifaði eitt bréf — til systur sinnar í Washington. Hún var vön að skrifa systur sinni reglulega tvisvar í viku. Hún tók bréfið með sér, til að setja það í póstkassa, svo það næði næstu póstferð. En svo hefur hún gleymt þvi. — Er það hér enn? — Nei, herra minn. Ég setti það í póstkassanm Hún mundi eftir því rétt áður en hún fór i rúmið í gærkvöldi og ég bauðst til að hlaupa með það út. Það var enn tími til að koma því, með því að borga meira undir það og setja það í aukakassann. — Og er hann langt héðan ? — Nei, pósthúsið er hérna hinu megin við næsta götuhorn. — Læstuð þér dyrunum á eftir yður? Bennett starði á hann: — Nei, ég lagði hurð- ina aftur, eins og ég er vön að gera, þegar ég fer í pósthúsið. Poirot virtist ætla að segja eitthvað — en svo- hætti hann við það. — Viljið þér sjá hana? spurði konan með tárin í augunum. — Hún er svo falleg. Við gengum á eftir henni inn i svefnherbcrgið. Carlotta Adams var einkennilega róleg á svip- inn og miklu unglegri en hún hafði verið, þeg- ar við sáum hana á Savoyhótelinu. Hún var eins og sofandi, þreytt barn. Það færðist einkennilegur svipur yfir andlit Poirots, meðan hann horfði á hana. Ég sá að hann gerði krossmark yfir henni. —• J’ai fait un serment, Hastings, sagði hann þegar við gengum niður stigann. Ég spurði hann ekki hvers konar eið hann. hefði svarið. Ég 'gat getið mér þess til. Nokkrum mínútum seinna sagði hann: — Eimt fargi er þó að minnsta kosti létt af mér. Ég hefði ekki getað bjargað henni. Hún var dáin þegar ég frétti um andlát Edgwares lávarðar. Mér er huggun í því. Já, mér er mikil huggun í því. 8

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.