Vikan


Vikan - 14.06.1956, Side 3

Vikan - 14.06.1956, Side 3
Nú segja læknarnir og vísindin: >Ú GETUR LENGT ÆVI- SKEIÐ ÞITT UM TlU ÁR T^F þú tekur þér tak og byrjar strax í dag, þá geturðu lengt líf þitt um allt að tíu ár. Það þarf heldur ekki að kosta þig mikið erfiði. Þú þarft aðeins að fylgja nokkrum einföldum heilbrigðisreglum, sem eiga rætur sínar að rekja til nýjustu uppgötvana á sviði læknavísindanna. Æviskeið okkar mannanna hefur sífellt verið að lengjast. Það á eftir að lengjast enn — og til mikilla muna. Meðal menn- ingarþjóða hefur meðalævin lengst um tuttugu til þrjátíu ár á fáeinum áratugum. Barn, sem fæðist í Bandaríkjunum í dag, getur til dæmis vænst þess að lifa í ein sjötíu ár. Við getum þakkað það hinni öru þróun á öllum sviðum, hve meðalœvin hefur lengst. En við þurfum ekki endilega að vera bundin við þetta meðaltal. Við getum sjálf stóraukið líkurnar fyrir því, að við verðum langlíf. Já — ef ’ ú nennir að hafa fyrir því, geturðu bætt allt að tíu árum við ^fcið áætl- aða æviskeið þitt! Framtak og hreyfing — það er allur galdurinn. Til þess að lifa lengur, verðurðu að hafa næg verkefni að spreyta þig við, líkamlega og andlega. Þú verður að halda áfram að lifa þótt þú eldist, að halda áfram að taka þátt í því, sem fram fer í kringum þig. Þetta þýðir engan veginn, að þú þurfir að búa til einskonar stundatöflu og fylgja henni til æviloka. Þú þarft einfaldlega að kynna þér, hvað það er, sem langlífi er einkum talið byggjast á, og ákveða að því loknu, hvaða leið til andlegs og líkamslegs heilbrigðis sé þér best að skapi. Hér skulu aðalatriðin talin upp. Þyngd. Þú hefur þegar heyrt, að offita geti orðið þér að aldurtila mörgum árum fyrir tímann. Lækna hefur hins- vegar til skamms tíma greint á um það, hvaða þyngd hæfði bezt hverjum aldursflokki. Nú telja bandarískir vísindamenn sig hinsvegar hafa leyst þessa þraut. Eftir umfangsmiklar rannsóknir telja þeir sig vera búna að komast að því, hvaða hlut- föll milli vöðva og fitu séu ákjósanlegust fyrir mannslíkamann. Á grundvölli þessara útreikninga hafa þeir svo samið skrá yfir það, hvaða líkamsþyngd hæfi hverjum aldri bezt, með hliðsjón af kynferði, stærð og líkamsbyggingu. Ein staðreynd blasir þá strax við mönnum: Heilsu sinnar vegna ber þeim að megra sig úr því þeir eru orðnir fertugir. Eftir því sem menn eldast, rýrna vöðvar þeirra, en fitan eykst. Því er það, að ef þyngd þín helst óbreytt eða eykst eftir fertugt, þá ertu hlutfallslega að rogast með sífellt hættu- legri fitubyrði utan á þér. Líkamleg hreyfing. Þú hefur árum saman heyrt því haldið fram, að líkamleg hreyfing og áreynsla sé heilsusamleg. Lækn- arnir voru þó á báðum áttum um (og sumir eru það enn), hve mikið gagn menn hefðu af þessu með hliðsjón af langlífi þeirra. Rannsókn, sem lokið var fyrir skemmstu í Englandi, sýnir, að menn, sem stunda vinnu, sem krefst daglegrar hreyfingar og nokkurrar áreynslu, lifa að meðaltali átta árum lengur en hinir, sem sita allan daginn við vinnu sína. Það liggur þá í augum uppi, að hinum síðarnefndu er það lífsnauðsyn (í orðs- ins fyllstu merkingu) að vinna gegn hinum skaðlegu áhrifum kyrrsetunnar. Það geta þeir gert í frístundum sínum með skemmtilegum íþróttaiðkunum af ýmsu tagi, tómstundavinnu o. s. frv. Hreyfing og hófleg áreynsla skapar heilbrigðan líkama. I heilbrigðum líkama verður hjartað sterkara og út- haldsbetra. Þessi aukni kraftur, segja læknarnin, getur bjargað lífi manna, þegar þeir veikjast. Andlegt heiTbrigði. Allt of margir menn verða sinnulausir og værukærir strax og unglingsárunum sleppir. Þeir láta und- ir höfuð leggjast að nota heilafrumurnar. Hugsun þeirra verð- ur slöpp, framkoman dauðyflisleg. Þetta skapar ýmiskonar hætt- ur. Það er eins með heilann og önnur líffæri: vannotkun sljóvg- ar hann og deyfir. Hinsvegar má brýna hann og skerpa með heilbrigðri- notkun, eins og til dæmis lestri góðra bóka, sam- ræðum og allskyns viðfangsefnum, sem krefjast hugsunar, vak- andi áhuga og eftirtektar. Það er enda fræðilega sannað, að þeir menn lifa lengur, sem gæddir eru heilbrigðri forvitni, en hinir, sem eru hugmyndasnauðir, innhverfir og vinafáir. Til þess að eldast vel, segir dr. Irving Lorge, prófessor við Columbia háskóla, skyldu menn einsetja sér að kynnast ein- hverju nýju á degi hverjum. Þá er einskis að óttast í sam- bandi við ellina. Hvíld. Hópur vísindamanna tók sér fyrir hendur að kynna sér ævisögur mikils fjölda karla og kvenna, sem náð hafði átt- ræðisaldri. Tilgangurinn var sá að uppgötva, hvað væri sam- eiginlegt við sögu þessa fólks, sem gæti hafa verið ein af ástæð- unum fyrir langlífi þess. f ljós kom, að sumt reykti, sumt drakk, sumt var jafnvel talsvert of feitt. En allt hafði pað fengið nœgan svefn allt frá barnæsku. Hve lengi þurfa menn að sofa? Vísindamennirnir hafa kom- ist að þeirri niðurstöðu, að engum manni nægi fjögra til fimm stunda nætursvefn. Tillaga þeirra: minnst sjö tíma svefn til sextugsaldurs og níu tímar eftir það. Auk þeirra atriða, sem hér hafa verið nefnd, er til einfalt ráð til að lengja lífsskeið sitt. Það er að ganga undir læknis- skoðun með vissu millibili. Til dæmis vekur Krabbameinsfélag Framhald. á bls. 19. ÞAU ERU SVÖIMG I’ESSI tvö böm em liungruð. I>au em meðal þeirra, sem mœta dag- lega í einu af sjúltrahúsiun Manila, þar sem þau fá mjólliurlögg og lýsi. Barnalijálparsjóður Sameinuðu þjóðanna leggur hvortveggja til. Þetta er einn þáttur í baráttu samtakanna gegn sjúltdómiun og næringarskorti. Mannúðarstarf Sameinuðu þjóðanna ætti að verða mönnum hvatning til að styrkja þær og efla. 3

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.