Vikan


Vikan - 14.06.1956, Síða 9

Vikan - 14.06.1956, Síða 9
GISSUR SÉR SÉR LEIK Á BORÐI. Rasmína: En hvað mér þyklr vœnt um að þið skulið geta komið! Gissurri er það líka áncegja að fá ykkur. Rasmína: Hafið engar áhyggjur af því að þið finnið ekki bílastæði. Þið getið skilið bílinn eftir á akbrautinni að skúrnum okkar. Rasmína: Berglind frœnka min og Bergkvist maðurinn hennar kom til kvöldverðar. Er það ekki gaman ? Gissur: Það vœri ennþá meira gaman, ef þau biðu okkur einu sinni til sín. Rasmina: Byrjarðu enn einu sinni .... alltaf Gissur: Þetta fólk sezt bara upp hjá að finna að œttingjum mínum. okkur og étur okkur út á gaddinn. Eg Gissur: Ef þú þyrftir að borga matarreikningana, verð að gera eitthvað, til að koma í veg mundirðu gera það líka. fyrir þetta háttálag. Gissur: Þarna er Hermann lögregluþjónn. Nú dettur mér snjallrœði í hug! Gissur: Já, þetta' er álveg óþolandi! Fóllc skilur eftir bílana sína á gangstígnum mínum, svo ég get ekki náð bílnum mínum út. Lögregluþjónninn: Ef ég verð var við það, þá skal ég fara með það á lögreglustöðina. Eldabuskan: Maturinn er tilbúinn. Eg er hrœdd um að steikin verði ofsoðin. Rasmína: Reyndu að hálda henni heitri svolítið lengur. Þau hljóta að koma á hverri stundu. Rasmina: Hvað skyldi hafa komið fyrir þau. Maturinn er eyðilagður. Ég er álveg hissa á að frœnka skuli ekki einu sinni hringja. Gissur: Ef ég vœri í þinum sporum, mundi ég aldrei bjóða þeim aftur. HVAR ERU ÞÆR? HVER HIRTI ÞÆR? HVERT FÓRU ÞÆR? MILLJÓNIR MUSSOLIIMIS ÞEGAR Mussolini hröklaðist frá völdum og bjóst til að flýja norður á bóginn, tók hann þúsund milljónir líra, sem þá voru 112 milljón króna virði, úr bankanum í Milano. Samkvæmt ítölsku blöðunum, tók hann einnig með sér yfir 50 kíló af gulli, sextán milljónir franskra franka, 200,000 svissneskra franka og miklar upphæðir í sterlingspundum, dollurum og spanskri og portúgalskri mynt. Gullið var ekki einungis í stöngum og mótað, heldur voru innan um allskyns gullmunir, sem óbreyttir borgarar höfðu gefið til stríðsrekstursins, svosem giftingahringar og skartgripir alls- kyns. Hvað varð um þennan mikla fjársjóð, sem geymdur var í bílalestinni, sem skæruliðarnir stöðvuðu fyrst við Musso og Dongo og loks við Ponte del Passo? Plvað varð um hin mikil- vægu opinberu skjöl, sem Mussolini safnaði í flýti til stuðn- ings málstað sínum, ef hann yrði að lokum tekinn og ásakað- ur um stríðsglæpi? Þau hurfu öll með tölu. Það er ekki vitað enn þann dag í dag, hvar þau eru niður komin. í nýútkominni bók um Mussolini, segir höfundurinn, Roman Dombrowski, að einræðisherraiin hafi skipt nokkru af fénu milli tryggustu fylgismanna sinna. ,,Renso“, skæruliðinn, sem ritaði frásögn af atburðunum, sem lyktaði með dauða Mussolinis, áð- ur en hann hvarf sjálfur, skýrði frá því, að skæruliðamir hefðu fundið ógrynni svissneskra franka í bíl fasistaforingjans Bam- baccis, og 35 kíló af mótuðu gulli í bíl hins svokallaða „spanska ambassadors“, sem kunni ekki orð í spönsku og hefur væntan- lega verið Marcello Petacci, bróðir hjákonunnar, sem átti eftir að deyja við hlið Mussolinis. Skjölin, en meðal þeirra var handrit Mussolinis með nafn- inu: „Til þess að Italir viti sannleikann“, voru geymd í tveim- ur ferðatöskum, og einvaldurinn ríghélt í aðra svo lengi sem honum var leyft það og bað skæruliðana þráfaldlega að gæta þess að láta hana ekki glatast, þar sem í henni væru feikn- mikilvæg ríkisskjöl. I annarri töskunni var sagt að væru ýms bréf, s§m Sir Winston Churchill hefði ritað Mussolini fyrir styrjöldina. Skæð- ar tungur fullyrða, að það hafi verið vegna þessara bréfa sem Sir Winston tók sér ferð á hendur til Como skömmu eftir styrjaldarlok. Það er vitað með vissu, að töskurnar voru rannsakaðar í Domaso, ef til vill í húsi svissneska auðkýfingsins Luigi Hoff- mann, sem hafði allnáið samband við skæruliðaforingjann ,,Pedro“ og starfaði gegn fasistum bak við tjöldin. Skjalasafnið var að lokum sett til geymslu í bankanum í Domaso, en seinna tekið þaðan, geymt um stundarsakir í kirkju einni, og loks sent áleiðis til Cardona hershöfðingja í Milano. Tveimur skæruliðum var falið að koma því til skila. Annar var „Pietro Gatti“, sem kom á dularfullan hátt við sögu fjársjóðs- ins mikla. En skjölin komust aldrei í hendur Cardona. Fyrrnefndur ,,Renzo“, sem áætlar að peningagildi fjársjóðs- ins hafi samsvarað 2,000 milljónum líra, skýrði svo frá, að skæruliðarnir hefðu í fyrstu geymt féð í húsi Hoffmanns, en strax eftir aftöku Mussolinis, hafi bæði gullið og peningarnir verið sendir í innsigluðum kassa til Como. Kassinn var flutt- ur með vörubíl. En eftir því sem næst verður komið, skaut annar gæzlum mnanna félaga sinn í bakið og hvarf með sjóðinn. Fasistaforinginn Pavolini var líka með peninga í bíl sínum, þegar hann náðist. Þegar farið var með bílinn til Dango, dreif saman mikinn mannfjölda og ýmsir urðu til þess að seilast inn í bílinn og ná sér í „minjagripi". Árangurinn var sá, að aðeins tólf milljónir líra fundust, þegar leitað var í bílnum. „Petro“ lagði þessa upphæð inn í banka béejarins. En sama kvöldið sem hitt morðið var framið, kom kona úr 52. skæru- liðadeildinni í bankann og sótti þessar tólf milljónir til þess að flytja þær til aðalbækistöðva skæruliðanna. Hún hvarf líka og lík hennar fannst seinna í Como vatni. Nokkuð af gulli og peningum var falið í þýzku bílunum, sem fylgdu flóttalest Mussolinis. Þegar skæruliðarnir leituðu í þeim, höfðu þeir fyrst og fremst í hyggju að fullvissa sig um, að engir ítalskir fasistar leyndust í bílunum. Þegar Mussolini fannst aftan á vörubíl, urðu menn að vonum talsvert æstir og skipu- lagningin fór út um þúfur. Því var það, að þegar bílar Kritz rnajórs héldu burt frá Dongo, var mikið af gulli og pening- um enn í þeim. I Domaso stigu tveir þýzkir liðsforingjar niður af einum vörubílanna og spurðu tvær konur, sem þeir sáu, hvort þær gætu vísað þeim á áreiðanlegan mann, sem þeir gætu rætt við um mjög mikilvægt mál. Þeim var vísað heim til Hoffmans, þar sem þeir afhentu honum 33 kíló af gulli og 36 milljónir líra. Hoffmann fannst þetta að vonum mikið fé að hafa liggj- andi heima hjá sér, og honum fannst ráðlegast að láta flytja nokkurn hluta þess til aðalbækistöðva 52. skæruliðadeildár- innar. „Pedro“, foringi hennar, tók við því og lagði það í bankann í Dongo. Samtímis sendi hann yfirmönnum sínum tilkynningu um peningana. Hinn 6. mai var honum falið að senda þá til aðalbækistöðva skæruliðanna í Como, en skæruliðinn, sem falið var að koma þeim til skila, var „Pietro Gatti“ (rétt nafn: Michele Moretti), sem fyrr er nefndur og sem afhenti Pedro kvittun fyrir peningana. En „Gatti“ kom aldrei til Como. Nákvæmlega ári síðar kom hann í leitimar í Milano. Hann var tekinn til yfirheyrslu og bar, að hann hefði komist að þeirri niðurstöðu á leiðinni til Como, að honum bæri að afhenda æðstu hersjórninni fjársjóðinn. En hann hafði enga kvittun í höndunum og ekki gat hann upplýst, hver það hefði verið hjá „æðstu herstjórninni", sem tekið hefði við fénu. Lögreglan fékk málið til rannsóknar, en enn þarm dag í dag er samt hvorki vitað, hvað kom fyrir „Gatti" né fyrir hvern eða hverja hann starfaði. Annar skæruliði, Luigi Canali, sem í styrjöldinni gekk und- ir dulnefninu „Neri“, var myrtur 8. mai. Hann var skotinn í höf- uðið. Líkur benda til þess, að hann hafi reynt að koma í veg fyrir hina dularfullu flutninga á milljónunum og verið drep- inn sem svikari. Að Mussolini látnum, fannst ein taska til viðbótar með skjölum í. Það var í húsi því í Como, þar sem Rachele kona hans hafði dvalið með börnin. Innan um ríkisskjölin fundust nítján forláta heiðursrnerki, innlend og erlend og skreytt demöntum, sem honum hafði áskotnast. ítölsku stjórnarvöldin gerðu heiðursmerkin upptæk — og það var allt og sumt af fjársjóði einvaldsherrans, sem þeim tókst að klófesta. Hvað varð um milljónirnar ? Hver hirti þær eða hverjir? Þeirri spurningu hefur ekki verið svarað svo óyggjandi có cnn þann dag í dag. Mamman: Ein af konunum i bridgekMÍLbnunkiniiWi'>ninms BBidlmBil 8b iJJse giniáv i •■Binii riB'gmi! rtuj ujÖbJs! ; 8 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.