Vikan - 14.06.1956, Page 15
Þú getur legnt æviskeið þitt_____________________
FRAMHALD AF BLS. 3.
Bandaríkjanna athygli á því, að ef fólk almennt fylgdi þessari
reglu þar í landi, mimdi vera hægt að bjarga lífi 80,000 af þeim
krabbameinssjúklingum, sem þar deyja árlega.
Þessir 80,000 deyja af því þeir vitja læknis of seint.
Dr. Edward Henderson, einn af kunnustu læknum Banda-
ríkjanna, hefur eftirfarandi viðbótarheilræði að gefa þeim
mönnum, sem vilja verða langlífir:
1. Porðist áhyggjur og kvíða eins og heitan eldinn. Tauga-
erting af þessu tagi er líkamanum alveg eins skaðleg og sýklar
og vírusar.
2. Fáðu þér blund eftir hádegisverð, ef þú mögulega getur.
Einkum er þetta mjög heilsustyrkjandi, éf þú ert orðinn mið-
aldra.
3. Temdu þér að vera rólegur, hvað sem á dynur.
Vísindamenn ætla, að ef hægt væri að fá almenning til að
fylgja öllum æskilegum heilbrigðisreglum, mætti lengja meðal-
ævina um tíu ár á skömmum tíma.
En þú hefur ekki eftir neinu að bíða. Þú getur byrjað strax
í dag! — ROBERT P. GOLDMAN
HANN FÉKK GLÝJU I AUGUN pramhald af bls. e.
hann, en ef ég hefði fleygt honum út um vagngluggann h.efði eflaust
einhver fundið hann og skartgripaverzlunin síðan getað vísað á mig sem
eigandann."
„Þér hefðuð getað gefið konunni yðar djásnið," sagði leynilögreglu-
maðurinn þurrlega.
„Bíðið bara þangað til þér sjáið hana — hún tekur á móti mér í
Feachington — og spyrjið svo sjálfan yður, hvernig höfuðdjásn af þessu
tagi mundi fara henni!"
Lestin hægði á sér og nam staðar og Michael Corngrass tók upp hatt-
inn sinn og skjalatöskuna og regnhlífina Hann opnaði dyrnar og steig
út. Konon með harðstjóraandlitið steig fram og tók hann eignarnámi.
„Vesalings maðurinn!" tautaði leynilögreglumaðurinn fullur meðaumk-
unar. „Jæja, þú ert frjáls ferða þinna."
En John Creamer hafði naumast heyrt til hans. Hann var að hugsa
um lánið, sem loks hafði fallið honum í skaut, um litla, fallega einbýlis-
húsið, þar sem hann og Emmy mundu vérða hamingjusamari en auð-
kýfingurinn Michael Corngrass og konan hans höfðu nokkurntíma verið.
— JOHN VIGOUR.
FASAN DURASCHARF RAKVÉLABLÖÐIN
hafa farið sannkallaða sigurför um landið. Reynið
FASAN DURASCHARF rakvélablöðin og sannfærist
um gæði þeirra.
EINKAUMBOÐ:
BJÖRN ARNÓRSSON
UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN
Sími 82328 — Reykjavík
VETUR, SUIVIAR, VOR og HAUST
Notið þér eingöngu
Helena Rubinstein
SILK
MINUTE MAKE-UP
ATH. Silk Minute Make Up er
blanda af ekta silkipúðri og silki-
kremi sem engin kona getur verið
án, vilji hún vera vel snyrt.
AÐALÚTSÖLUR
MARKAÐURINN
LAUGAVEG 100
MARKAÐURINN
HAFN ARSTRÆTI 11
,\
19