Vikan


Vikan - 05.09.1956, Blaðsíða 4

Vikan - 05.09.1956, Blaðsíða 4
Ævintýrið um OPC7II ðflBllil UHt I V UHRDU Ævísaga annáluðustu kvikmyndastjörnu veraldar 19 FOBSAGA: Tiittaign smk ir* gömul 6T Greta Garbo orðfn (Táðasta fcvlk- mymlastjarna licimsins og þar að anki milljónamærmgur. En hún er líka orðin ómannblendin og- á sífeldum flótta undan aódáendum og blaðamönnum. Frama sinn á hún algeriega að þakka kvikmynda- stjóranum fræga, Mauritz Stiller, sem tók hana fátæka og fákunnandi upp af götu sinni í Stockhólmi, og kenndi benni smátt sem stórt, þangað til hann skildi við hana fræga stjörnu í Hollytwood, en fór sjálfur heim til Svfþjóðor til að deyja, Annar karlmaðurinn í lífi hennar, John Gilbert, er líka dáinn, nokkuð löngu eftir að hinu fræga ástaræfintýri þeirra hefur lokið. Hljómsveitarstjóranum fræga Leopold Sto- kowski tekst ekki að leiða Gretu upp að altarinu og hann hefur dregið sig í hlé áður en hún kynnist matarræðissérfræð- ingnum Hauser. EKKI leið á löngu áður en Hauser fór að færa út kvíarnar með fyrirlestrum og bréfanám- skeiðum og í Hollywood var auðunninn markað- ur. Kvikmyndastjörnur eins og Clara Bow, Laura La Plante, Billie Burke og Paulette Goddard gerðust nemendur hans. Hauser kunni líka tökin á að auglýsa, hann hafði eitthvað við sig, sem einkum eldri konum fannst alveg ómótstæðilegt, og brátt átti hann líka viðskiptavini meðal ,,fínu“ baðgestanna í Florida. Einn af hinum bandarísku áhangendum hans var frú Ann Astaire, móðir Adelu og Fred Astaires. Adela giftist Cavendish lávai'ði- og gegnum hana fékk Hauser aðgang að því sem hann kallaði sjálfur „fínasta og áhrifa- ríkasta fólkið í London“. Gegnum Adelu kynntist hann ennfremur hinni forríku lady Medl, vinkonu hertogans af Windsor og frú Simpson, og hún varð einn af áköfustu fylgismönnum hans. Hún kynnti hann fyrir Barböru Hutton, Diönu Mann- ers, Franz Josef erkihertoga, Phillippe de Rot- child baróni og mörgum öðrum af „finni stétt- inni“. Þegar Hauser byrjaði að gei'a hosur sínar græn- ar fyrir Gretu Garbo, var hann þegar orðinn vel þekktur og auðugur og áberandi maður í sam- kvæmislífinu í Hollywood. Hann hafði á prjón- unum miklar ráðagerðir um að verða leiðtogi Gretu. Hann byrjaði á því að láta hana breyta matarræði sínu. Hann taldi hana á að hætta við þetta einhæfa grænmetisát en mælti með kjöti, einkum lifur, ásamt sínum eigin réttum; skyri, þurrkaðri undanrennu, geri, sírópi og ávaxtasafa. Greta fylgdi fyrirmælum hans í blindni og þreifst bara vel, eftir því sem vinir hennar segja. En leiðsögn Hausers var ekki aðeins bundin við matarræðið. Hin gerfimennskulega geðlækn- ing hans var einn liðurinn á dagskránni. Hann kvaðst geta „raskað við sálinni", með því að hrista sjúklinginn upp úr makindum og venju- bundnum lifnaðarháttum. Hann setti sér það markmið, að breyta Gretu í glaðlynda sam- kvæmiskonu. Þegar Greta kvartaði yfir höfuðverk, sýndi Hauser henni enga meðaumkun. I stað þess að aumka hana (eins og Stokowski hafði alltaf gert), sagði þessi hressilegi „sálarraskari” að- eins: „Farðu í góða gönguskó og svo fáum við okkur ferskt loft. Það er bezta ráðið við höfuð- verk". Ef hún þá stundi við og kvaðst vera þreytt, þá stakk Hauser ekki upp á því að hún legði sig. 1 stað þess blandaði hann handa henni hress- andi drykk, eins og t. d. ,,sólskinskokteil“ (sem var blanda af appelsínusafa, gulrót og seljurót) eða dreif hana út í bíl og ók henni á mjólkur- bar, þar sem hún gat fengið yogurt. Þegar Greta kvaðst ekki megna að hitta nokkra manneskju, þá útbjó hann veizlu eða skipulagði skemmtiferð. Kvartaði hún yfir svefnleysi, mælti hann með því sem hann kallaði „andlegan kokteil", það er að segja svæfandi seyði af fögrum hugsunum. Greta fór fúslega að ráðum hans. Hún fór með honum í veizlur í heimahúsum og lét sjá sig með honum í veitingahúsum, leikhúsum, hljómleikasölum og á listasýningum. Kunning- skapur þeirra fór brátt að vekja athygli. Lou- 8 | VEIZTt—? | 1. Hvernig farið er með hinar heilögu kýr í Bombay vorra daga; a) hvort trúaðir menn hirða þær innan girð- iga, b) hvort þær ganga ennþá lausar eða c) hvort þær eru hættar að vera = heilagar ? 5 2. Hvar er Hvalbaksbanki eða Hvalbaks- grunn ? : 3. Gary Cooper lék Kobert Jordan og Ingrid Bergman Maríu árið 1944 í kvikmynd gerðri eftir bók eftir Hem- mingway. Hvaða bók var það? | 4. Hver þvoði hendur sínar og sagði: „Sýkn er ég af blóði þessa réttláta manns“ ? i 5. Hverja elskaði Dante? i 6. Hvenær var verzlunin gefin frjáls á 1 fslandi ? I 7. 1 vestanverðu Atlantshafi er 300 eyja eyjaklasi, sem Bretar ráða yfir. Höfuð- i . borgin heitir Hamilton. Hvaða eyjar em það ? I 8. I hvaða borg var stofnskrá Samein- uðu þjóðanna gerð vorið 1945? | 9. Hvaða dagur var áður fyrr kenndur við Óðinn ? | 10. Hvað er það sem hleypur þrátt hæðir yfir vötn og dal ? Nafnið finna ef þú átt, í undirdjúpi leita skal. Sjd svör á bls. llf. SnnHiHHmMimnmmiiimMiimmimiiiniinmimtmimHiti ella 0._ Parson upplýsti lesendur sína um að þau væru svona og hinsvegar. Og Hauser lét nokkr- ar hógværar athugasemdii' falla í fyrirlestrum sínum, eins og og t. d.: „Ég er ekki grænmetis- æta og Greta Garbo er ekki fótstór", og ekki brást að slíkt hefði tilætluð áhrif á kvenfólkið, sem fyllti áheyrendahóp hans. Honum hafði um- svifalaust tekizt að telja Gretu trú urn, að hún hefði gott af því að koma innan um fólk. Það hafði áreiðanlega heldur ekki svo lítið auglýs- ingagildi fyrir hann sjálfan. Rétt fyrir frumsýninguna á „Ninotchku“, 15. nóvember 1939, gátu blöðin skýrt frá því, að Hauser hefði gefið Gretu demantshring og að hún bæri hann á „réttum fingri". Margir undr- uðust það, hvernig blöðin hefðu komizt á snoðir um þetta; það var alveg óhugsandi að Greta hefði frætt þau á því. En hvorki hún né Hauser gáfu neinar yfirlýsingar þar að lútandi, og þegar þau lögðu af stað saman frá Hollywood, í fylgd með Frey Brown, til að eyða nokkurra vikna fríi í New York, þá lofuðu slúðurdálkahöfund- arnir að éta hattana sína, ef Greta væi'i ekki bráð- um gengin í hjónaband. Hauser sýndi Gretu New York í öðru ljósi en hún hafði nokkurn tíma séð borgina. Þau fóru í síðdegisdrykkjur til frú Cornelius Vanderbilt í einbýlishúsið hennar við Fimmtugötu, og á kvöld- in borðuðu þau með hinum frægu kunningjum Hausers. Kvöld nokkurt urðu þau fyrir því að fá ekki borð i matsalnum á Algonquin-hótelinu — og það gaf Hauser tilefni til að segja við Gretu, að ef hún héldi áfram að láta sjá sig á opinber- um stöðum, þá mundi hún brátt ekki vekja rneiri athygli en lögregluþjónn. Á dagskrá þeirra voru jafnvel næturklúbbar og jassknæpur. Eftir nýjár eða í febrúar héldu Greta og Hauser niður til Palm Beach á Florida og settust að á slæpingjahótelinu Whitehall. Frá Florida lá leið þeirra til Nassau á Bahamaeyjum, þar sem þau stigu um borð í hina frægu listisnekkju Axels Wenner-Grens, „Suðurkrossinn“. Eftir að hafa siglt í nokkrar vikur um hafið kringum Bahama- eyjar, lagði snekkjan að landi á Miami, þar sem æfintýri Gretu og Hausers lauk. Fyrir Hauser var þetta bitur endir. Hann hafði í alvöru vonazt til að geta komið til baka til Hollywood með Gretu sem brúði sína. Áður en hann lagði af stað til Florida, hafði hann trúað nánustu vinurn sinum fyrir því, að hann hefði í hyggju að kvænast Gretu og væri búinn að ákveða staðinn í Florida, þar sem brúð- kaupið ætti að fara fram. Svo viss var hann í sinni sök, að hann var búinn að láta skrifa fréttina um brúðkaupið, í samráði við vin sinn hjá „Alþjóðlegu fréttaþjónustunni“, svo að hún væri tilbúin til birtingar fyrirvaralaust! Um leið og athöfninni væri lokið, átti Hauser að láta vita með því að tala við vin sinn i síma. Það sírntal fór aldrei fram! En þó Hauser tækist ekki fremur en Gilbert og Stokowski að leiða Gretu upp að altarinu, þá hélt hann áfram að vera vinur hennar og ridd- aralegur fylginautur eftir komu þeirra til Holly- 4

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.