Vikan


Vikan - 05.09.1956, Blaðsíða 10

Vikan - 05.09.1956, Blaðsíða 10
H E IMIL IÐ RITST4ÓKI: JELlN PALMADÓTTIIí RITHÖFUNDUR OG AUOKÝFINGUR 18 ÁRA GÖMUL UM fátt er meira talað um þeSsar mundir meðal ungra stúlkna í Frakklandi og víðar, heldur en það hver muni hljóta hið mikla hnoss, að fá að leika Cecile, söguhetjuna í skáldsög- unni „Bonjour Tristesse“ sem Francoise Sagan skrifaði fyrir þremur árum, þegar hún var 17 ára gömul, og vakti með því at- hygli alls heimsins, jafnframt því sem hún varð sjálf milljóna- mæringur næstum að segja á einni nóttu. Sagan er íslenzkum lesendtim kunn undir nafninu „Sumarástir“, en hún kom út fyrir jól í fyrra í þýðingu Guðna Guðmundssonar. Tilefni þessarar eftirvænting- ar ungu stúlknanna er það, að eftir að kvikmyndastjórinn Otto Preminger var búinn að leita ákaft en árangurslaust í hópi amerískra og franskra kvik- myndaleikkvenna, þá ákvað hann að hefja leitina að réttri stúlku 1 hlutverk Cecile í stærri hóp, eða meðal allra frönsku- msSlándi unglingsstúlkna, sem vildu senda honum mynd af sér og aðrar upplýsingar. Væru hann og meðdómendur hans svo ekki ánægðir með stúlkuna, sem valin yrði, þegar hún ætti að fara að leika, þá yrðu henni bætt vonbrigðin með mánaðar dvöl á stnnardvalarstað, ásamt einum ættingja sinna. Preming- er var aftur á móti ekki í nein- um vandræðum með að finna mótleikarana, sem verða þau Gregory Peck og Michele Morg- an. Þeim sem kynnast hinni ungu skáldkonu gegnum bókina „Sumarástir“ hættir til að hugsa sér söguna sem nokkurs konar sjálfsæfisögu, þar sem Cecile er engin önnur en Fran- coise sjálf. Þó það sé handhæg skýring á því að svona ung stúlka geti skrifað slíkt snilld- arverk, þá er hún alröng. „Sumarástir“ þegar henni var boðið til Banda- ríkjanna eftir útkomu bókar- innar. Hún á líka bróður, sem er skilinn við konu sína og á tvö börn, og nú hafa systkinin tvö tekið sér íbúð á leigu sam- an. Francoise var rétt miðlungs- nemandi í kaþólskum mennta- skóla, og varð fyrir því óhappi að falla á prófi. Það sumar skrifaði hún bókina sína „Sum- arástir“ á fimm vikum, að sagt er, meðan hún var í sumarleyfi, og lagði svo handritið inn hjá útgefanda nokkrum. Þá var hún 17 ára gömul. Varla var bókin komin út, þegar nóbelsverðlaunahöfundur- inn Francois Mauriac skrifaði: -— Bókmenntalegir yfirburðir blasa við allt frá fyrstu blað- síðu og þeir eru óumdeilanleg- ir. Tólf manna nefnd ströng- ustu og hæfustu bókmennta- gagnrýnenda Frakka veittu henni „Gagnrýnisverðlaunin". Og hvarvetna fékk bókin hið mesta lof. I Frakklandi seldust strax 450.000 eintök af „Sumarástir" og ein milljón eintaka í Banda- ríkjunum. Og bókin var um- svifalaust þýdd á 14 tungumál. Francoise Sagan var orðin fræg- ur rithöfundur og milljónamær- ingur 18 ára gömul. En nú fóru sumir að hafa áhyggjur af henni. Hvaða áhrif mundi það hafa á kornunga, hlédræga stúlku hvernig látið var með hana og henni hamp- að, jafnframt því sem hún stóð nú berskjölduð fyrir allra aug- um. Mundi ekki hégómagirni, sjálfselska, tilgerð, frekja eða falskt lítillæti fara að segja til sín? Og margir spurðu sjálfa sig, hvort hér væri ekki aðeins um að ræða stúlku, sem hefði eins og af hálfgerðri tilviljun tekizt að skrifa eina afburða snjalla bók af tilfinninganæmi æskunnar, og að þar með væri draumurinn búinn. En þær áhyggur virðast ætla að verða ástæðulausar. „Einskonar bros“ Þrátt fyrir auðæfin hefur Francoise í engu breytt lifnað- arháttum sínum. Hún gengur enn í sama einkennisbúningn- um sínum: blárri peysu, sléttu pilsi og háhæluðum skóm, greið- ir hárið á sama hátt og áður, en notar ef til vill ívið meira púður og varalit. Hún hefur gaman af að dansa og leika dægurlög á grammofóninn sinn. Einasta óhófið sem hún veitti sér, var að kaupa gamlan jag- úarbíl, sem kemst 240 km. á klukkustund, en hún hefur ein- staka nautn af því að aka hratt. Og hún hefur haldið áfram að vera hlédræg. Henni leiðast Francoise Quoirez er komin af ósköp venjulegri borgara- fjölskyldu, sem búsett er í París. Foreldrum hennar kem- ur prýðilega saman. Hún á eldri systur, sem er gift og á f jölskyldu, og það var hún sem ferðaðist með litlu systur sinni, Franoois# Sagaa er enn látlaus og hlédræg. veizlur og blaðamenn og allt þessháttar, en það umber hún með þolinmæði og sýnir ein- stakt umburðarlyndi, en hún verður fljótt leið. Þegar þann- ig stendur á er hún eins og barn, sem er látið sitja of lengi við borðið, og situr óþolinmótt og sparkar í stólinn sinn. Þetta kom greinilega í ljós dag nokk- urn, þegar henni var boðið sem heiðursgesti í heilmikla veizlu í New York. Þegar kom að ræðuhöldunum var Francoise öll á bak og burt. Henni hafði verið farið að leiðast og því læðzt út, sannfærð um að eng- inn mundi veita því eftirtekt í þessum hópi glæsilegra gesta. I fyrravetur sendi Francoise Sagan svo frá sér aðra skáld- sögu sína, sem vakti engu minni athygli en sú fyrri. A einrnn mánuði seldust 250.000 eintök. Þessi saga er líka væntanleg í islenzkri þýðingu Guðna Guð- mundssonar undir nafninu „Einskonar bros“. Kvikmyndafélögin Columbia og Fox kepptust um að fá rétt- inn til að kvikmynda seinni bók- ina. Leikritahöfundurinn Ten- nesee Williams tók sig til og eyddi löngum tíma í að rann- saka verk þessarar ungu stúlku. Billy Wilder hringdi til hennar frá Hollywood og bauð henni eina litla milljón, ef hún vildi skrifa handrit að kvikmyndinni „Rússneska stúlkan Ariane“, en hún var nógu skynsöm til að hafna boðinu, alveg eins og hún hafði hafnað öllum boðum um að vinna við kvikmyndirnar heima í Frakklandi. Ballett óperan í Amsterdam fór meðal annars fram á samvinnu við hana. En Francoise litla held- ur bara áfram að semja ljóð fyrir dægurlagasöngkonuna Ju- liette Greco og skrifa skáld- sögurnar sínar, og er nú síðast byrjuð að reyna sig við leikrit um söguhetju að nafni Elísabet í litlu látlausu íbúðinni þeirra systkinanna. Söguþráðurinn uppspuni Seinni bók Francoise Sagan er stutt, eins og sú fyrri. Sögu- hetjan er tvítug stúlka að nafni Dominique. Hún á ýmislegt sameiginlegt með Francoise sjálfri. Báðum þykir gott að slæpast í sólinni og hanga á kaffihúsum, hvorug hlustar á það sem sagt er við hana, Dominique hirðir lítið um hús- búnaðinn í kringum sig, ef hann er henni ekki til óþæg- inda . . . en söguþráðurinn í „Einskonar bros“ er alger upp- spuni, eins og söguþráðurinn í „Sumarástir“. Og í lífi Fran- coise er enginn kvæntur maður. Hún skrifar bara af næmi og skilningi um vissa lifnaðarhætti og hugsanagang, sem einkennir þá tíma, sem við lifum á. Það er ekki að efa, að „Eins- konar bros“ muni þykja mikiU fengur hér eins og annars staðar, þai' sem bókin hefur komið út. 10

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.