Vikan


Vikan - 05.09.1956, Síða 8

Vikan - 05.09.1956, Síða 8
GISSUR HLÆK FULL SNEMMA. Gissur: Ha? Ertu búin að kaupa nýtt hús? Rasmína: Já, nœsta hús við samkvœmiskonuna frú Hornklofa. Og ég œtla að láta sama bygging- armeistarann sem hún notar, sjá um breytingar á þv'í. Gissur: Rasmína apar állt eftir þessari frú Horn- klofa. Ég er viss um að hún mundi kasta sér i sjóinn, ef frú Homklofa gerði það. Dintý: Heyrðu, ég las í blöðunum, að frú Horn- klofa sigldi til meginlandsíns á morgun. Dinty: Það getur ekki brugðizt, Gissur. TJm leið og þú segir Rasmínu frá því, þá pantar hún far með sama skipi. Og þá verður þú þinn eigin húsbóndi. Gissur: Ég cetla að kaupa þetta blað. Þegar Rasmína: Bn hvað það er dá- Nœsti Gissur: Ég verð hrœðilega einmana án þín, elskan. Rasmína sér greinina, þá byrjar hún undir eins samlegt! Það er ekki mikill tími morgun. Rasmína: Gættu þess nú bara, að ekkert komi fyrir að pakka niður. til stefnu, en ég œtla að panta far þig, meðan ég er í butu. undir eins. Gissur: Þú skemmtir þér áreið- Kalli kúla: Svona á að lifa lífinu. Rasmína: Skriðkvikindið þitt! Svo þannig hag- Hjúkrunarkonan: Þér kannist við frú Horn- Siggi súla: Við getum verið hér á hverju kvöldi. arðu þér um leið og ég er farin út úr húsinu. klofa, er það ekki, Gissur? Hérna stendur að Gvendur sífulli: Heyrið þið, mér heyrist einhver hún hafi hœtt við ferðina til meginlandsins á vera þama frammi. siðustu stundu. Gissur: Ég vildi að ég hefði séð þessi um- mœli fyrr. „SPIKE'* JONES SKEMMTIR FÖLKI MEÐ SKOTIIVELLUM, BÍLAFLAUTI, KÚABJÖLLUHLJÖM, SARGI Á ÞVOTTA- * * * ★ ★ ★ BRETTI OG FÍFLALÁTUM INN A MILLI ★ ★ ★ ★ ★ ★ AÐ er sagt að ekki þurfi annað til að græða fyrstu milljón krónurnar, dal- ina, pundin eða frankana en að búa til betri músagildru en nágranninn og þá keppist veröldin við að færa manni mill- jónina heim að dyrum. Það er einmitt þetta, sem ,,Spike“ Jones, maðurinn sem myrðir tónlistina daglega fyrir gífurlega þóknun, hefur gert. Fertug- ur að aldri er hann orðinn milljónamær- ingur, sem hefur engan tíma til að eyða auðnum. Síðan honum datt það í hug árið 1942, að barsmíð, skothvellir, bílaflaut, glymur í kúabjöllu og sarg á þvottabretti væri nýstárleg tegund af tónlist, hefur hann verið uppáhalds hljóðfæraleikari milljóna ungra Bandaríkjamanna, sem öskra af fögnuði í hvert skipti sem hann stígur upp á sviðið í litskrúðugu köflóttu föt- unum sínum, og halda áfram að öskra af hlátri út alla tónleikana. Hljómplöturnar hans með hinum vit- fyrringslegu útsetningum á Cocktails for Two (með alls kyns grófum aukahljóð- um), Holiday for Strings (með svo djöful- legum hlátri að fólk veltist um lengi á eftir), og öllum hinum skopstældu morð- tilraunum á vinsælum dægurlögum, selj- ast betur en nokkrar aðrar hljómplötur í Bandaríkjunum, og það segir Lindley Arm- strong Jones að komi sjálfum sér meira á óvart en nokkrum öðrum. — Þetta var ekkert annað en grín í upphafi, segir hann í nokkurra mínútna hléi á skemmtiþættinum, sem hann ferð- ast með milli borga í Bandaríkjunum. í flokknum hans eru 40 skemmtikraftar, meðal þeirra svín, dúfur, geit, 240 sm. hár risi, 90 sm. dvergur og 14 „hljómlistar- menn“. — Ég var trompetleikari 1942 og lék á litlum skemmtistöðum í nánd við San Francisco og Los Angeles. Ég hafði alltaf ofan í mig, en gat ekki lagt mikið til hliðar. Ég stjórnaði hljómsveit, ósköp venjulegri hljómsveit í þá daga, en var orðinn dálítið þreyttur á öllum þessum há- stemmdu lögum. Eftir vinnu vorum við vanir að koma saman og gera gys að öllu saman, rétt svona til að létta á skapinu. Einhver bað okkur um að leika eina af þessum lagleysum okkar inn á hljómplötu, og það gerðum við svona rétt upp á grín. Við bættum alls konar skrýtnum hljóðum inn í lagið. Platan seldist í milljónum ein- taka, og við vorum beðnir um meira af svo góðu. Eftir þrjá mánuði vorum við önnum kafnir frá morgni til kvölds við að leika inn á hljómplötur, í kvikmyndum eða útvarpi og skemmta á leiksviði og í næturklúbbum. Nú segir umboðsmaður minn mér, að ég sé orðinn milljónamær- ingur. Ég á sundlaug og hús í Hollywood og dóttur, sem segir mér að þar sé ágætt að synda. Sjálfur hef ég aldrei haft tíma til að reyna fjárans laugina! Þetta segir Spike Jones með einlægri hæversku, og eins og hann geti ekki áttað sig almennilega á því að allt þetta fáist bara fyrir að rífa niður lög, sem aðrir menn hafa skapað í sveita síns andlitis. „Tónlistarrevían sundurtætandi", sem Spike hefur nú ferðast með um þver og endilöng Bandaríkin og farið með í aðr- ar heimsálfur, er ekkert annað en tveggja klukkustunda hávaði með ofurlitlum fífla- látum inn á milli. Viðvaningur, sem villist inn á hljómleika hjá Spike Jones, heldur kannski að hann sé kominn á vitfirringa- hæli. Og um það leyti sem skemmtuninni lýkur, er hann orðinn alveg sannfærður um að svo sé, en það eina sem ef til vill mælir á móti því, er að nú vill hann líka fá að vera með. Þarna getur maður átt von á hverju sem vera skal. Spike Jones þýtur inn á sviðið og út af því aftur, og skiptir í sífellu um köflóttu fötin. Hann á 10 alklæðnaði. Und- arlegir síðhærðir náungar leika á hvell- byssur, „músik“byssur, réttstilltar bíla- flautur og eldspýtustokka. Og dauðar end- ur detta niður úr loftinu, til að skapa hið rétta andrúmsloft. Olíumálverk af Beet- hoven horfir niður á þessa vitfirringa, og þegar lát verður á, rekur Beethoven út úr sér tunguna. Inn á milli sýna gamanleikarar flokks- ins sínar eigin listir. Jones sjálfur stjórn- ar hljómsveitinni með boltapriki, sverði, eldskörungi eða með boxhanzka á hönd- unum. Milli borga ferðast flokkurinn í sér- stakri lest, Einkalest Spike Jones, og lífið um borð er eins og á vitfirringahæli. Jones annast öll sín störf á leiðinni og hefur fjögurra manna lið til að svara bréfum aðdáenda, gera samninga og sjá um ann- að í sambandi við milljón dala veltu. Miklu af frítíma sínum eyðir hann í að ræða við „hljómlistarmenn", sem hafa fundið upp undarlegustu hljóðfæri. — Á lítilli járnbrautarstöð í Kaliforníu fann ég það bezta af því tagi, segir hann. — Þar kom maður upp í lestina með 20 hvellbyssur, sem komið var fyrir í einum ramrna, og þegar hann kippti í streng, léku þær Hallelujah. Með alt þetta fé í bankanum og von í meiru fyrir að gera hávaða á komandi árum, er Spike Jones að líta í kringum sig eftir fleiri stöðum, sem hann getur gert innreið sína í. Samt sem áður finnst honum, að hann ætti bráðum að taka sér frí, til að hvíla taugarnar. — Það sem ég þrái mest af öllu er bara friður og ró í svona hálfan mánuð, segir hann. OLIVER WALPOLE. SMÆLKI Hvernig' gengur? ■— ®g stend andspænis hungri og vesöld. Þð er hræðilegt fyrir ykkur öll. —o—■ Hef ég ekki séð andlitið á yður einhvers staðar áður? Nei, það hefur alltaf verið þar sem það er núna. BLESSAÐ BARIMIÐ Pabbinn: Mér líður ekki sem bezt i day, húsbóndi góður. Ég hugsa að ég jafni mig, ef ég hvíli mig i einn dag. Mamma: Hvernig œtli húsbónda þínum litist á, ef hann vissi hvar Mamma: Hamingjan góða! Konan þarna þú ert ? er að drukkna og það er enginn strandvörð- Pabbinn: Hann yrði alveg æfur. Ég sagðist þurfa að hvíla mig { ur sjáanlegur. einn dag, en ég nefndi það ekki að ég ætlaði að gera það úti á ströndinni Pabbinn: Það kemur víst i minn hlut að bjarga henni. Áhorfandinn: Þessi maður bjargaði lífi hennar! Hann Lilli: Hvers vegna vildirðu ekhn leyfa Ijós- er hreinasta lietja. myndaranum að taka mynd af þér, pábbi? Lilli. Þctta er pábbi minn. Hún hefði birzt i öllum blöðunum á morgun. Pabbinn: Á morgun vil ég einmitt ekki fá slíka mynd í blöðunum. s 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.