Vikan - 12.09.1956, Qupperneq 2
PÓSTURINIM
Fyrir Brynjar, lu o. fl. birtum við
ljóðið „Eyjan hvíta“, sem Smára-
kvartettinn syngur undir lagi eftir
Svavar Benediktsson.
Þó litla, hvíta eyjan vor sé ekki
af akurjörð og dýrum málmi rik,
hún á því meir af fjallatign og frelsi,
og fegurð hennar virðist engu lík.
Og þó að stundum yrði hart um haga,
er hafísbreiður þöktu vík og fjörð,
hún varð í augum dætra og sona
sinna,
er sólin skein, hið bezta land á jörð.
En líkt og fyrr í öllum æfintýrum,
hún álög þung’ af grimmum
nornum hlaut.
Ðg piinsessan varð blásnauð
betlikerling,
og beiskai' raunir féllu henni í skaut.
Bn vel skal sérhvert æfintýri enda,
og enn fór hér sem kusu vinir manns,
þvi kotungssonur kom og leysti hana,
og kóngsríkið og prinsessan varð
hans.
Og því skal aðeins glaða söngva
syngja,
því sólargangur styttist undir haust.
Það getur ekkert grandað því, sem
ástin
fékk gróðursett og varið endalaust.
Ég, kallar Island, eyjan jöklahvíta,
í ykkar hendur framtíð mína sel.
En munið, börn, að stundum endar
illa
margt æfintýri það, sem byrjar vel.
Eg er 12 ára gömul og hef gam-
a af leikurum. En af því ég á aldrei
aura fyrir leikarablöðum og kann
ekki að lesa ensku, þá veit ég aldrei
neitt um þá, eins og hinar stelp-
urnar. Geturðu ekki sagt mér eitt-
hvaJð nýtt, hvaðá vinsœlir leikarar
FORSlÐUMYNDINA
tók Garðar Pálsson, 1. stýrimaður
á Ægi. Hún er tekin vestur af
Kolbeinsey.
BRÉFASAMBÖND
Birtlng á nafni, aldri og heimilisfangi
hostar 5 krónnr.
Mr. Jim Panos (við 13—14 ára
dreng), 2160 E1 Molino Place, San
Marino 9, California, U.S.A. — Ruth
Marienne Bjerke (14 ára gömul)
Myrbendshaugen, Nord-Norge. —
Kristín Þorgeirsdóttir (við pilta eða
stúlkur 15—18 ára) Ytra-Núpi,
Vopnafirði. — Geirþrúður Pálsdóttir,
Sandvík og Hólmfríður Luthersdótt-
ir, Fosshóli (við pilta 16—20 ára),
báðar í Bárðardal, S.-Þing. — Þóra
Þórisdóttir (við pilta eða stúlkur 13
—15 ára) og Þuríður A. Steingríms-
dóttir (við pilta eða stúlkur 14—15
ára), báðar í Reykholti, Borgarfirði.
MUNIÐ
NDRA MAGASIN
eru að skilja, hverjir eru að gifta sig,
hverjar eiga von á barni o. s. frv.
SVAR: Við skulum sjá hvort við
getum ekki tínt eitthvað til, svo þú
standir ekki hinum stelpunum á
sporði: Elizabeth Taylor er að skilja
við brezka leikarann Michael Wilding.
Hún er 24 ára en hann 43. Marilyn
Monroe er nýgift rithöfundinum
Arthur Miller. Balletdansmærin og
leikkonan Leslei Caron (Lily) er ný-
gift brezkum leikstjóra að nafni
Peter Hall. Þau eru 23 og 24 ára
gömul. Edward G. Robinson er að
skilja við konuna sína eftir 29 ára
hjónaband. Svo komum við að barn-
eignunum. Vivian Leigh átti von á
barni eftir 17 ára hjónaband þeirra
Laurence Oliviers, en missti það.
Olivia de Haveland er nýbúin að
eignast dóttur. Maðurinn hennar er
franskur blaðamaður Pierre Galant.
Þetta er allt sem við munum eftir
svona rétt í bili. Kannski verða
ósáttu hjónin líka tekin saman aft-
ur þegar þetta kemur út og nýgiftu
hjónin skilin. Þetta gengur svo fljótt
fyrir sig i Hollywood.
Svör við „Veiztu — ?“
á bls. 4:
1. Um 50 km. suður af Köln, í Rín-
ardalnum. — 2. Nei, Miko Skofic er
eiginmaður Ginu Lollobrigidu. — 8.
Mánadagur. — 4. Það er óperan
fræga í Mílano á Italíu. — 5. Kain.
— 6. I rJapan. — 7. 480 m. — 8.
Hercule Poirot. — 9. Nei, það er
Róm, sem byggð er á sjö hæðum.
10. Skugginn.
CERTINA
A U T D M A T I C
r
VIÐURKENNT MERKI
FÆST HJÁ ÖLLUM ÚRSMIÐUM —
ÍSABELLA
KVENSOKKAR
ISABELLA
(Skrásett vörumerki)
Gult merki:
ÍSABELLA — MARTA
fyrir granna fætur
ÍSABELLA — MINA
fyrir gildari fætur.
ÞUNNIR, MJÚKIR, FALLEGIR
ENDAST VEL.
Blátt merki:
Fallegir, sterkir til allra daglegra starfa
Sokkareiknincfurinn lœkkar vendega hjá þeim sem nota ISABELLA.
ÍSABELLA-sokkarnir eru búnir til af stærstu sokka-
verksmiðjum Evrópu — í Tékkóslóvakíu.
VMBOÐ OG BIRGÐIR:
ÞÓRÐUR SVEINSSON & 00. H.F.
Utgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J Astþórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.