Vikan - 04.10.1956, Page 6
FIAT
í lofti9
oo tegi
Ím3£
Sitthvað frá þessari heims-
kunnu, ítölsku verksmiðju.
Á þessari síða: Nýju gerðirnar af Fiat fólksbifreiðunum
og úr eimii verk miðjuimi
Á næ tu síðu: Fiat 1400 og 1900 — fimm manna fólks vÁre u
— or f jölskyldubíllinn Fiat 1100
FIAT fyrirtækið var stofnsett árið 5889
af nokkrum kaupsýslumönnum í Tor-
ino á ítalíu. Var þá hafin framleiðsla. á
bifreiðum í verksmiðjum, sem byggðar
voru á bökkum Po árinnar í Carsa Dante
Torino. Gólfflötur þeirra var rösklega
107.000 ferfet og þar unnu þá aðeins 50
verkamenn. En þessar verksmiðjur voru
þær fyrstu sinnar tegundar á ítalíu.
Upphafsmaður og síðar forstjóri Fiat
var Giovanni Agnelli.
Fiat er skammstöfun á Fabbrica Ital-
iana Automobili Torino. Fyrst voru staf-
irnir aðskildir með punktum (F.I.A.T.)
en síðan (1906) hurfu punktarnir og Fiat
nafnið hefur siðan verið notað sem vöru-
merki fyrirtækisins.
Þetta orð er nú löngu frægt orðið um
allan heim. I fyrstu voru það Fiat kapp-
akstursbílarnir, undir stjórn ökukappa
eins og Nazzaro, Lancia, Bordino, Cagno,
Salamano o. fl., sem gerðu Fiat-nafnið
frægt með því að sigra í hverri keppn-
'inni á fætur annarri.
Árið 1906 var fyrii'tækið endurskipu-
lagt á grundvelli aukinnar og fjölbreytt-
ari fi’amleiðslu. Tók það þá að glima við
flugvélaframleiðslu og með auknu hluta-
fé hóf það stálframleiðslu og málmsteypu
Við bættist svo framleiðsla á járnbraut-
um, landbúnaðarvélum, flugvélahreyflum,
þungum vinnuvélum og stórum dieselvél-
um fyrir allar tegundir skipa. og iðnað-
ar. Vegna þessarar fjölbreyttu framleiðslu
myndaðist slagorðið: „Fiat, Terra, Mare,
Cielo“, sem þýðir: „Fiat í lofti, á láði og
legi“.
Aðalverksmiðjurnar eru nú 15 að tölu
og grunnflötur þeirra er yfir níu fermíl-
ur að flatarmáli. Árið 1951 unnu þar um
60 þús. manns, og er áætlað að um helm-
ingur íbúa Torino eigi afkomu sína und-
ir Fiat, enda eru þær langstærstu verk-
smiðjur Italíu og með þeim stærstu í
Evrópu.
Fimmtíu ára reynsla hefur skapað Fiat-
fyrirtækinu hinn ákjósanlegasta grundvöll
til vélrænnar framleiðslu og tekniskrar
nákvæmni. Rannsóknarstofur Fiat, sem
búnar eru öllum nýjustu tækjum, fylgj-
ast með framleiðslunni, finna betri efni
og ódýrari og benda á nýjar og betri
framleiðsluaðferðir. Ungir menn eru þjálf-
aðir af verksmiðjunni til ýmissa starfa.
Hefur Fiat til þess sérstakann skóla, þar
sem hundruð pilta stunda nám, og eru
sumir þeirra síðan kostaðir til framhalds-
náms í háskólum víða um heim.
Fiat á miklar námur í Alpafjöllum.
Sumar hafa verið unnar allt frá þvi að
Rómverjar grófu þar upp gull og silfur
og síðar kopar og jám. Málmgrýtið er
unnið aðallega í tveim verksmiðjum. Mar-
tin og Fiat rafmagns-bræðsluofnar eru
notaðir við vinnslu hráefnisins.
Stærstu hlutir, sem hægt er að steypa
í þessum verksmiðjum, vega allt að 30
tonnum, en þeir minnstu eru um 30
grömm.
Bifreiðaverksmiðjurnar eru staðsettar
í Mirafiori héraði við rætur Álpanna. Það
eru aðallega tvær verksmiðjur sem fram-
leiða bíla, nýiu Fiat-Mirafiori verksmiðj-
urnar og gömlu Lingotto verksmiðjurnar.
Þær fyrrnefndu eru 300 þús. fermetr-
ar að stærð og gætu rúmað eina milljón
og tvö hundruð þúsund manns. Víðátta
þessara verksmiðja er svo mikil, að eft-
irlitsmennirnir verða að aka í bílum á
ferðum sínum um þær.
Þær síðarnefndu eru frægar fyrir
reynslubraut fyrir bíla — sem er á þaki
verksmiðjubygginganna. Braut þessi
er 1.030 metrar á lengd og þolir hvaða
hraða og þunga sem er. Bílarnir aka upp
á þakið eftir hringbrautum.
6