Vikan


Vikan - 25.10.1956, Síða 10

Vikan - 25.10.1956, Síða 10
r H E IMIL IÐ RITSTJORI: ELIN PALMADOTTIR Samlokur á kvöldboröiö (handa fjórum) 8 hveitibrauðsneiðar 2 harðsoðin egg 2 reyktar síldar smjör 200 gr. mayonnaise Til skrauts: pétursselja tómatsneiðar. Skerið skorpurnar af og smyrjið brauðsneiðarnar. Sker- ir eggin í sneiðar. Látið reykta síld og egg á neðri brauðsneið- ina, smyrjið mayonnaisi ofan á og leggið aðra smurða brauð- sneið ofan á. Smyrjið mayonn- aisi ofan á hana og skreytið brauðið með eggjasneiðum, pétursselju og tómatasneiðum. • Þrátt fyrir það að konur hafa nú deilt, hvort leysi af hendi meiri vinnu, konan, sem annast heimili og börn éða maðurinn, sem vinnur úti. Tveir skozkir vísindamenn hafa ný- lega tekið sér fyrir hendur að rann- saka hvert sé hlutfallið milli orku- eyðslu húsmóðurinnar og eiginmanns hennar. Þeir hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að konan eyði eins mik- illi orku í að vaska upp, eins og karl- maður eyði í að stjórna léttri vél i verksmiðju, að það sé álíka erfitt að þvo gólfin, eins og að veggfóðra þil . . . Visindamennii’nir segja, að vinnan við að halda heimili svo að vel sé,. mundi teljast í flokki erfiðisvinnu, ef konur hefðu með sér stéttarfélags- skap, sem berðist fyrir réttindum þeirra. —o— • 1 Englandi er að koma á mark- aðinn lítið tæki, sem hringir um leið og koma dropar úti, svo að húsmóð- irin hafi tíma til að bjarga þvott- inum sínum og loka öllum glugg- um, áður en byrjar að rigna fyrir alvöru. Það mundi sennilega ekki vera mjög friðsamt á Reykjavíkur- heimili, sem hefði slíka bjöllu. —o— • Þrátt fyrir það að konur hafa nú öölast kosningarétt og kjörgengi víðaT um heim, eru táar þeirra í ábyrgðarstöðum eða sitja í háum embættum. Því hærri sem staðan er þess minni líkindi eru til þess að hún sé veitt konum. Þetta á ekki ein- göngu við á stjórnmálasviðinu held- ui' einnig um framkvæmdastörf, ríkis- og bæja embætti, stöður innan verkalýðshreyfingarinnar, innan stjórnmálaflokka og í einkafyrir- tækjum. Það er sjaldgæft, að konur fái forstjóraembætti í viðskiptum og iðnaði. Þetta eru niðurstöður, sem franski prófessorinn, Maurice Duverger, hef- ur komist að eftir að hafa rannsakað málið eftir b.eiðni Vísinda- og menn- ingarstofnunnar Sameinuðu þjóð- anna (UNESCO). Rannsóknir próf- essorsins eru byggðar á opinberum skýi'slum frá Frakklandi, Vestur- Þýzkalandi, Noregi og Júgóslavíu. Skýrslur þessar voru samdar að beiðni Kvenréttindanefndar Samein- uðu þjóðanna á árunum 1952 og 1953. Nú er eltki langt þangað til alls konar böll og héraðsmót íara að byrja off því kominn tími til að fara að bugsa fyrir ballkjólnum. iMMinan hvíta rómantíska kjól teiknaði Castillo kavin i París. Hann er gerður úr fíngerðu Súdan l)aðmullarcfni. Á báð- I um liliðum eru blúnduleggingar frá mitti og niður að faldi, og sjálfur faldurinn er skreyttur á sama bátt. Á bolnum eru hvítar blúnduleggingar snyrtilega lagðar og í hálsinn er rykkt skreyting úr hvítu Súdanbaðmullarorgandí. Á svörtu síðu kvöldkápunni er lílta rykktur kragi úr sama cfni og kjóllinn. Ótti við krabbamein "C'F það er í þágu læknavísindanna að skora á fólk að vera á verði gegn krabbameini, sem í fjölmörgum tilfellum er hægt að lækna, ef það er tekið til meðferðar nægilega snemma og réttum aðferðum beitt, þá er það engu síður í þágu þeirra að vara við ,,krabbameinshræðslunni“, eða því að sjá alls stað- ar krabbamein, sem eitrar líf f jölmargra og verður oft að reglu- legri sálsýki. eiirar !íf fjölmargra segir franskur læknir Krabbameinshi'æðslan á venjulega upptök sín í rótlausu og kvíðagjörnu lundarfari. Undir hana ýta svo rang- ar hugmyndir um eðli krabbameins, um það hvernig það lýsir sér og hvernig það magnast. Fólk ímyndar sér að það sé smitandi eða gangi að erfðum, en hvorutveggja er alrangt. Fólk óttast krabbamein, af því að það þekkir ekki sjúkdómseinkennin. Slík hræðsla er ákaflega algeng. t&g hef vitað til þess að fólk héldi sig vera komið með krabbamein vegna örsmárrar meinsemdar í húð- inni, sem hægt var að lækna á nokkrum dögum, vegna höfuðverkj- ar eða einhverra lítilfjörlegra sjúk- dómseinkenna. Ég hef þekkt konur, sem héldu að þær væru búnar að fá krabbamein, af því að þær litu illa út eða höfðu óþægindi í brjóstunum fyrir tíðir. Annað fólk veit ég um, :sem sífellt er með krabbamein i hug- anum, af þvi „það er í ættinni“ og ímyndar sér öll smávægileg veikindi ólæknándi krabbamein. Bezta ráðið sem ég get gefið þeim, sem sífellt óttast krabbamein, er að leita læknis, tala hreinskilnisléga um það við hann og láta hann rannsaka sig almennilega. Fjöldi fólks, sem óttast krabba- mein, er sannfært um að sjúkdómui'- inn sé miklu útbreiddari en áður. I raun og veru er þetta miklu fremur áberandi en sannleikanum sam- kvæmt, og stafar aðallega af því að miklu fleiri tilfelli þekkjast nú orð- ið og eru sjúkdómsgreind sem slík, og auk þess hefur meðalaldur fólks færst heilmikið aftur (krabbamein er lang algengast hjá fólki sem komið er yfir fertugt). Auk þess sýna skýrslur, að aukin dauðatilfelli af völdum krabbameins stafa aðal- lega af aukningu lungnakrabba og þá mestmegnis hjá karlmönnum. Aftur á móti hefur dánartalan af völdum margskonar krabbameins Jækkað allverulega síðustu tuttugu árin, einkum krabbameins í móðurlífi og brjóstum kvenna. Er krabbainein arfgengt? Það er óhætt að svara þessari spurningu, sem ásækir svo fjölmarga, ákveðið neitandi. Nákvæmar rannsóknir hafa sannað að krabbamein gengur ekki í erfðir. Það er því engin ástæða til að halda að maður fái krabbamein, þó að móðir manns, faðir eða aðrir með- limir fjölskyldunnar hafi fengið það. Samt sem áður má segja, þó með miklum fyrirvara, að vissar f jölskyld- ur virðist móttækilegri en aðrar, alveg eins og þegar um berkla er að ræða eða taugasjúkdóma, án þess að hér sé nokkurt vei'ulegt böl á ferðinni. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt, að krabbamein er alls ekki smitandi, og óhætt er að fullvissa þá sem það óttast, einkum eftir að hafa búið með eða hjúkrað fólki með krabba- mein, að öllu sé óhætt hvað það snertir. Það er eingöngu tilviljunum háð ef margir í sama húsi fá krabba- mein. Krabbameinið er svo að segja alveg sársaukalaust í byrjun. Það kemur aðeins fyrir i örfáum tilfell- um að það valdi sál'sauka i upphafi. Og það er ekki fyrr en það hefur magnast í nokkuð langan tíma og er því komið á nokkuð hátt stig og um leið orðið augljóst, að það fer að valda kvölum. Það er því alrangt að ímynda sér að maður sé með krabbamein, en að læknirinn geti bara ekki fundið það, þó maður finni til óljóss eða stöðugs sársauka. Ef sársaukinn stafar af krabbameini, á læknirinn ákaflega auðvelt með að finna það. Það er heldur ekki rétt að halda að krabbamein sé einhver „óljós“ sjúkdómur, og að það hafi engin ákveðin einkenni: krabbamein er rétt eins og hver annar sjúkdómur, sem hægt er að finna. Er hægt að finna krabbamein á byrjunarstigi ? Vissulega, og það er einmitt þess- vcgna sem lang skynsamlegast er að láta rannsaka sig reglulega í stað þess að hafa áhyggjui' að óþörfu — einu sinni á ári eða einu sinni í mánuði eftir að maður er orðinn 35 ára gamall — og í hvert skipti sem eftirfarandi sjúkdómseinkenni eru fyrir hendi: — óvenjulegur blóðmissir (óvenju- miklar eða langvarandi tíðir, blóð- missir eftir tíðir o. s. frv.) — þroti í brjóstum (einkum sé hann nýkominn og sársaukalaus) — óvenjulegar og þrálátar melt- ingartruflanir (lystarleysi og ógeð á matnum), verkir í sambándi við meltingu, stöðugt og þrálátt harð- lífi, blóðmissir gegnum þarma. — Þroti í húðinni eða slímhimnunni — óvenjulegur og þrálátur hósti — óskýranleg breyting á almennri liðan (ef maðui' horast skyndilega og óaflátanlega, finnur til magnaðrar og þrálátrar þreytu o. s. frv.) Auðvitað á að líta á þessi einkenni sem aðvörunarmerki, en þau benda á engan hátt til þess að um krabba- mein hljóti að vera að ræða. Þau gefa bara einfaldlega til kynna, að rétt sé að .vera á verði og fara strax til læknis eða einhverrar sérfræði- stofnunar, ef hún er fyrir hendi. Skynsamleg forsjálni, sem gerir manni fært að fá rétta læknismeð- fei'ð strax, ef með þarf, á ekkert skylt við ástæðulausan ótta, sem gerir að- eins lífið ömurlegt. O. P. 10

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.