Vikan


Vikan - 08.11.1956, Page 2

Vikan - 08.11.1956, Page 2
POSTURINN Geturðu friett mig um það hvort Uzkuteikning er kennd hér á landi. Viltu gera svo vel að veita mér allar þœr upplýsingar sem þú getur um þcssa námsgrein. SVAR: Við vitum ekki til að neins staðar sé kennd tizkuteikning hér á iandi, aftur á móti er hægt að fá tilsögn í almennri teikningu (t. d. i Handíðaskólanum), en það gæti ver- ið prýðilegur undirbúningur undir tizkuteikninám erlendis. Það eru fáar stúlkur, sem starfa við tízkuteiknun hér á landi. Okkur hefur verið tjáð, að stærri verzlun- um gangi t. d. erfiðlega að fá teikn- aðar þær flíkur, sem þær vilja aug- lýsa í blöðunum. Hér virðist þvi vera verkefni fyrir tízkuteiknara. Mig langar til að biðja þig um að bira fyrir mig garnlan dœgurlaga- tcxta, sem mikið var sunginn fyrir svona 10—15 árum. Hann byrjaði svona: „Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig ó að faðma nctt“. SVAR: Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig á að faðma nett. Hvernig á að brosa blítt og blikka undur þýtt. Ég, sem er svo ungur enn, af ástarþránni kvelst og brenn. Tækifærin fæ ég ei, flestar segja nei. Og vona minna fagra fley er flotið upp á sker. Þú sérð, að gjörvöll gæfa mín, er geymd í hendi þér. Kenndu mér að kyssa rétt og hvernig á að faðma nett. Þú færð í laun minn ástaryl, — allt sem ég á til. Hvaða litir fara mér bezt. Bg er með skollitað hár, brún augu og FORSÍÐUMYNDINA tók Garðar Pálsson stýrimaður BRÉFASAMBÖND Birting ó nalni, aldri og heimilisfangi kostar 5 krónnr. Gisela Ladwig (við 18—21 árs pilt), Berlin-Charlottenburg 4, Nie- buhrstr. 63, Deutschland (skrifar þýzku og ensku) — Gunnar Péturs- son (við stúlkur 18—19 ára) Skriðu- felli, Barðaströnd. MUNID NDRA MAGASIN frekar feit. Hvað á ég svo að vera þung, þegar ég er 164 sm. á hœð. SVAR: Til að geta gefið þér full- nægjandi svar, vantar okkur upplýs- ingar um hörundslit þinn og aldur. Hlýlegir brúnir litir og grámaðir fara þér þó sennilega vel. Ef þú ert 16—24 ára gömul, eins og okkur sýn- ist á skriftinni, þá er hæfileg þyngd rúm 60 kg. Svo er mál með vexti að ég las í einlwerju blaði fyrir skömmu, að Danir hefðu útskrifað fyrstu karl- mennina með hjúkrunarmenntun. Þar sem ég hef mjög mikinn áhuga á lijúkrunarstörfum, langar mig til að biðja þig um að gefa mér eftirfarandi upplýsingar: Hvaða menntun þarf maður að hafa . . . Getur islenzkur karlmaður komizt að við hjúkrunar- nám í dönsku sjúkrahúsi. Viltu þá vera svo góð að benda mér á eitthvert sjúkrahús i Danmörku, sem þú telur líklegt að vilji taka karlmann sem hjúkrunarnema. SVAR: Við erum því miður alls ófróð um þetta mál. En þú getur gert eitt af tvennu. Annað hvort beðið danska sendiráðið í Reykjavík um að leita upplýsinga um þetta fyrir þig, eða skrifað einu af stóru sjúkra- húsunum í Danmörku og beðið um upplýsingar. Þá dettur okkur helzt í hug Rigshospitalet í Kaupmanna- höfn. Annars er það ekkert nýtt að karlmenn stundi hjúkrunarstörf er- lendis, einkum munu þeir vera not- aðir sem sjúkraberai'. En hér höfum við hingað til látið okkur nægja brunaverði til þeirra hluta. Viltn gefa mér utanáskrift leik- konunnar Anitu Ekberg. SVAR: Nýjustu fréttir herma að hún ætli að fara að leika í kvikmynd hjá Columbia kvikmyndafélaginu. Utanáskriftin hennar verður því á næstunni c/o Columbia Studios, 1438 Cowei' Street, Hollywood, Calif. ALUIVIINIUIVi prófílar og stengur eru framleiddar í hvers kon- ar formum og stærðum, og í ýmsum málmteg- undum. Vegna þess hve fjölbreytt úrvalið er, geta aluminium prófílar komið í stað ýmissa annarra hluta við hvers konar framleiðslu. Aluminium er afar létt, og styrk- leikahlutfall þess er mjög hagstætt. Málmurinn hvorki ryðgar né tærist, og þarfnast einskis viðhalds. Umboðstoenn veita allar frekari upplýsingar. Aluminium Union Ltd. The Adelphi John Adam St. London W. C. 2. Umboðsmenn LAUGAVEGI 166 Utgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. -— Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.