Vikan - 17.04.1958, Blaðsíða 2
VERÐUR kona við stýrið
í fyrstu eldflauginni, sem
send verður mönnuð til
tunglsins ?
Það er ekki útilokað.
E>að er álit visindamanna,
að konur séu að likams-
byggingu betur fallnar til
geymferða en karlmenn.
Kvenlikaminn er að ýmsu
leyti sterkbyggðari en
karlmannslíkaminn.
Vandinn verður að finna
konu, sem býr yfir nægri
tæknilegri kunnáttu —
og nógu hugrekki.
Þeir sem ekki vilja taka
mark á hugmyndinni um
,,tunglkonuna“, mega
minnast þess, að meðal
fræknustu og frægustu
flugmanna veraldar hafa
verið margar konur.
VÍSINDAMENN rannsaka
nú hvernig standi á lang-
lífi Indíánanna i fjalla-
héruðum Colombiu í Suð-
ur-Ameríku. Þeir verða
öllum mönnum eldri.
Indíánarnir þakka þetta
jurt nokkurri, sem þeir
borða og hafa miklar
mætur á. Hún vex hátt
í f jöllunum. Vísindamenn-
irnir hafa nú náð sér í
sýnishom af henni og
hafa hana til athugunar.
Það kvað ekki vera óal-
gengt á þessum slóðum
að niræðir Indíánar verði
pabbar.
1 NORÐUR-KANADA er
nú gerð tilraun með að
afgreiða mjólk — frysta.
Þarna eru frost mikil á
vetrum og flutningar á
öllu, sem frosið getur, því
miklum erfiðleikum
bundnir.
Þennan vanda hyggjast
mjólkurframleiðendur nú
leysa með þvi að frysta
mjólkina á mjólkurbúun-
um og senda kaupendum
hana í snotrum pappa-
umbúðum.
ISLANDSFÖR Ölmu Cogan
vakti mikla athygli í
Englandi. Fjöldi brezkra
blaða sagði frá henni.
Það fylgdi jafnan frétt-
inni, að Alma hefði keypt
sér hálfgerðan „heim-
skautafatnað" til farar-
innar og búist við feikn-
miklum kulda.
,,En það var þá hlýrra á
lslandi,“ segir hún, „en
hér hjá okkur.“
Eitt blaðanna hefur það
eftir henni, að vinsælasta
lagið, sem hún hafi sung-
ið fyrir Reykvíkinga, hafi
verið: „Never do a Tango
with an Eskimo.“
ALMA er líka nýbúin að
vera í hljómleikaför í
New York.
Þar söng hún í næturklúbb.
Þar eignaðist hún mikinn
aðdáanda, sem hlustaði á
hana á hverju kvöldi,
skrifaði henni f jölda bréfa
og sendi henni blóm,
Aldur: Tíu ára!
UM EKKERT er nú meira
talað í Hollywood en
ógæfu Lönu Turner og
Cheryl Crane dóttur henn-
ar. Eins og lesendum er
kunnugt, varð Cheryl
Johnny nokkrum Stromp-
anato að bana með hníf.
1 Hollywood eru menn
hræddir um, að atburð-
ur þessi eigi eftir að
draga dilk á eftir sér,
reynast kvikmyndabæn-
lun slæm kynning.
Það bætir ekki úr skák, að
Strompanato var alræmd-
ur bófi og að verknaður-
inn var framinn í svefn-
herbergi hinnar heims-
frægu kvikmyndastjörnu.
ÞAÐ hefur löngum viljað
loða við Hollywood, að
bófar ættu þar meiri
ítök en æskilegt væri,
að kvikmyndaleikararnir
sumir hverjir veldu sér
vægast sagt vafasama
vini.
Sumir hafa jafnvel miklast
af sambandi sínu við
trantaralýðinn.
George Brent er í þeim hópi.
I endurminningum sín-
um, sem hann gaf út í
fyrra, segir hann það ber-
um oröum, að hann hafi
verið afbrotamaður áður
en hann gerðist leikari og
átt og eigi fjölda vina
meðal bandariskra glæpa-
manna.
ÞRJÁR brezkar konur und-
irbúa nú leiðangur á
Everest. Mennirnir þeirra
eru í flughernum og eru
miklir fjallamenn.
Konunum leiddist að dúsa
heima á meðan eigin-
mennirnir priluðu upp um
fjöllin, keyptu sér fjall-
gönguútbúnað og byrjuðu
að reyna þetta sjálfar.
Nú eru þær búnar að klífa
hrikalegustu fjallstinda
Bretlandseyja og þykjast
tilbúnar að leggja i
Everest.
HAMBORGARI nokkur að
nafni Henry komst í blöð-
in fyrir skemmstu þegar
hann hringdi til Moskvu
og bað um að fá að tala
við Krustjoff forsætisráð-
herra. Krustjoff var ekki
heima, en Henry átti
langt samtal við mann
nokkurn, sem kvaðst vera
starfsmaður í rússneska
utanríkisráðuneytinu.
Hvað vildi Henry forsætis-
ráðherranum ?
„Tala við hann um heims-
málin,“ tjáði hann blaða-
mönnum, „og stinga upp
á því, að hann tæki sér
keisaratign!“
KONURNAR eru sifellt að
sækja á. Nýjustu fréttir
af þeim:
• Tuttugu og eins árs göm-
ul stúlka i Israel er orðin
flugstjóri á farþegaflug-
vél. Hún mun vera fyrsta
konan sem fær slíkan
starfa hjá flugfélagi.
• Tæplega þrítug itölsk
kona er búin að öðlast
réttindi sem kafari. Mað-
urinn hennar, sem var
kafari, leyfði henni stund-
um að bregða sér niður.
Þegar hann dó, sneri hún
sér að þessu fyrir alvöru,
og er nú ráðin hjá fyrir-
tækinu, sem hann starf-
aði hjá.
• Þrítug brezk kona, sem
var í sjóhernum á stríðs-
árunum, varð blaðamað-
ur, samdi kvikmynda-
handrit, sneri sér að
tízkuteikningu og loks
gerðist sýningardama,
hefur nú enn einu sinni
skipt um vinnu.
Hún er komin á togara.
FORSlBUMYNDENA
og myndirnar á bls. 8
tók Ingimundur Magn-
ússon.
Vika, viltu birta fyrir mig íslenzkan texta við lagið
Marianne.
Við kunnum tvo texta við þetta lag. Annar er eftir
Björn Braga og heitir ,,Sólin skín“. Hinn er eftir Böðvar
Guðlaugsson og heitir „Óskalandið okkar“. Pann texta
syngur Ingibjörg Smith á hljómplötu, og fer hann hér á
eftir:
Þú kemur með mér, vinur kcer.
Lengst í suðri, fyrir handan haf og lönd
rts úr hafi bláu œvintýraströnd,
þar er óskalandið okkar, vinur kœr.
Ýfist sœr, öldufald klýfur glœstur knör,
okkur tvö yfir sce ber á brúðkaupsför.
Og við safírbláan vog, þar sem gullið aldin grœr,
loks við göngum tvö á land, vinur kcer.
Vilta þrá vakið fá suðraen sólarlönd,
með sedrusvið, eplatré, hvíta pálmaströnd.
Þar við nema skulum land, byggja bambusskýli lágt,
og búa þar við guð og menn i sátt.
Þar verður gott að lifa, þar verður elskað heitt,
þar verður hverju angri í Ijúfa sœlu breytt.
Og þegar tímar líða fram, mun töfrum slungið kvöld
tifa um hvítan sandinn barnafjöld.
Getur þú gert svo vel og
gefið mér upplýsingar um
hvað það tekur langan tíma
að taka „sóló“-flugpróf, og
hvenær það er kennt á ár-
inu og hvað það kostar.
Ef þú hefur t hyggju að
lœra að fljúga, skaltu snúa
þér til Flugskólans Þyts,
sem hefur aðsetur á Reykja-
víkurflugvelli. Eftir að hafa
lœrt flugreglur og undir-
stöðuatriði í flugeðlisfrœði
og notið kennslu í lofti i
12 stundir, hefurðu rétt til
að taka próf, sem veitir
þér réttindi til að fljúga
einn í nágrenni flugvallar
undir eftirliti kennara. En
viljirðu fá réttindi til að
fljúga á eigin ábyrgð hvert
sem er, einn eða með far-
þega, án þess að taka gjald
fyrir, verðurðu að bceta við
32 stundum í lofti og allt
að 100 stunda bóklegu námi
í siglingafrœði, veðurfrœði,
flugeðlisfrœði og flugregl-
um. Fyrra prófið geturðu
tekið eftir að þú ert orðinn
17 ára og það seinna þegar
þú ert orðin 18 ára.
Gætir þú ekki gefið mér
upplýsingar um leikarann
Jack Palance?
Það eina sem við vitum um
hann er, að nýjasta mynd-
in sem hann hefur leikið í,
heitir „House of Numbers“
og er frá Metro-Goldwyn-
Mayer.
Geturðu gefið mér upp-
lýsingar um hver kennir
dans í einkatímum ?
Viðskiptaskráin gefur upp
tvo danskennara: Sigríði
Ármann (simi 10509) og
Rigmor Hanson, Laugavegi
72, (sími 13159).
Hvernig er það, starfa
leikskólarnir í Reykjavík
allt árið? Hvað kostar t. d.
á mánuði að ganga í þá ?
Hve gamall þarf maður að
vera ?
Nei, leikskólarnir starfa að-
eins á veturna. Á haustin
fara fram inntökupróf í
leikskóla Þjóðleikhússins,
en þar verður að leggja
fram meðmœli frá leikara,
sem kennt hefur nemanda.
Það mun því vera til œtlast
að nýir nemendur þar hafi
verið i einkaskóla hjá ein-
hverjum leikara. Hvað verð
og skilyrði snertir, verðurðu
að leita upplýsinga hjá
hverjum leikkennara fyrir
sig.
Framh. á bls. 15.
orðsending
Vegna lesenda Vikunnar úti á landi, verður ekki hægt
að birta úrslit verðlaunakeppninnar fyrr en í næsta blaði.
Þegar blaðið fór í pressuna, voru svör enn að berast. Þar
sem sýnt þótti, að svör ættu enn eftir að koma frá ýms-
um stöðum fjarri Reykjavík, þótti ekki nema réttlátt að
framlengja frestinn um nokkra daga. Er þá lesendum
blaðsins öllum gert jafnhátt undir höfði — jafnt þeim sem
búa við tregar póstsamgöngur.
Blaðinu hafa þegar borizt tugir ráðninga. Margar eru
réttar. Þegar þar að kemur, verður því hlutkesti að ráða,
hver hreppir vinninginn.
IJtgefandi VIKAN H.F, Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 15004, pósthólf 149.