Vikan - 18.06.1959, Page 3
VIKAlll
Útgefandi: VIKAN H.F.
Ritstjóri:
Gísli Sigurðsson (ábm.)
Blaðamenn:
Bragi Kristjónsson, Jónas Jónasson
Auglýsingast jóri:
Ásbjörn Magnússon
Auglýsingasími 16648
Framkvæmdast jóri:
Hilmar A. Kristjánsson
Verð í lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr. 216.00
fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram.
Ritstjórn og auglýsingar:
Tjarnargata 4. Sími 15004, pósthólf 149.
Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Miklubraut 15, sími 15017.
Prentun: Steindórsprent h.f.
Kápuprentun: Prentsmiðjan Bdda h.f.
Myndtunót: Myndamót h.f.
Jói I.
Áberandi tilfinninganæmi, sem þarfnast sálar-
legs felustaðar, þegar ilia blæs. Þetta sýnir hin
ljósa tilhneiging skriftarinnar til þess að leita
til hægri. Jói er langt frá því að vera svo fast-
mótaður, að holl ráð komi honum ekki að gagni.
— Hið jákvæða í eðli hans er:
Samvizkusemi og skyldurækni í daglegu lifi.
Punktar yfir „i“ og kommur yfir „ö“ sýna
reglusemi. Ennfremur hefjast línurnar í næstum
nákvæmlega beinni línu, auk þess sem bilið milli
þeirra er næstum jafnt, sem sýnir greinilega, að
Jói er nákvæmur, þrautseigur og lætur sig smá-
atriði miklu skipta. Til dæmis myndu þessir
hæfileikar njóta sín vel, ef Jói veldi sér að at-
vinnu: Úrsmíði, letui’gröft, tréskurð eða eitthvað
þvi líkt, sem hann gæti glímt við, án þess að
leggja hart að sér líkamlega. — Það er þessi
hæfileiki til þess að ráða fram úr smáatriðum,
sem gerir honum kleift að velja sér þessar starfs-
greinar. En Jói myndi aldrei hæfur til vinnu sem
krefst a) mikils umstangs; b) likamlegrar orku
eða c) augnabliksframkvæmda, skaphita og
hraða. — Hann er stundum ekki einungis hóg-
vær, héldur einnig fíngerður, tilfinninganæmur
og feiminn. Ég vil biðja Jóa að lesa um innri
hömlur sínar og minnimáttarkennd. Hann er ef
til vill ekki ofurmannlegum líkamskostum búinn,
en í honum býr samt næg skynsemi og at-
orka, til þess að ráða fram úr erfiðleikum þeim,
sem kunna að verða á vegi hans.
Kæra Vika.
Ljótt þykir mér að sjá unglingana nú til dags.
Þetta virðast vera mestu iðjuleysingjar og gera
fátt annað, en að japla tuggugúmí og éta ís,
eitthvað annað var það nú í mina tíð ............
Reyndur.
..SVAR: Það eru til gömul handrit frá því
nokkrum árum fyrir Kristsburð, sem greina frá
kvörtunum gamals manns á svívirðilegri fram-
komu unga fólksins, og gamall latneskur orðs-
kviður hljóðar: O, tempora, o mores, sem mætti
leggja fritt út: Heimurinn versnandi fer (Ó,
tímar, ó siðir (í hneykslunartóni). Og svipað
hafa gömlu karlarnir sagt um þig, þegar þú
varst ungur að ærzlast um göturnar.
o----o
Hann er að kjá utan í hana.
Kæra Vika.
Af því að ég sé, að svo margir biðja þig
um ráð langar mig til þess að biðja þig að
hjálpa mér. Ég er hrifinn af konu, sem er miklu
eldri en ég, og hún segist líka vera hrifin af mér.
Hún var gift og er fráskilin, en maðurinn henn-
ar (sem var) býr í bænum og mér er ekki grun-
laust um, að hann sé að kjá utan í hana. Eg á
dálítið erfitt með að slíta þessu sambandi, bless-
uð reyndu nú að gefa mér eitthvað ráð. Með fyrir-
fram þökkum.
Áhyggjufullur.
SVAR: Talaðu hreint út við konuna og gættu
þess að láta málið aðeins vera ykkar á milli.
Reynið þið að komast að niðurstöðu í samein-
ingu. Þetta, sem þú nefndir í bréfinu, en vildir
alls ekki láta birta, er vitaskuld hrein fjar-
stæða, og þú þarft ekki að taka mark á því.
VIKAN
Það bar til tíðinda í fylkinu Memphis
í Bandaríkjunum, að náungi einn að
nafni Cleburne Hitt, fékk 21 dollara
sekt, fyrir að hafa í mesta meinleysi
gengið inn í kaffihús, pantað kaffi og
hrært í bollanum með hlaupinu á pístól-
unni sinni. Vandlifað gerist nú þar í
villta vestrinu, þegar menn mega ekki
hræra í sínum eigin kaffibolla með því
sem hendi er næst.
Forsíðan
Forsíðumyndin er eftir
Halldór Pétursson og sjá
líklega flestir hvað lista-
maðurinn hefur haft i
liuga. Himun stórvaxna
bolabít finnst það sjálf-
sagt að brjótast í gegn-
um girðinguna og rífa
fiskinn af litla islenzka
hundinum, sem eftir
nafninu á kofanum heit-
ir Albert. Annars gæti
myndin verði symból íyr-
ir yfirgang stórvelda við
smáþjóðir yfirleitt.
Nýlega liefur verið gerð kvikmynd
eftir hinni frægu dagbck Önnu
Frank. Þótti það mikið vandaverk
að finna leikkonu, sem hæf væri til
að leika Önnu og komu margar til
greina. Hinsvegar varð útkoman sú,
að fyrir valinu varð algjörlega ó-
þekk-t stúlka, Millie Perkins að
nafni og er hún hér til vinstri. Nú
hefur það komið í ljós, að hún hef-
ur ekki verið vandanum vaxin og
er nokkuð seint að uppgötva það á
eftir. örin á myndinni að neðan
bendir á húsið í Amsterdam, þar sem
Frank-fjölskyldan hafðist við.
Höllin sú hin fagra stendur í
bænum Aurich í Þýzkalandi.
Hana byggði greifinn Cirksena
og fjár til verksins aflaði hann
á þann hátt, að hann skattlagði
bændur fyrir vindinn, sem
knúði vindmyllur þeirra.
Bernhard Buffet er líklega fræg-
asti listmálari Frakka um þessar
mundir. Vikuhlaðið Time fékk
hann til þess að mála andlitsmynd
af de Gaulle á dögunum. Það tók
Buffet tvo daga að ljúka mynd-
inni og hann fókk sem svarar 65
þúsund kr. I ómakslaun.
Kappinn Fidel Castro hefur
verið á ferð í Bandaríkjunum
og lagt kapp á að afla sér vel-
vildar þar. Hér krýpur hann
fyrir negradreng á götu, en á
meðan ganga böðlar hans á
Kúpu rösklega fram í því að
farga fylgismönnum Batista.
Þegar Guðmundur heitinn Hánnesson var læknir á
Aliureyri, þurfti hann einu sinni að sprauta upp eyra
á manni, sem var heyrnardaufur. Þegar aðgerðinni var
lokið, sagði sá heyrnardaufi:
— Hvað kostar það?
— Það kostar Icrónu.
— A — hvað kostar það?
. .— Það kostar krónu, hrópar Guðmundur inn í eyr-
að á manninum.
— A — hvað kostar það?
— Það kostar ekki neitt, hvislaði Guðmundur.
— Þakka yður nú ltærlega fyrir og verið þér nú sælir,
sagði maðurinn.