Vikan - 18.06.1959, Side 6
Skorið upp við sári ■ skeifugörn
A myndinni tii vinst’-i sést inn
í kviðarholið og þar er einnig
verið að brenna fyrir æðar.
Jafnskjótt sem
Iæknirinn sker,
setja aðstoðar-
iæknarnir æða-
klemmur fyrir
Iiverja æð og sið-
an er notað sér-
stakt rafmagns-
áhald, sem hitar
klemmurnar og
brennir æðarnar
saman.
A myndinni til hægri að ofan er búið ao fara inn úr lífhimnunni, og sjást nú inn-
yflin koma í ljós. Þið sjáið lílsa efri brún skurðsins greinilega, þar sem gaflarnir eða
hakarnir eru settir. Þar uppi, um það bil, sem strikið er, er nú skorinn skurður þvert
á hinn eins konar T-skurður, til þess að meira svigrúm fáist, þegar farið verður að
fást við siálfan magann. Það tekur langan tima að opna kviðarhol sjuklingsins a svona
stóru svæði, og vinnan við það hlýtur að vera þreytandi. Æðarnar, sem þarf að loka,
eru næstum óteljandi, klemma er sett á Iiverja einustu æð og siðan ýmist brennt sam-
an eða hnýtt, eíitir því, hvar hver æð er. Vinna læknanna hefur þö gengiö ótrúlega
fljótt, og þeir fá hvert áhald upp í hendurnar, um leið og þeir biðja um það.
A myndinni að neðan sést svæf-
ingarlæknirinn með sín tæki, en
hann hugsar um líðan sjúklings-
ins á meðan á aðgerðinni stendur.
Hann fylgist í sífellu með blóð-
þrýstingi sjúklingsins og öndun og
gefur honum blóð eða sykurvatn
eftir því, sem með þarf. Næst
eru súrefnistæki, og flöskurnar,
sem þið sjáið efst á myndinni,
innihalda blóð og sykurvatn.
Svæfingarlæknirinn skrásetur líð-
an sjúklingsins með fárra mín-
útna millibili og fylgist þannig
algerlega með ástandi hans, með-
an skurðlæknamir einbeita sér
eingöngu að því að nema mein-
semdina á brott.
Nú skulum við virða lítillega fyrir okkur myndina hór að ofan. Þetta er nærmynd og symr vel afstoðu
líffæranna, sem um er að ræða. Nr. 1 er lifrin, nr. 2 er maginn, nr. 3 er neðri hlutt skeifugarnar, nr. 4, eða
innan hringsins, er sárið, sem er á mótum skeifugarnar og magans, en þar er skeifugormn miklu mjorn, og þar
er líka hringvöðvi, sem kemur í veg fyrir að maginn tæmist of fljótt. Nr. 5 er svo fitulag huðarmnar.
A myndinni að neðan sjáum við, að búið er að losa magann að töluverðu leyti, en stóran hluta
hans á að nema á brott. Sést greinilega, hverstu stór hann er.