Vikan - 18.06.1959, Blaðsíða 7
— 80% af maganum er ffarlægt
Á myndinni fyrir miðju sjáum við sjálfan magann, eftir að búið er að losa hann frá. Skurð-
læknirinn hefur lagt töng þvert yfir magann ofarlega, en það, sem fyrir neðan er, verður
numið brott, eða um 80%.
Myndin að ofan sýnir,
að búið er að skilja
skeifugörnina frá mag-
anum, og við sjáum upp
í neðra magaopið. Þar
sem hringurinn er á
myndinni, sést sárið inn-
an frá, en á myndinni á
miðri síðunni til vinstri
sáum við, hvemig það
leit út að utan.
Sjá næst
myndina
að neðan
Nú er búið að tengja opin saman, og maginn en nú aðeins 20% af því, sem
hann var áður. Sá galli er á þessari aðgerð, að hringvöðvinn, sem kemur í
veg fyrir að maginn tæmist of ört, hefur nú verið numinn á brott, og þess
vegna verður sjúklingurinn helzt að leggjast fyrir eftir máltíðir, svo að mat-
urinn berist ekki of fljótt niður í þarmana.
Og nú er hinni eiginlegu aðgerð lokið. Eftir er aðeins að loka kviðarholinu
og húðinni. Að ofan sést, að búið er að loka langskurðinum nemf, húðinni,
en þverskurðurinn er opinn og búið að loka öllu kviðarholinu, eftir er aðeins
að loka sjálfri luiðinni.
Næst er svo maginn skorinn sundur og sést
það á myndinni hér að ofan. A eftir hnifn-
um er áhald, sem sýgur burt allan völtva jafn-
óðum. Stórar tangir eru settar báðum megin við,
til þess að innihald magans fylli ekki kviðarholið,
annars hefur slanga Iegið niður í gegnum við
annars hefur slanga legið niður í gegnum vit
sjúklingsins, sem tæmdi magann smám saman.
Á myndinni til hægri er dr. Friðrik
Einarsson að leggja síðustu hönd á
þessa löngu og erfiðu aðgerð. Hún
hefur nú staðið í næstum þrjár
klukkustundir, og undirritaður er
satt að segja orðinn dálitið þreytt-
ur i fótimum. En það þýðir ekki að
kvarta, segja læknarnir. Þeir verða
að vinna verk sitt af sömu nákvæmni
og alúð, þótt þeir séu dauðþreyttir.
Aldrei má neitt út af bera. Þetta
er ekki venjulegt starf.
Að lokum sjáið þið á myndinni að neðan til hægri, að svæfingarlæknirinn er að ganga frá sjuk-
lingnum. Þið sjáið, að búið er að setja umbúðir yfir skurðinn. Allt hefur gengið vel, ekkert komið
fyrir. Hin öruggu og hröðu handbrögð skurðlæknins hafa einu sinni enn bjargað heilsu manns.
Fyrir okkur, sem sjáum þetta núna, er þetta ævintýri, fyrir læknana er þetta hversdagsleg önn,
sem aldrei verður þó í rauninni hversdagsleg, því að í hverjum einasta uppskurði er barátta fyrir
Iífi mannsins og tilveru. Harður glampi skín úr augum þeirra, og eftir þrjár klukkustundir eru
liandtökin jafnhröð og í fyrstu, þótt aldrei hafi verið hlé. Eftir uppskurðinn breytast þeir aftur i
venjulega menn, en þegar næsta kall kcmur iklæðast þeir aftur einkennisklæðum hermannsins, hins
eina liermanns, sem berst fyrir lífi, ekki dauða, N. P. N.
— Og eftir 10—14 daga fer sjúklingurinn heim
Hér sjáum við opin á maganum og skeifugörn. Það er
nú búið að sauma fyrir hluta af maganmn, svo opin eru
orðin jafnstór.