Vikan


Vikan - 18.06.1959, Qupperneq 10

Vikan - 18.06.1959, Qupperneq 10
secjl ■a- Hrútsmerkið (21/3 — 20/4) Vikan verður heillarík. Þú ferð í stutt ferðalag, sem þú munt njóta í ríkum mæli. Atvinna þín verð- ur að víkja um hríð, en það er þér aðeins fyrir beztu. Vertu varkár í peningamálum og íhugaðu vandlega ný viðfangsefni, áður en þú tekur þau að þér. Heimilisfriður mun rikja. Nautsmerkið (21/4 — 21/5) Þessa viku skaltu nota vel og leggja þig í líma við framkvæmd hugðarefna þinna. Erfiðleikar þínir immu smátt og smátt hverfa, og framundan er brautin bein. Vanti þig fé, skaltu bara íá þér lán, en varast skaltu að eyða um efni fram. Þú munt hitta gapilan ástvin. Tvíburamerkið (22/5 —• 21/6) Þrautatímar eru framundan, en láttu ekki hugfallast. Sigraztu á þrautunum með viljastyrk og vertu skjótur til ákvarðana á örlagastund. Ekki verður tími til að sinna heimili þínu, en gleymdu samt ekki að heima er bezt. Þeir, sem hafa svikið þig einu sinni, svíkja þig ugglaust á ný. Krabbamerkið (22/6 — 22/7) Vertu örlátur og gerðu vinum þínum óspart greiða. Spil- aðu ekki með fjármuni þína. Vertu ekki i eilífu kapphlaupi um að afla þér fánýta hluta, lestu heldur góðar bækur, því að þar hefurðu hitann úr. Neyttu ekki áfengis í óhófi og haltu heimilisfriðinn. Óvæntur gestur kemur í heimsókn. Ejónsmerkið (23/7 — 22/7) Nú er einmitt tíminn til að taka sér ný verkefni fyrir hendur og fyrir þá, sem fæddir eru undir þessu merki, er þetta tími hinna gullnu tækifæra. 1 hlut þinn munu falla ferðalög, sem verða munu þér til mikillar ánægju og gagns. Þú ert ásthneigður, en farðu varlega í þeim sökum. Meyjarmerki (24/8 — 23/9) Á þessum tíma ber að fara sér hægt, — flas er ei til fagn- aöar. Heimilisástæður þínar geta valdið þér áhyggjum. Skaltu því vera tillitsamur og samningalipur í þeim sökum. Samvinna er nauðsynleg og hinn gullni meðalvegur er jafnan betur. Fullnýttu hæfileika þína á sem flestum sviðum. Vogarmerkið (24/9 — 23/10) Það er engin furða þótt þér gangi ekki vel. Þú ert nefni- lega alltof fljótfær til þess að geta dregið réttar ályktanir og tekið heppilegar ákvarð- anir. Reyndu að fara varlega í viðskiptum og láttu ekki pretta þig. Þú skalt gera nýjar áætlanir og fyigja þeim út í yztu æsar. Drekamerkið (24/10 — 22/11) Næstu daga skaltu halda kyrru fyrir á kvöldin og njóta samvista við fjölskyldu þina. Ekki skaltu taka þér neitt fyrir hendur nema hið allra nauðsynlegasta, en notaðu tímann til ihug- unar. 1 ástamálum muntu verða fyrir mikilli hamingju, sem mun reynast þér þýðingarmeiri en nokkuð annað. Bogmaðurinn (23/11 — 22/12) Þú ert undir einhverjum óheppilegum áhrifum og skaltu því fara varlega í umferðinni. Þótt áhyggjur þínar virðist blýþungar, skaltu ekki iáta bugast heldur vona hið bezta og sannaðu til, að einhver beinir þér á rétta braut. Vertu þolinmóð- ur. Varastu að vera kærulaus. Geitarmerkið (23/12 — 20/1) Vikan verður heldur tíðindalítil og kafðu hægt um þig. Eyddu ekki fé í fánýtan óþarfa, og gerðu þér far um að hafa mannbætandi áhrif á féiaga þina. Berist þér einhver óvænt tæki- færi I hendur, skaltu hugsa þig vel um, áður en þú hefst handa.annars er hætta á, að þú verðir fyrir tjóni. Vatnsberinn (21/1 — 19/2) Nú er vor i lofti og einnig í hjarta þínu. Horfðu öruggur fram á veginn og kvíddu engu. Þú munt hagnast á samtali við ókunnan mann. Konur, fæddar undir þessu merki skulu varast áleitni sterk- ara kynsins. Þú færð gjöf, sem færir þér mikla ham- ingju, en bindur þig þó á vissan hátt. Notaðu tíman vel. Fiskamerkið (20/2 — 20/3) Þér er hætt við skapvonzku þessa viku, en láttu ekki lítil- fjörlegt mótlæti koma þér úr jafnvægi. Vertu viðmótsþýður eftir fremsta megni. Reyndu að gefa þér tíma til þess að lesa góðar bók- menntir og láttu léttmeti lönd og leið. Sýndu sálarspekt og gefðu hugmyndaflugi þínu lausan tauminn. Þær mætast við stóra bekkinn í skemmtigarð- inum, konurnar tvær. Konan í Parísarklæðnað- inum og konan í léreftskjólnum. Horfa hvor á aðra, gagnrýnandi og ókunnuglega, önnur dá- lítið öfundsjúk, hin dálítið vorkennandi. Ná- kvæmlega á sama augnabliki færist hikandi bros yfir andlit beggja, þær nema staðar. — Rósa. — Valdís. — Ég ætlaði ekki að þekkja þig, þær segja þessi orð báðar í einu, á eftir kemur vandræða- legur hlátur, síðan enn vandræðalegri þögn. En svo------ — Átt þú bæði þessi börn? — Já, og meira að segja tvö eldri heima. — Jæja, það er bara svona. Hvað ertu gam- all vinurinn og hvað heitirðu? Konan klappar litla hrokkinn kollinum með hanskaklæddri hendinni og brosir blíðlega við honum. En hann er ekkert upp á það kominn að svara svona spurningum, jafnvel þó spyrjandinn sé falleg og fín kona og hafi gull í tönnunum. Hann gripur fast í kjól móður sinnar og felur sig á bak við hana. —. Ætlarðu ekki að segja könunni hvað þú heitir, ertu svona lítill strákur, veiztu ekki hvað þú heitir? — Ég er ekkert lítill, ég er stór, segir dreng- urinn. — Já, auðvitað ertu stór, það sé ég, ég hefði ekki þurft að spyrja. Drengurinn hættir að fela sig í kjól móður sinnar, og horfir stórum augum á ókunnugu konuna. Kannske er hún ekki sem verst þessi, hún er falleg og það er góð lykt af henni. En hann kemst fljótlega ð raun um, að hann verður að endurskoða þenna dóm sinn, því nú beinir hún spurningaárásinni að litlu systur hans 1 vagninum, sem er löglega afsökuð, því hún sefur og getur auk þess ekkert talað. SMÁSAGA EFTIR Guðnýju Sigurðardóttur — Þetta er dama, er það ekki? En yndisleg. Hvað er hún margra mánaða? Að hugsa sér, ekki meira? — — Jæja það er annars orðið langt síðan við höfum sézt. — Já, það er satt. Líklega tíu eða tólf ár. — Eigum við ekki að setjast á bekkinn þarna, ertu nokkuð að flýta þér? — Nei, ég er bara að nota sólskinið og góða veðrið, ég hef enga barnfóstru, svo ég verð sjálf að gæta barnanna. Þær ganga að bekknum, móðirin setur vagn- inn í bremsu og sezt svo, en hin konan tekur af sér hanskann og strýkur fingrunum yfir fjal- irnar. — Æ bekkurinn er svo rykugur, segir hún, og dragtin mín er svo ljós. — Ég skal lána þér bleyju, sem þú getur breitt á bekkinn. — Þakka þér fyrir, En svo þegar þær eru seztar, drengurinn hlaup- inn í sandkassann, og ekkert framar sem trufl- ar, hafa þær allt í einu ekkert að segja. Hugsanir þeirra beggja, hlaða háan og næst- um óyfirstíganlegan vegg milli þeirra. Minning- arnar bæði Ijúfar og sárar, minningar sem lengi hafa blundað vakna, og gera háværar kröfur til þess að eftir þeim sé tekið. Þær voru leiksystur, skólasystur. Uxu upp„ hlið við hlið, eins og tvö fögur blóm. Ærsluðust, hlógu saman, grétu saman. Áttu sömu óskir, sömu draumana og elskuðu loks báðar sama æfintýraprinsinn. Leiðir skildust, önnur hvarf til fjarlægra landa í leit að nýrri lifshamingju, nýjum æfintýrum. Hin giftist piltinum sem orsakað hafði aðskiln- að þeirra vinstúlknanna. VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.