Vikan


Vikan - 18.06.1959, Qupperneq 11

Vikan - 18.06.1959, Qupperneq 11
Og nú hittast þær hér aftur, eftir mörg ár, i gamla skemmtigarðinum, þar sem þær áður léku sér með sippuböndin sín, byggðu hallir úr snjó og hús úr sandi. — Rósa, hvernig hefur ykkur liðið? — Vel, mjög vel. En þér Valdis? — Ágætlega. Ég á mjög góðan mann. Þú veizt hver hann er, er það ekki? — Jú, jú. Ég man vel eftir Baldri. Ég gleymi aldrei hvað við öfunduðum hann af kanaríufugl- unum hans, mannstu það? — Hvort ég man. - Og mannstu þegar kötturinn drap annan, og hvað við grétum öll mikið þegar við jörðuð- um hann. — Já, og mannstu, mannstu.... Og svo spyr Rósa: — Eruð þið hér í stuttri heimsókn eða kannske alkomin heim? — Við ætlum að vera hér í sumar. Baldur er í viðskiptaerindum og nokkurskonar fríi um leið, annars var í ráði að við færum til Italíu og byggjum þar í eitt ár, en af þvi getur ekki orðið fyrr en síðar. Eg var mjög glöð þegar ferða- áætlunin breyttist og við héldum heim. - Þið eruð bara tvö, ég á við, þig eigið engin börn ? - Nei, við eigum engin börn, skugga bregður yfir andlit konunnar, en aðeins snöggvast, hún hlær og segir: — Það er líka bezt fyrir fóllc eins og okkur, við erum alltaf á ferðalögum, það á kannske ekki svo vel við börn. Nei, kannske ekki. Nú kemur vandræðaleg þögn, það er aftur eins og þær hafi ekkert að segja. Móðirin hágræðir sængurfötunum í vagninum, kallar á drenginn og segist verða að fara heim. — Þið ættuð að heimsækja okkur, segir Rósa, — við myndum öll hafa gaman af að hittast. — Þakka þér fyrir, það væri gaman, segir Valdís. — Já, við búum á Njálsgötunni í gamla hús- inu hans pabba, þú ratar, segir Rósa. Þær kveðjast, brosa, og takast i hendur. — Reglulega gaman að við skyldum hittast, hlakka til að sjá þig aftur. En þær vita báðar að þær munu ekki reyna að hittast aftur, þær vita ekki nákvæmlega hversvegna, aöeins að það er bezt þannig. — Davíð, ég hitti Valdísi í dag. Hann heldur áfram að lesa, heyrir ekki, hún litur upp frá sokknum sem hún er að staga, horfir á hann, eins og hún hafi ekki séð hann lengi. Hún tekur eftir því að hann er órakaður og hann hefði þurft að láta klippa sig. Skyrtan er slitin og alls ekki hrein, hálsbindið þvælt, brotiö að mestu horfið úr buxunum, inniskórnir gamlir og skakkir. Hún lítur i kringum sig. Húsgögnin hafa líka látið á sjá. Hún leggur frá sér sokkinn, og hreyfir sig dálítið gremjulega í stólnum. — Davíð, ég var að tala við þig. — Fyrirgeföu, hann leggur frá sér blaðið og brosir ti) hennar. — Eg held næstum að þú sért reið, þú ert svo hörkuleg á svipinn. — Nei, nei, ég er ekki reið, hún hlær léttum hlátri. — Ég var að segja þér að ég hefði hitt Valdísi, en þú varst svo spenntur að lesa blaðið að þú heyrðir ekki til mín. — Valdís, er hún hér? — Já. — Og Baldur? — Já, já, þú hefðir bara átt að sjá hvað hún var fallega klædd. Dragtin og skórnir, hanskarn- ir og taskan. Hann treður í pípuna sína af mikilli nákvæmni og natni, næstum eins og hann velji hverju tóbakskorni stað. Tekur eldspýtu úr stokknum kveikir á henni og hefur ekki augun af pípu- hausnum á meðan loginn er að ná niður í tóbak- ið. Hann og pípan eru þessa stundina eitt og allt annað þeim óviðkomandi. — Davíð, þú hlustar enn ekki á mig. Jú, jú, Rósa ntin, þú varst að segja að Valdís hefði verið með fallegan hatt. Hún skellihlær. — Ha, ha, þarna sérðu, þú hefur ekki hlustað, ég var ekki farin að minnast á hattinn. En hann var auðvitað líka alveg fyrsta flokks. — Ó, hvað ég öfundaði hana. Æ, og þó, ég held hún sé ekkert hamingjusöm, þrátt fyrir öll auðæfin, mér finnst hún orðin ákaflega full- orðinsleg. Hugsaðu þér, þau eiga engin börn. — Engin börn, segir hann hissa og fullur á- huga, enda er nú glóðin i pípunni nákvæmlega eins og hún á að vera, og því getur hann ótrufl- aður hlustað á það sem kona hans segir. — Þær eru svo sem ekkert unglegri þessar barnlausu konur, segir hún. — Nei, Rósa mín, mikið væri ég glaður ef ég gæti gefið þér falleg föt, hann gengur til hennar og sest á stólbríkina hjá henni. — Þig vantar svo margt, þú ert ennþá svo ung og falleg, en bara alltof þreytt. — Æ, segðu þetta ekki vinur minn, eins og þú sért ekki þreyttur og sannarlega þyrftir þú að fá þér föt. — Vel á minnst, Einar verður víst að fá buxur og jafnvel jakka, hann vex upp úr öllu. — Já, það segir þú satt. En við getum keypt eitthvað ódýrt handa honum núna, þvi hann verður að fá'föt í haust áður en skólinn byrjar. -— Og ég held að Anna verði að fá kápu. Gleymd er gömul vinkona, gleymd eru París- arföt, allt verður að víkja fyrir hugsuninni un» bú og börn. En samt. . . Þegar hjónin eru háttuð og hafa fellt niður , tal sitt um vandamál daglegs lifs, sofnar hann strax en hún vakir. Mynd vinkonunnar kemur aftur upp í huga hennar. Hún hefur lifað æfin- týrin, séð æskudraumana rætast, heimsótt fjar- læg lönd og fagrar borgir. En hún sjálf? Myndi hún vilja skipta og lifa lífi Valdísar? Hún virðir fyrir sér mann sinn þar sem hann sefur við hlið hennar. Hann er mjög þreytulegur og er tekinn upp á því að hrjóta. Skrítið, hún hafði haldið að það væri aðeins gamalt fólk sem hryti. Kannske Framháld á bls. 26. Mesta og fjölbreyttasta úrval af erlendum teppum fáið þér hjá okkur. Bezta og þéttasta fáanlega teppaefni sem framleitt er hér á landi- Klæðum horna á milli: ■ , ■ - - -•S'v, ÍBÚOIR - SAMKOMUSALI Fullkomin þjónusta: TÖKUM MÁL LEGGJUM NIÐUR Þeir sem kjósa gæðin — velja íslenzka Wilton dregilinn 100% ull • Litir og mynstur valið af fagmönnum. 0 • Leggjum áherzlu á fljóta og góða afgreiðslu. KIRKJUR - SKRIFSTOFUR HÓTEL - VERZLANIR TEPPI H.F. Aðalstræti 9. — Sími 14190. LlMUM SAMAN VIKAN 11

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.