Vikan - 18.06.1959, Síða 12
Joachim fjölskyldan við mafborðið.
Elzta systirin hefur það hlutverk að baða þau
yngstu.
Að neðan: Joachim hjónin ásamt 17 börnum sinum.
Fyi'ir um það bil 24 árum voru þau gef-
in saman í hjónaband Rose og Jack Joa-
chim vestur í Biloxi í fylkinu Missisippi í
Bandaríkjunum. Á þessum árum hefur
þeim orðið átján barna auðið og á neðstu
myndinni sjást þau hjónin með hópn-
um sínum. Jack yngri stendur lengst til
vinstri. Hann er elztur systkinanna og er
24 ára, en yngst er Mary litla, rúmlega árs
gömul og faðir hennar heldur á henni á
myndinni. En bíðum nú við. Það kemur
raunar í ljós, að á myndinni eru ,,aðeihs“
17 börn. Þau hafa sem sé misst eitt barn,
son, sem varð fyrir bíl.
Nú hefur það svo sem komið fyrir áður,
að konur hafi átt átján börn og jafnvel
meira, en það sem hér vekur athygli, er,
það, hversu ungleg og óslitin móðirin virð-
ist vera. Hún gæti eins verið elzta systirin.
Joachim-hjónin búa i stóru húsi með sjö
svefnherbergjum og þrem baðherbergjum.
Það gefur auga leið, að talsvert þarf
til fæðis og klæðis á heimilinu. Jack er
dugandi maður og sér vel fyrir þvi, að ekki
skorti neitt, enda eru þar öll helztu nú-
tíma hjálpartæki. Jack vinnur hjá síma-
fyrirtæki, en á auk þess í verzlun og hefur
af þessu árstekjur, sem nema 300—375
þúsund ísl. krónur og þætti einhverjum
það sæmileg hýra hér.
Um leið og börnin komast á legg er
reynt að hafa not af þeim við heimilis-
störfin og hvert um sig hafa þau ákveðin
verkefni að leysa. Sum hafa uppþvottinn,
einn burstar alla skó, elztu systurnar baða
þau yngstu og þannig mætti lengi telja. Og
börnin eru frábærlega myndarleg og vel
upp alin. Þrjú þau elztu eru nú komin að
heiman. Elzti sonurinn er giftur og Jack
og Rose eiga það nú í vændum að verða
afi og amma. Þau eru bæði 41 árs gömul.
Á heimilinu gilda ákveðin lög og reglur,
sem allir beygja sig undir. Enginn má vera
lengur en 10 mínútur í simanum í einu.
Enginn má líta á sjónvarpið fyrr en búið
er með vei'kin. Haldið er upp á afmæli einu
sinni i mánuði fyrir þá sem hafa átt af-
mælisdaga í þeim mánuði. Hjónin eru
kaþólskrar trúar og fara reglulega í kirkju
með allan hópinn.
„ÁTJÁN BÁRNA
FAÐIR
í ÁLFHEIMUM“
Td bægri: 1 dag á hann að bursta
allan skófatnaðinn.
""
'
f J II •