Vikan - 18.06.1959, Qupperneq 14
Flestir karmast við söng-
parið Nínu og Friðrik, sem
komu hingað s. 1. vetur. Ekki
er samt víst að allir viti að
nú hafa þau fengið keppinauta,
sem nýlega sungu inn á tvær
hljómplötur og þykja þær liafa
tekist vel. I>au heita annars Liz
og Eric og kynntust >á þann
hátt, að Liz sendi myndablaði
mynd af sér og það með,
hversu mjög sig Iangaði tii
þess að verða söngkona. Eric,
sem eitthvað fékkst við að
raula og spila iindir á gítar,
skrifaði Liz óðara og útkoman
varð dágóð að áliti beggja.
| LlZ og EfitlC
Lesendur Vikunnar kannast mæta
vel við þennan mann, fyrrverandi
söngvara og núverandi mikilvirkan
rithöfund og ættjarðarvin. Eggert
Stefánsson er eins og farfuglarnir.
Hann dvelur á íslandi hluta úr árinu,
en þess á milli á ítalíu. Munurinn á
Eggert og farfuglunum er samt sá,
að hann er ekki háður árstíðunum
og þessa dagana, í þann mund er
farfuglarnir koma frá suðlægari lönd-
um til Islands, leggur Eggert land
undir fót og heldur suður á bóginn.
Það var einmitt við það tækifæri, sem
þessi mynd var tekin og Eggert send-
ir öllum sínar beztu kveðjur.
Eins og allir sem kunnugir eru í Vesturbænum vita,
var fyrir nokkrum árum fyllt upp í Selsvör og útgerð
lagðist þaðan niður að mestu. Einn var samt sá, sem
ekki lagði árar í bát, Pétur Hoffmann útvegsbóndi í
Selsvör. Snemma i vor hóf Pétur undirbúning hrogn-
kelsavertíðarinnar og hefur síðan sótt sjóin fast að
vanda. Pétur er löngu þjóðkunnar maður fyrir ýmsar
framkvæmdir sínar og ævintýri og tilhaldsmaður er
hann í klæðaburði þegar svo ber undir. Við minnumst
þess að hafa einhverstaðar séð mynd af Pétri í „smok-
ing“ og nú getur Vikan glatt lesendur sina með mynd
af honum vinnuklæddum ásamt tveim vinum úr ná-
grenninu. Pétur er þarna með mastrið að bátnum sín-
um og aðspurðir sögðust piltarnir, vinir hans, gera
sér vonir um að komast á flot með honum einhvertíma
í vor.
•itoVMvwa
'muiewiww
l>að eru ekki nema þau hraustustu sem
hafa herkju til þess að fara suður í Naut-
hólsvík þessa dagana og Ieggjast til sunds.
Samt eru það alltaf nokkrir, sem stunda
„sjóinn“ allt árið og láta hvorki frost né
bylji aftra sér. Stúlkan hér er ein þeirra sem
vill nota sér sjóinn og sólskinið. Við nánari
athugun þykir okkur þó líklegt að hún láti
sólskinið duga fyrst um sinn.
taja
Strákur ofan af Héraði var í kaup-
staðaferð á Seyðisfirði. Hitti hann jafn-
aldra sinn á Seyðisfirði, sem spurði
hann hvaðan hann væri. Strákur nefndi
bæ á Héraði.
— Er það næsti bær við Helvíti ?
spyr 'Seyðfirðingur.
— Nei, Seyðisfjörður er á milli, svar-
aði strákur.
Leikkonan Liz
Taylor gifti sig
fyrir skemmstu
dægurlaga-
söngvaranum
Eddy Ficher, en
hann var sjálf-
ur giftur þegar
Liz varð ekkja
fyrir ári síðan
og gekk manna
bezt fram í því
að hugga. Ó-
neitanlega hef-
ur það tekist.
Austurlandaþjóðirnar lceppast við að lœra ýmsa siði Vest-
urlandabúa sér til fyrirmyndar. Eitt af því eru fegurðarsam-
keppnir og hafa þcer þegar fengið byr undir báða vœngt i
hinum fjarlœgari Austurlöndum. Margir telja að Síamskar
konur séu með hinum fegurstu í heimi og hér sjáum við ár-
angurinn af fegurðarsamkeppni i Singapore. Þar þótti feg-
urst hin 19 ára Marion Willis. Hún er raunar af Evrópskum
œttum, hraðritari og módel lijá Ijósmyndurum. Fegurðardis-
in er fœdd i Singapore, en var í Indlandi á stríðsárunum og
hefur eitthvað fengist við kvikmyndaleik. Austrœnar fegurð-
argyðjur hafa að undanförnu streymt vestur á bóginn i von
um frama i heimi kvikmyndanna. Mörgum hefur tehizt það
og er margt sem bendir til þess, að Vesturlandabúar kunni
betur að meta fegurð Austurlandakvenna en áður.
ÓVENJU
MIKIÐ
IÍLÆDD .. .
Það bar óvenjulít-
ið á Brigitte Bar-
dot á kvikmynda-
liátíðinni í Cannes.
Astæðan: Hún var
oftast svo mikið
klædd (alveg eins
og venjulegt fóllc)
— »g lét aldrei
sjá sig hálfnakta
alla þá daga sem
liátíðin stóð.