Vikan


Vikan - 18.06.1959, Qupperneq 21

Vikan - 18.06.1959, Qupperneq 21
mér, ég vissi þá þegar, og hef sann- færzt um það síðar, að manninum kom ekkert til þarna, nema dreng- skapur. En mér var ómögulegt að fá mig til þess að viðurkenna fyrir honum, hvernig ástatt var fyrir mér, svo ég neitaði boðinu, en þakkaði honum fyrir hugulsemina. En undir eins og ég var búinn að kveðja hann, varð ég afar gramur sjálfum mér, enda gauluðu garninar í mér víst hávær og illileg mótmæli. Tvær eða þrjár stundir á eftir var ég töluvert niðurdreginn, en um það bil, sem ég var að verða eins og ég á að mér að vera, mætti ég Bjarna Thorarensen. Hann stöðvaði mig með þeim orðum, að ég hefði aldei þegið hjá sér kaffi, og að við skyldum koma á Vífil. Bjarni er ekki skáld eins og nafni hans og frændi, en eina tegund heimsbókmenntanna hefur hann kynnt sér betur en flestir aðrir, en það eru verðlistar. Bjarni var blaðsali þegar ég kynntist honum, og var þá 12 eða 13 ára. Hann var þá þegar farinn að rita til útlanda eftir verðlistum, og hafði pósthólf. Leitaði hann þá oft til mín með eitt eða annað, sem hann ekki skildi í verðlistunum, eða i aug- lýsingunum í útlendum blöðum og tímaritum, og allt fé, er honurn á- skotnaðist, fór í burðargjöld, því alltaf var hann að skrifa eftir verð- listum. Hjálpaði ég honum þá stund- um um nokkrar krónur, því þetta var áður en ég varð öreigi (og þá jafnframt áður en mér hafði nokkru sinni komið til hugar að ég 'myndi verða það, því mér hafði aldrei dott- ið slíkt í hug, fyrr en það var orðið). Síðar varð Bjarni sendisveinn og hentist á hjóli með vörur um borg- ina, en las verðlista á kvöldin. Nú hafði ég ekki hitt hann nokkuð lengi, en einstaka sinnum heilsað honum álengdar. Minntist ég nú þess, að ég hafði veitt því eftirtekt, að hann var farinn að vera svo vel búinn. Þetta var orðinn myndarlegasti pilt- ur, hann Bjarni; hann var nú orð- inn 19 ára, en ekki stór eftir aldri. Þegar við vorum seztir, varð mér litið á hendurnar á honum, og mun það hafa verið orsökin til þess, að ég spurði hann hjá hverjum hann væri núna. ,,Nú er ég hjá engum,“ sagði hann, ,,ég hélt þú vissir það. Ég er hættur að vera sendisveinn; ég er orðinn heildsali." Þetta kom svo óvænt, að ég fór að hlæja, en svona var þetta nú samt. Hann sagði mér, að verðlistaæði það, sem hefði gripið hann, hefði uppruna- lega ekki verið i sambandi við nein- ar verzlunarhugleiðingar, heldur — að svo miklu leyti sem hann gat skýrt það — af því hann hafði svo gaman af að sjá myndir af, og lésa um hluti, sem ekki voru fáanlegir hér, eða öðruvísi en þeir tiðkuðust hér. En svo hefði hann hvað eftir annað rekist á ýmislegt, sem hann áleit að mætti selja hér með ágóða. Oft hafði hann haldið, að hann væri búinn að finna slíka vörutegund, en jafnan sýndi það sig, að hún var, þegar til kom, svo ónýt, að lága verðið stoðaði ekki, eða hún var allt öðruvisi en venja var til hér, svo menn gátu ekki fellt sig við hana. En hann var nú búinn að fá óbilandi trú á því, að hann myndi finna eittlivað, og nú komst hann að því, að fleiri leiðir voru til en gegnum verðlistana. Svo fann hann handklæðin með bláu röndinni; hvort ég kannaðist ekkert við þau, og virtist hann verða töluvert hissa á því, því varla væru notuð önnur handklæði nú, því þau væru bæði bezt og ódýrust. (Skildi ég betur undrun hans, þegar ég kom heim á herbergið mitt, og sá að handklæðið sem þar hékk, var með mjórri blárri rönd eftir miðju, eins og Bjarni hafði lýst.) Hann sagði mér frá, hvernig hann nú væri búinn að finna fjórar vörutegundir i viðbót, og var í stuttu máli svo fullur af gætinni bjartsýni, að mér var mikil upplyfting í því að tala við hann, eins og á stóð fyrir mér, og allar voru gerðir hans ólík- ar mínum athöfnum, sem hafði látið allt reka á reiðanum undanfarna mánuði. Loks bauðst hann til að lána mér fimmtíu krónur, og hefur mér oft síðar dottið í hug sú undar- lega tilviljun, að mánuðum saman hafði enginn skipt sér af högum mínum, en svo koma sama daginn tveir menn, sinn úr hvorri áttinni, og bjóða mér 50 krónur. Ég var fljótur að þiggja boð hans, svo gramur sem ég hafði verið sjálf- um mér að þiggja ekki fyrri fimm- tíu krónurnar. En það urðu ekki nema 25, því Bjarni var ekki með meira á sér, og þegar hann ætlaði að fara að skrifa tékkávísun handa mér upp ó 50, skaut allt í einu einhverjum gikkshætti upp í mér, svo ég aftók að fá meira hjá honum en þessar tuttugu og fimm, sem hann hafði í seðlum; sagði að það væri nóg, ég þyrfti ekki meira. Ég hafði verið fljótur að komast í gott skap þarna á gildaskálanum, og fljótur að fá trúna á það aftur, að hamingjan væri ekki alveg búin að snúa við mér bakinu. Og eins og alltaf, þegar ég hef meðlæti, færðist nýr dugnaður í mig. Eg fór aftur að leita fyrir mér um atvinnu, og var að því fram á kvöld, en sú leit fór á sömu leið eins og daginn áður. En svo var það morguninn eftir, að ég sá auglýsinguna. Hvað var meint með þessu í aug- lýsingunni „hugrakkur og þag- mælskur" ? Og hvað með „vinnu, sem þú með sjálfum þér þarft ekkert að skammast þín fyrir“? Það var eins og það væri eitthvað ólöglegt, sem hér ætti að fremja. Mér datt undir eins í hug smyglun. Mér var nú ekki um slíkt, en þetta vakti svo i'orvitni mina, að ég sendi miða, um að ég vildi fá að vita um, hver hún væri þessi atvinna (eða ég held að for- vitnin hafi ráðið mestu). Þegar ég var nýbúinn að senda bréfið, hitti ég mann, sem bauð mér atvinnu í nokkra tíma. Það er að segja, ég átti að hjálpa honum, en ekki fá neitt fyrir það, en af því að maður- inn var kunningi minn, þá skoraðist ég ekki undan þessu. En ég vann svo sem ekki ókeypis, því á eftir fór- um við í „Gamla“, og þar á eftir (allt á hans kostnað), á Borg. Það var langt síðan ég hafði borðað kvöldverð á Borg, og gat ég ekki alveg notið þess, sökum þess, hvað mér þótti það mikið óhóf fyrir mig, sem ekki átti málungi matar. En ég komst samt von bráðar í gott skap, því bæði er mér sá hugblær eðlileg- astur, og eins var hitt, að þarna rétt hjá okkur sat alveg forkunnar fríður kvenmaður, og í þá daga var mér alveg ómögulegt annað en að reyna að vera skemmtilegur, ef laglegur kvenmaður var nálægt (eða hvaða verulegur karlmaður getur það, nema þeir, sem þá eru svo hamingjusamir, að sjá hvorki sólina né annað kven- fólk fyrir einhverjum sérstökum kvenmanni. En sú hamingja gerir þá venjulega leiðinlega, að hinum finnst) Mér tókst óvenjuvel upp þetta kvöld, sem leyndi sér ekki á kunn- ingja mínum, né fólkinu, sem sat við næsta borð. Þó ekki þessari um- getnu fegurð. Því henni þóknaðist aldrei að taka eftir öðru en því, sem fram fór við borðið, sem hún sjálf sat við. Ég varaðist að líta á hana, þó að ég neiti mér venjulega ekki um að horfa á laglegar stúlkur, sem er bæði saklaus, góð, holl og ódýr skemmtun. En hún var svo falleg, að hún var fyrir ofan það að ég byggist við að eiga kost á að kynn- ast henni, og þó veit ég ekki nema það hafi einmitt verið til þess að vekja forvitni hennar á mér, að ég lézt ekki sjá hana. Því þótt lang- varandi fátækt hefði dregið úr sjálfs- áliti mínu, þá var nú víst töluvert eftir af því inn við beinið, og það var eingöngu hennar vegna, að ég var svona skemmtilegur. Á heimleiðinni spurði ég kunningja minn hver stúlkan væri, og fékk að vita að það væri hún Sjöfn frá Hlíð- arhúsum. „Manstu ekki eftir henni?“ Pramhald á bls. 24. ATH U GIÐ! Öll sovézk tímarit, blöð og bækur, ennfremur hljómplötur, útvegum við frá Sovétríkjunum. Nú þegar tökum við áskriftir af sovézkum tímaritum t. d. Soviet Union, á ensku og þýzku, 12 hefti árl. kr. 44,00 Soviet Literature, á ensku og þýzku 12 h. árl — 55,00 Soviet Woman, á ensku og þýzku, 12 h. árl. — 44,00 International Affairs, á ensku 12 h. árl. — 61,60 New Times, á ensku, sænsku og þýzku 52 h. árl. — 61,00 Moscow News, á ensku og þýzku, 104 tbl. árl. — 52,80 Leitið upplýsinga. Aflið yður fræðslu um líf og störf hinna umdeildu þjóða Ráðstjórnarríkjanna. Gerist áskrifendur að sovézkum tímaritum. Sendið greinilegt heimilisfang, ásamt áskrift- argjaldi, er greiðist við pöntun til: ISTORG H.F. Pósthólf 444 — Reykjavík Sími 1-08-19 VIKAN 21

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.